Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 36
24 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR JAMES BOND kl. 5 og 8Sýnd kl. , 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 ára Kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 9.30 kl. 8 og 10.05HAFIÐ kl. 10.15GRILL POINT Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.10 Sýnd kl. 6, 8 og 10 GULLPLÁNETAN m/ísl.tali 3.45 VIT498 HARRY POTTER m/ísl.tali kl. 5 VIT 493 HARRY POTTER kl. 6 og 9.15 VIT468 STELLA Í FRAMBOÐI kl. 4, 6, 8, 10.15 VIT468 8 MILE b.i. 16 ára Forsýnd kl. 8 VIT GHOSTSHIP kl. 10.15 VIT487 kl. 6GULLPLÁNETAN m/ísl. tali kl. 8.10 HLEMMUR Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15 Sýnd í lúxus kl. 5.45 og 10.15 Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8, 10.15 VIT 468 FRÉTTIR AF FÓLKI Jarðaför Maurice Gibb, Bee Gees-manns, fór fram í gær í Miami. Aðeins allra nánustu vinir og vanda- menn fylgdu hon- um til hinstu hvílu. Gibb var svo brenndur að eigin ósk. Á meðal stjarna á staðnum voru Michael Jackson og skoska söngkonan Lulu. Poppdrottningunni Madonnu hefurverið skipað að endurhljóðrita nýju breiðskífu sína. Yfirmenn plötufyrirtækis hennar segja hana allt of tilrauna- glaða. Madonna hefur verið að færa sig upp á rafskaftið síðustu misseri, eins og flestir tóku eftir í laginu „Die Another Day“. Yfir- mönnum hennar finnst hún heldur hafa farið yfir strikið í þeim efnum. Þetta var mikið áfall fyrir Madonnu, þar sem henni finnst platan vera sú allra besta sem hún hefur nokkurn tímann gert. Yfirmenn plötufyrir- tækisins segjast sannfærðir um að ef platan verði gefin út eins og Madonna vill hafa hana eigi hún ekki séns á velgengni í megin- straumnum. Nakti kokkurinn Jamie Oliver seg-ir mat í breskum skólum vera í lágum gæðaflokki og setur harðlega út á þau fyrirtæki sem útvega skóla- börnum mat í sjónvarpsþætti sínum. Nokkrir unglingar eru nú í kennslu hjá honum í þættinum og nýtti hann tækifærið til þess að urra á matar- fyrirtækin. Oliver segist vel geta hugsað sér að blanda sér í stjórnmál landsins í framtíðinni. Rapparinn Queen Latifah hefurjátað á sig glæfraakstur. Talið er að hún hafi gert það til þess að forð- ast kærur um ölvunarakstur. Hún var sektuð um 300 dollara og fékk á sig þriggja ára óskilorðsbundinn fangelsisdóm. Hún þarf einnig að taka þátt í 12 klukkustunda meðferð við áfengisdrykkju. KVIKMYNDIR Glókollurinn Marshall Mathers III, eða Eminem eins og heimurinn þekkir hann, á víst margt sameiginlegt með aðalper- sónu myndarinnar „8 Mile“. Það er kannski orðum aukið að segja að söguþráður myndarinnar byggi á atburðum í hans eigin ævi en báðir eru þeir afsprengi hiphop-senunnar í Detriot. „8 Mile“ er vegur sem liggur utan um kjarna borgarinnar. Hringvegurinn aðskilur þannig miðborgina frá úthverfum sín- um. Í hiphop-senunni í Detroit er það víst lykilatriði að vera fædd- ur innan vegarins til þess að vera tekinn alvarlega. Sköpunargleðin er mest innan vegarins en ekki er eins mikið um að vera í úthverf- unum. Fyrir aðalpersónu myndarinn- ar, Jimmy „Rabbit“ Smith jr., táknar vegurinn miklu meira en það. Hann lifir fyrir list sína og dreymir um að brjótast einn dag- inn út úr borginni og upp á stjörnuhimininn. Eins er reyndar með alla félaga hans líka. Vegur- inn táknar þannig landamærin sem hann þarf að brjótast út fyr- ir til þess að eiga möguleika á því að gera drauma sína að veru- leika. Með þessu vill handritshöf- undurinn sýna að sum landamæri eru aðeins til í hugum okkar. Jimmy „Rabbit“ stundar rímnastríð á klúbbnum þar sem allir hæfustu rapparar Detroit reyna að finna höggstað á sjálfi hvors annars. Það er ekkert spar- að og persónulegustu hlutir notað- ir til þess að ná taki á andstæð- ingnum. Þetta er eitthvað sem Eminem þekkir vel enda var hann búinn að taka þátt í slíkum rímna- stríðum lengi áður en spóla hans endaði á bílskúrsgólfi Dr. Dre. Fjölskyldulíf Jimmy „Rabbit“ líkist einnig ævi Eminem. Hann býr með móður sinni og yngri systur. Hann er karlmaðurinn á heimilinu þar sem pabbinn lét sig hverfa skömmu eftir fæðingu kappans. Móðir Jimmy glímir við ýmsa drauga og gæti samband rapparans unga og hennar verið mun betra. Eminem þykir standa sig með prýði í myndinni og hefur þegar verið orðaður við Óskarsverð- launatilnefningu fyrir leik í aðal- hlutverki. Lagið „Lose Yourself“ hefur verið tilnefnd til Golden Globe-verðlauna sem besta lag í kvikmynd. Hvað sem því líður er nokkuð ljóst að uppganga Eminem í dægurheimum er rétt að byrja. biggi@frettabladid.is Van Morrison beðinn afsökunar: Tveggja ára málaferl- um lokið TÓNLIST Tónlistarmaðurinn Van Morrison hefur verið beðinn afsök- unar af konu sem höfðaði mál gegn honum fyrir að reka sig úr starfi á ólögmætan hátt og fyrir að mis- muna sér kynferðislega. Málið, sem staðið hefur yfir undanfarin tvö ár, hefur jafnframt verið látið niður falla. Það var Linda Gail Lewis, 54 ára gömul systir rokkgoðsagnarinnar Jerry Lee Lewis, sem höfðaði mál- ið á sínum tíma. Hún sagði að Morrison hefði rekið sig eftir að hún sagðist ætla að hætta í hljóm- sveit hans eftir að tónleikaferð þeirra lyki. Hún sagði einnig að hann hefði leitað á sig kynferðis- lega án þess að hún óskaði þess. Morrison neitaði ávallt ásökunun- um. Eftir dómsúrskurðinn sagðist hann vera feginn að málinu væri loks lokið. ■ TÓNLIST Worm Is Green heitir ný ogframsækin hljómsveit frá Akranesi. Hún spilar raftónlist af bestu gerð og sýnir það og sannar á fyrstu plötu sinni, „Automagic“, að þar er afar efnileg sveit á ferð. Raf- og danstónlistarmenn þurfa að mínu mati að vera á sí- felldri leit eftir nýjum og spenn- andi hlutum í tónlistarsköpun sinni. Þeir þurfa jafnframt að geta skapað töfrandi stemningu sem hrífur hlustandann með inn í nýj- ar víddir. Ef þetta næst ekki verð- ur oftast nær lítið varið í útkom- una. Á „Automagic“ feta Worm Is Green réttar slóðir með oft á tíð- um heillandi tónum og dálitlum skammti af tilraunamennsku. Platan rennur ljúflega í gegn og þó að lögin séu misgóð eru þau aldrei leiðinleg. Þarna má finna áhrif víðs veg- ar að úr dans- og raftónlistargeir- anum. Þar á meðal svífur andi Aphex Twin hressilega yfir vötn- um auk þess sem áhrifa Bjarkar gætir víða, meðal annars í „Morn- ing Song“. Það er eitt besta lag plötunnar ásamt titillaginu. Freyr Bjarnason WORM IS GREEN: Automagic Töfrar og tilraunamennska VAN MORRISON Tónlistarmaðurinn Van Morrison hefur átt marga smelli í gegnum tíðina, þar á meðal lagið „Brown Eyed Girl“. Á morgun frumsýna Laugarásbíó, Háskólabíó, Sambíóin og Borgarbíó á Akur- eyri fyrstu mynd rapparans Eminem. „8 Mile“ var í efsta sæti bandaríska aðsókn- arlistans í nokkrar vikur og hefur pilturinn verið orðaður við Óskarsverðlaunatil- nefningu fyrir leik sinn. 8 MILE Eminem leikur ungan rapp- ara í Detriot árið ‘95. Piltur- inn losar reiði sína og pirring út í umheim sinn í gegnum rapptexta sem hann keppir svo með í rímnastríðum við aðra pirraða rappara. DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM: Internet Movie Database (imdb) - 7.1/10 Rottentomatoes.com - 74% = Fresh Ebert & Roeper - Tveir þumlar upp Los Angeles Times - 4 stjörnur (af 5) Puð í Detroit

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.