Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 43
FIMMTDAGUR 16. janúar 2002 Atvinna Atvinna í boði Sölufólk óskast. Djammkortið leitar eftir duglegu sölufólki. Áhugasamir hafi samband í tölvupósti djamm- kort@djammkort.is. Rauða Torgið vill kaupa djarfar upp- tökur kvenna. Uppl. og hljóðritun í s. 535 9969. 100% trúnaður. Góðar tekjur. Frjáls vinnutími, hluta- starf, aðalstarf, mjög góð kennsla og þjálfun, sæmileg ensku og tölvukunn- átta nauðsýnleg. Nánari upplýsingar hjá Bjarna í síma 899 1188 Atvinna óskast Óska eftir vinnu, tímab. í ca. 1-2 mán. við nánast hvað sem er (nema símas.), er í vetrarfríi og vantar eitthvað að gera, er lærður smiður, ferðamálafr. og flug- umsjónarm. Endilega hafðu samband. S. 696 1331. 54 ára karlmann vantar vinnu, lærður húsasmiður. Uppl. í síma 567 7901. Viðskiptatækifæri HEFUR ÞÚ... fundið tækifærið sem tryggir framtíð þína og fjölsk. þinnar? Lykillinn: www.fortuneyes.com Tilkynningar Einkamál X-nudd. Ný erótísk nuddstofa. Slökun og nudd. Láttu það eftir þér. Tímapant- anir og uppl. í 693 7385. 1/4 allra fullorðinna er einhleypur og á lausu. Hringdu í 595 5500 (án auka- gjalds) og rabbaðu við aðra einstak- linga. Flestir rabba á kvöldin. 595 5500. Kona: Spennandi karlmenn bíða eftir þér! Auglýstu frítt núna!Stefnumótalína R.T. í síma 555 4321. SPENNANDI VERKEFNI! KVÖLD- OG DAGVINNA Í boði hlutastörf bæði á daginn og á kvöldin. Unnið er við úthringingar og innhringing- ar. Fjölbreytt verkefni. Góðir tekjumöguleikar. Sendu umsókn á vakt- stjorn@skulason.is eða hringdu í s. 575 1500 og biddu um Hörpu. Skúlason ehf www.skulason.is s. 575 1500 ■ Keypt og selt ■ Þjónusta ■ Heilsasmáauglýsingar ■ Skólar & námskeið ■ Tómstundir & ferðalög■ Heimilið■ Bílar & farartæki ■ Húsnæði ■ Atvinna ■ Tilkynningarsími 515 7500 32 170-01 Eiðismýri Grænamýri Kolbeinsmýri 170-01 Suðurmýri Tjarnarmýri Einnig vantar okkur fólk á biðlista Fréttablaðið óskar eftir blaðberum í eftirtalin hverfi Fréttablaðið — dreifingardeild, Þverholti 9, 105 Reykjavík Sími 515 7520 LIZA MINNELLI Er ekki dauð úr öllum æðum þótt þrautreynd sé. Hún mun væntanlega taka að sér hlutverk fyrir Andrew Lloyd Webber. Liza Minnelli: Á leið á Sunset Boulevard FÓLK Söng- og leikkonan Liza Minnelli mun væntanlega taka að sér hlutverk í kvikmyndaútgáf- unni af leikritinu „Sunset Boule- vard.“ Minnelli hefur verið í við- ræðum við tónskáldið Andew Lloyd Webber um að taka að sér hlutverk Normu Desmond. Minnelli átti í harðri baráttu við þungavigtakonur um hlutverkið, þar á meðal Barböru Streisand, Glenn Close og Bette Midler. Fleiri leikkonum mun þó bregða fyrir í myndinni, svo sem Gwyneth Paltrow og Kate Winslet. Minnelli er að undirbúa sig fyr- ir tónleikaferðalag sem nefnist „Liza back“. Hún segir ekkert til í því að hún hafi villst af leið og sé aftur byrjuð að drekka. ■ NEYTENDUR Hvalrengi hefur ekki staðið Íslendingum til boða í langan tíma en fæst nú keypt, eftir tæplega fimmtán ára hlé, í verslunum Nóatúns og verslun- inni Svalbarða á Framnesvegi. Björn Sævarsson, kjötmeistari í Nóatúni, segir hvalrengið koma frá Noregi. „Líkt og áður er það soðið og súrsað í Hval hf. í Hafnarfirði. Þar fundust menn sem ennþá kunnu til verka.“ Björn segir rengið bragðast vel. „Að vísu bragðast þetta ekki eins og í gamla daga. Munurinn liggur í því að rengið nú kemur úr smá- hvelum en kom áður úr stór- hvelum.“ Björn segir átta tonn til af rengi og að kílóið kosti 1.998 krónur. Engar áhyggjur séu um að koma hvalrenginu út. Guðrún Daníelsdóttir, starfs- maður í Svalbarða, segir rengi hafa verið á boðstólum í eitt og hálft. Versluninni hafi áskotnast íslenskt rengi og starfsmenn Svalbarða séð um að sjóða það og súrsa. „Við erum langt komin með okkar birgðir. Fólk hefur komið hingað oftar en einu sinni og keypt sér rengi.“ Aðspurð segir hún kílóaverði á rengi verða 2.800 krónur. ■ Sextán ára gömul dúkka fór á 50 dollara á Netinu: Íslensk Barbie seld á eBay VERSLUN Íslensk Barbie-dúkka var seld á 50 dollara á uppboði á eBay á Netinu í gær. Lágmarks- boð var 25 dollarar. Dúkkan var framleidd árið 1987 eða sama ár og Hólmfríður Karlsdóttir var valin ungfrú heimur. Seljandinn, sem býr í Pottstown, skammt frá Phila- delphia í Bandaríkjunum, segir að dúkkan sé vel með farin og enn í kassanum, sem er skreytt- ur íslensku víkingaskipi. Hin íslenska Barbie er hluti af svokölluðu „Dolls of the World“-safni, sem hóf göngu sína árið 1980. Sú íslenska er að sjálfsögðu afar þjóðleg og klædd upphlut. Hún er í félags- skap sænskrar frænku sinnar sem var framleidd árið 1983 og norskrar sem var framleidd árið 1996. Á þessu ári mun sú danska bætast í hópinn, en hún hefur fram að þessu ekki hlotið náð fyrir augum framleiðenda Barbie. ■ Ian Brown: Í næstu Potter-mynd FÓLK Íslandsvinurinn Ian Brown er orðaður við hlutverk í næstu Harry Potter-mynd. Leikstjóri hennar, Al- fonso Cuaron, er víst mjög hrifinn af tónlistarmanninum og vill fá hann í eitthvert gestahlutverk. Það var eiginkona Browns, Fabiola, sem kynni eiginmann sinn fyrir fram- leiðendum myndarinnar. Myndin heitir „The Prisoner of Azkaban“ og hefjast tökur á henni eftir nokkra mánuði. Ekki er búist við því að hlutverk Browns verði veigamikið og ekki er vitað hvort hann fái að segja eitthvað á hvíta tjaldinu eður ei. Hvernig sem því líður getur hann tjáð sig eins og hann vill á næstu plötu sinni. Brown vinnur við upptökur á henni þessa daganna. Þriðja Harry Potter-myndin verður frumsýnd á næsta ári. ■ HUGAÐ AÐ SKRÚFUNNI Þeir máttu varla við því að líta upp úr starfi sínu, mennirnir sem eru að gera við bát sem liggur uppi á landi í Grindavík. Báturinn hefur legið þarna í þó nokkurn tíma en fær væntanlega brátt að sigla um höfin á ný. HVALRENGI FÆST NÚ KEYPT Guðrún Daníelsdóttir og Hulda Hannibalsdóttir, eigandi Svalbarða, með hvalrengi. FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM Verslanir Nóatúns og Svalbarða: Selja hvalrengi IAN BROWN Mun bregða fyrir í næstu mynd um Harry Potter. ÞJÓÐLEG DÚKKA Hin íslenska Barbie er hluti af svokölluðu „Dolls of the World“-safni. Hún er að sjálf- sögðu afar þjóðleg og klædd upphlut.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.