Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 8
8 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR Atlaga að meintum hryðjuverkamönnum: Lögreglumaður lést og þrír særðust LONDON, AP Óttinn við hryðju- verkaárásir hefur vaxið enn með- al bresku þjóðarinnar eftir að lög- reglumaður var stunginn til bana í átökum sem brutust út þegar ráð- ist var til inngöngu í húsakynni meintra hryðjuverkamanna í Manchester. Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, sagði í gær að ríkisstjórnin myndi grípa til enn harðari aðgerða gegn hryðju- verkamönnum í kjölfar atviksins. Þrír aðrir lögreglumenn særðust í átökunum, þar af einn alvarlega. Atlagan var gerð í tengslum við eiturefnafund lögreglunnar í London í síðustu viku og voru þrír menn handteknir og færðir til yf- irheyrslu. Einn þeirra á yfir höfði sér ákæru fyrir morð á lögreglu- manni í starfi en allir eru þeir grunaðir um aðild að skipulagn- ingu hryðjuverka í Bretlandi. Í yfirlýsingu frá bresku lög- reglunni kemur fram að lögreglu- mennirnir höfðu verið um klukku- stund í íbúðinni við leit að vís- bendingum þegar einn hinna grunuðu greip hníf og réðst á þá. Kom til átaka milli árásarmanns- ins og lögreglunnar sem lyktaði þannig að einn lá í valnum og þrír voru særðir. Nokkrir lögreglu- mannanna, þar á meðal hinn látni, voru ekki í öryggisvestum þar sem þeim var aðeins ætlað að safna upplýsingum og sönnunar- gögnum á staðnum. ■ Bændur borga með nautakjöti Bændur borga um 100 krónur með hverju kílói af nautakjöti til neyt- enda. Framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda segir að botnin- um hafi verið náð. Aukin eftirspurn kalli á hærra verð. LANDBÚNAÐUR Afurðaverð á naut- gripakjöti mun haldast nokkuð stöðugt á næstunni eftir að hafa lækkað stöðugt síðastliðin fjögur ár. Snorri Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands kúabænda, segist vonast til þess að botninum hafi verið náð og að leiðin liggi upp á við. „Við sjáum ekkert í kortunum sem ætti að kalla fram breytingar nema þá hugsanlega hækkanir,“ segir Snorri. „Það má segja að síð- astliðin fjögur ár hafi verðið stöðugt farið lækkandi. Það hefur engan veginn fylgt verðlagsþróun og því fer fjarri. Slátrun á kúm hefur gengið mjög vel á ákveðn- um svæðum og útlit er fyrir að það muni vanta kýr í slátrun. Þessi aukna eftirspurn hlýtur að kalla á verðhækkun.“ Samkvæmt nýrri verðskrá helstu sláturleyfishafa er verðið hjá mörgum þeirra óbreytt frá því í haust. Meðalkílóverð til bænda er 290 krónur og segir Snorri að bændur séu að greiða um 100 krónur með hverju kílói til neyt- enda. „Það er tap í nautakjötsfram- leiðslu og bændur hafa verið að borga með vinnunni sinni. Það sem er að gerast núna er að fram- boðið á nautgripum er að komast í jafnvægi við eftirspurnina. Það eru færri gripir til lifandi í fjós- unum sem fara í slátur og því hef- ur dregið úr framboðinu á mark- aðnum.“ Snorri segir að minna framboð haldist í hendur við fækkun kúa- búa. Þá hafi nautakjötið átt á bratt- ann að sækja gagnvart öðrum kjöt- tegundum. Offramleiðsla á lamba- kjöti, svínakjöti og kjúklingum hafi þrýst verðinu niður. Hann segir að verð á nautakjöti hafi lækkað á undan öðrum tegundum og því séu nautakjötsframleiðendur komnir á undan í þróuninni og framleiðslan komin í meira jafnvægi. „Við væntum þess að þegar jafnvægi verður komið í fram- leiðsluna á lambakjötinu og hvíta kjötinu komist ákveðinn stöðug- leiki á markaðinn. Það mun hjálpa öllum.“ trausti@frettabladid.is Mosfellsbær: Bæjarstjóri vill ekki aug- lýsingar AUGLÝSINGASKILTI Ragnheiður Rík- harðsdóttir, bæjarstjóri í Mos- fellsbæ, vill að áberandi auglýs- ingaskilti við Vesturlandsveg verði fjarlægð. Þó skiltin séu ekki mörg setja þau óneitanlega svip á Mosfellsbæinn þegar ekið er þar í gegn: „Þessi skilti eru lýti á fallegri náttúru og ég vildi helst sjá þau fara,“ segir bæjarstjórinn, sem getur þó lítið aðhafst því samn- ingar um skiltin eru í gildi og bíða verður þess að þeir renni út. Um er að ræða tvö risastór skilti. Annað er á vegum íþrótta- félagsins og notað til fjáröflun- ar fyrir félagið en á hinu hafa um árabil verið auglýstir djúp- steiktir kjúklingar. ■ NAUTGRIPASLÁTRUN VELDUR UPPÞOTUM Hópar hindúa brenndi nær 30 búðir í eigu mús- líma í smábæ á Indlandi. Hindúarnir reiddust fréttum af því að múslímar hefðu slátrað kúm, sem Hindúar telja heilagar. Engir meiddust en skemmdir voru talsverðar. 80 NEMUM RÆNT Maóískir upp- reisnarmenn í Nepal réðust á skóla í vestanverðu landinu og námu 80 stúdenta á brott. Upp- reisnarmenn hafa áður rænt námsmönnum og þjálfað þá til að berjast gegn stjórnvöldum. 7.000 hafa látist í sjö ára átökum við stjórnarherinn. RÆÐIR EKKI VIÐ PAKISTAN Utan- ríkisráðherra Indlands segir að dregið hafi úr starfsemi upp- reisnarmanna í Kasmír. Hann þvertekur þó fyrir að hefja við- ræður við pakistönsk stjórnvöld um framtíð héraðsins. GILDIR UM FLEIRI Á þessum tíma er plöntum eig- inlegt að liggja í dvala. Eva Guðný Þorvaldsdóttir líffræðingur. Morgunblaðið, 15. janúar. TRÚARBRAGÐADEILA Því þótt veðurenglar séu veð- urguðunum til aðstoðar og alls góðs maklegir geta þeir ekki kom- ið í staðinn fyrir veðurguði. Sigurður Þórðarson. Morgunblaðið, 15. janúar. OFBELDISMYND Foreldrum þeirra barna sem ólm vilja sjá Hringadróttinssögu er bent á að hvetja börnin til að lesa söguna. Guðbjörg Hildur Kolbeins bendir á að Hringadróttinssaga er ofbeldisfull mynd og ekki við hæfi barna. Morgunblaðið, 15. janúar. Patreksfjörður: Mjólkurbíll verður brunabíll BRUNAVARNIR Patreksfirðingar hafa breytt mjólkurbíl sínum í brunabíl. Bíllinn er af MAN-gerð, árgerð 1997, og þykir breytingin hafa tek- ist vel. Kom það glöggt fram á fyrstu æfingu brunaliðsins á staðn- um um síðustu helgi þegar kostir og geta nýja brunabílsins voru kannað- ir. Reyndist hann vel og brást ekki vonum bjartsýnustu manna. Bruna- bíllinn er með 8.000 lítra tank og getur dælt 4.200 lítrum á mínútu. Þá getur hann sótt vatn í vatnsból ef þurfa þykir. ■ Áhrifamenn þriggja tryggingafélaga: Ábending um samkeppnisbrot SAMKEPPNI Samkeppnisstofnun hefur borist ábending um að samkeppnislög kunni að hafa verið brotin á fundi sem haldinn var í tengslum við átökin í Ís- landsbanka. Greint var frá fund- inum í greinaflokki Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðinu. Meðal fundarmanna voru Kjart- an Gunnarsson, bankaráðsmaður Landsbankans og þáverandi stjórnarformaður VÍS, Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár-Al- mennra, og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarmaður í Tryggingamiðstöðinni. Þarna voru því saman komnir þrír áhrifamenn í þeim tryggingafé- lögum sem ríkja á íslenskum tryggingamarkaði. Á fundinum var að sögn komið í veg fyrir að nýr eigandi næði yfirráðum í Tryggingamiðstöðinni. Samkeppnisstofnun er að skoða málið. Ef marka má frá- sögnina af fundinum er talið hugs- anlegt að brotin hafi verið ákvæði 10. greinar samkeppnislaga. Ákvæðið tekur á samstilltum að- gerðum til að koma í veg fyrir samkeppni. Samkvæmt upplýs- ingum Samkeppnisstofnunar hef- ur ekki verið tekin nein afstaða til framhalds málsins. ■ BARÁTTA UM TM Samkeppnisstofnun hefur borist ábending um hugsanlegt brot á samkeppnislögum þegar þrír áhrifamenn í tryggingafélögun- um funduðu vegna baráttu um áhrif í Tryggingamiðstöðinni. BLAÐAMENN ÁVARPAÐIR Lögregluyfirvöld í Manchester ávörpuðu blaðamenn á vettvangi eftir að búið var að færa þrjá menn af norður-afrískum upp- runa til yfirheyrslu vegna gruns um morð og aðild að skipulagningu hryðjuverka. ASÍA ORÐRÉTT SLÁTRUN GENGUR VEL Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, segir að slátrun á kúm hafi gengið mjög vel á ákveðnum svæðum og útlit sé fyrir að það muni vanta kýr í slátr- un. Þessi aukna eftirspurn hljóti að kalla á verðhækkun. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Útsala Kringlunni 7, sími 588 4422 Minnst 40% afsláttur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.