Fréttablaðið - 16.01.2003, Side 6
6 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 80.01 0.65%
Sterlingspund 127.94 0.15%
Dönsk króna 11.33 -0.04%
Evra 84.2 -0.02%
Gengisvístala krónu 123,88 0,21%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 165
Velta 2.301milljónir
ICEX-15 1.342 -0,07%
Mestu viðskipti
Íslandsbanki hf. 8.785.180.347
Búnaðarbanki Íslands hf. 146.942.173
Kaupþing banki hf. 130.868.639
Mesta hækkun
Vaki-DNG hf. 30,00%
Íslenskir aðalverktakar hf. 4,62%
Opin kerfi hf. 3,54%
Mesta lækkun
Íslenski hugbún.sjóðurinn hf. -3,45%
Líf hf. -3,45%
Marel hf. -2,70%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8726,6 -1,3%
Nasdaq*: 1439,9 -1,4%
FTSE: 3887,8 -1,5%
DAX: 3054,8 -1,4%
Nikkei: 8611,8 0,7%
S&P*: 919,3 -1,3%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Samræming póstburðargjalda:
Pósturinn að sliga fréttabréfin
ÚTGÁFA Samræming á póstburðar-
gjöldum Íslandspósts hefur orð-
ið til þess að mörg félagasamtök
eru að gefast upp á dreifingu
fréttabréfa sinna og sjá ekki
aðra leið en færa sig inn á Netið
eða hætta alfarið útgafu. Það
sama gildir um fjölda héraðs-
blaða á landsbyggðinni. Hækkun
póstburðargjalda vegna frétta-
bréfa og annars sem sent er til
áskrifenda hefur hækkað um
helming og jafnvel meira:
„Gamla gjaldskráin sem átti
sér stoð í lögum gerði það að
verkum að allt að þrefalt ódýr-
ara var að senda fréttabréf heim
til áskrifenda en að bera út bréf.
Þetta stangast á við allar við-
skiptavenjur og samkeppnis-
reglur og þegar lagastoðin hvarf
í mars síðastliðnum áttum við
ekki annars úrkosti en að sam-
ræma gjaldskrána og láta alla
sitja við sama borð,“ segir
Áskell Jónsson, framkvæmda-
stjóri hjá Íslandspósti.
Skólavarðan, fréttabréf
Kennarasambands Íslands, sér
ekki fram á bjarta tíma. Í síðasta
bréfi skrifar Helgi E. Helgason,
upplýsingafulltrúi samtakanna:
„Þessi furðulega ákvörðun Ís-
landspósts veldur því að kostn-
aður við dreifingu Skólavörð-
unnar með óbreyttum hætti
hækkar um 120-300 % eftir
stærð blaðsins.“
Svipaður tónn er í Fréttabréfi
rithöfundasambandsins þar sem
framkvæmdastjóra og formanni
hefur verið falið að kanna leiðir
til að halda útgáfunni áfram án
þess að hún verði sambandinu
ofviða. Og hjá Bandalagi há-
skólamanna eru menn ekki
bjartsýnir: „Haldi Íslandspóstur
fast við sitt er ljóst að endur-
skoða þarf útgáfu blaðsins,“ seg-
ir í pistli frá ritstjóra BHM tíð-
inda. ■
Sprengju varpað fyrir mistök:
Flugmennirnir á örvandi lyfjum
LOUSIANA, BANDARÍKJUNUM, AP Tveir
bandarískir orrustuflugmenn sem
vörpuðu sprengju á kanadískt
hermannvirki í Afganistan fyrir
mistök höfðu tekið amfetamín
áður en þeir fóru í loftið. Yfir-
menn þeirra hjá flughernum
höfðu afhent þeim lyfin til þess að
hjálpa þeim að halda sér vakandi.
Þetta kom fram í málflutningi lög-
manns flugmannanna þegar þeir
voru leiddir fyrir herrétt í Banda-
ríkjunum á dögunum.
Fjórir kanadískir hermenn létu
lífið af völdum sprengjunnar og
hafa orrustuflugmennirnir tveir
meðal annars verið ákærðir fyrir
manndráp af gáleysi og van-
rækslu í starfi. Lögmaðurinn
heldur því fram flugmönnunum
til málsvarnar að lyfið hafi slævt
dómgreind þeirra og orðið til þess
að þeim láðist að ganga úr skugga
um að engir hermenn úr röðum
bandamanna væru á svæðinu. ■
HEILBRIGÐISMÁL Sýklalyfjanotkun
minnkaði hér á landi um þriðjung
á árunum 1993 til 1998. Þrefalt
fleiri börn með eyrnabólgu fá rör
í eyru hér á landi en þekkist ann-
ars staðar í heim-
inum og fá þau
ekkert síður sýkla-
lyf en börn sem
ekki eru með rör.
Þetta kemur
fram í rannsókn
sem læknarnir,
Vilhjálmur Ari
Arason, Jóhann
Ágúst Sigurðsson, Karl G. Krist-
insson, Aðalsteinn Guðmundsson,
Helga Erlendsdóttir og Sigurður
Guðmundsson hafa gert og birt í
þekktum læknaböðum.
Að sögn Vilhjálms A. Arasonar
læknis var rannsóknin gerð til að
kanna hvort árangur hefði náðst í
að minnka mikla sýklalyfjanotkun
barna, einkum vegna eyrnabólgu.
„Í ljósi þess hve há tíðni röra í
eyru er hér má spyrja hvort það
úrræði er ekki ofnotað hér á landi
þar sem ein aðalástæða þess að
rörum er komið fyrir í eyrum
barna er að minnka tíðni bráða-
eyrnabólgu og sýklalyfjanotkun.“
segir Vilhjálmur.
Hann bendir á að mikill ávinn-
ingur hafi náðst meðal heimilis-
lækna í að fækka sýklalyfjaávísun-
um en komið hafi í ljós að það fari
saman þekking foreldra á skað-
semi þeirra og hvort læknir ávísar
sýklalyfi. Eftir því sem þekking
foreldra er meiri, því minni líkur
eru á því að læknirinn ávísi sýkla-
lyfjum.
Vilhjálmur segir að bakteríur
sem valda eyrnabólgu og öðrum
sýkingum í öndunarfærum hafi í
vaxandi mæli orðið ónæmar fyrir
sýklalyfjum, einkum pneumókokk-
um sem bárust hingað til lands um
1990 og fjölgaði ört fyrst á eftir. „Á
undanförnum árum hefur tekist
að snúa þeirri þróun við. Þennan
árangur ber að þakka aðgerðum
lækna og heilbrigðisyfirvalda
sem hafa hvatt til aðhalds í notk-
un sýklalyfja, ekki síst þegar um
er að ræða vægari gerðir af
eyrnabólgu barna. Aðhald í sýkla-
lyfjaávísunum lækna er enn mik-
ilvægara þegar um er að ræða
vægar sýkingar sem geta læknast
af sjálfu sér, því þá getur ávinn-
ingurinn verið tvíræður ef á móti
kemur vaxandi ónæmi þessara
bakteríustofna,“ segir Vilhjálmur
A. Arason.
bergljot@frettabladid.is
STUND MILLI STRÍÐA
Indónesískir lögreglumenn taka sér pásu
og horfa á eld sem námsmenn hafa kveikt
í mótmælum sínum gegn verðhækkunum.
Verðhækkanir í
Indónesíu:
Mótmæla
daglega
JAKARTA, AP Verðhækkanir á elds-
neyti, rafmagni og símaþjónustu
hafa valdið mikilli reiði í
Indónesíu. Fjölmenn mótmæli
hafa átt sér stað í nokkrum helstu
borgum landsins undanfarna daga.
Í gær gripu lögreglumenn til þess
ráðs að skjóta aðvörunarskotum til
að dreifa mótmælendum sem réð-
ust að flokksskrifstofum stjórnar-
flokksins í einni héraðshöfuðborga
landsins.
Almenningur hefur krafist þess
að verðhækkanir upp á sex til 22%
verði teknar til baka en stjórnvöld
segjast ekki hafa nokkur áform
um það. Hækkununum er ætlað að
stoppa upp í fjárlagahallann. ■
Nautakjöt á
alþjóðamarkaði:
Samdráttur
í framleiðslu
LANDBÚNAÐUR Útlit er fyrir minnk-
andi framleiðslu á nautakjöti í
heiminum á þessu ári, en vaxandi
neyslu, samkvæmt alþjóðlega
greiningarfyritækinu GIRA.
Í Evrópu hefur neyslan minnkað
mjög mikið undanfarin ár vegna
kúariðufársins. Gert er ráð fyrir því
að innan landa Evrópusambandsins
muni nautakjötsframleiðslan drag-
ast saman um 1%, en neyslan
aukast um 1,5%. Samkvæmt þessu
er útlit fyrir að verð til bænda
hækki um nærri 4%. ■
Þungaðar konur:
Fita hættu-
leg fóstrinu
HEILSA Nýleg bresk rannsókn gef-
ur til kynna að konur sem borða
fituríka fæðu á meðan á með-
göngu stendur geti aukið líkurn-
ar á því að börn þeirra fái hjarta-
sjúkdóma síðar á lífsleiðinni.
Sérfræðingarnir sem fram-
kvæmdu rannsóknina notuðu
rottur sem þeir ólu á fæðu svip-
aðri fituríkum skyndibitamat. Í
ljós kom að ungar rottanna voru
mun líklegri til þess að þess að fá
hjarta- og æðasjúkdóma en eðli-
legt er.
Niðurstöður rannsóknarinnar
þykja afar sláandi þar sem fitu-
rík fæða nýtur mikilla vinsælda
meðal þungaðra kvenna í hinum
vestræna heimi. ■
Lögbanni aflétt:
Skildi ekki
eigið vottorð
DÓMSTÓLAR Dómstóll í New York
hefur aflétt lögbanni sem Jóhannes
Jónsson í Bónus fékk sett á sölu
lystisnekkjunnar Thee Viking.
Jóhannes og Jón Ásgeir sonur
hans telja sig hafa fjármagnað
kaupin á bátnum á sínum tíma að
hluta gegn því loforði Jóns Geralds
Sullenbergers að þeir fengju hluta-
bréf í eignarhaldsfélagi um bátinn.
Lögbannið sem sett var á söluna
mun hafa verið byggt á vottorði
sem Jóhannes gaf út. Dómstóllinn í
New York segir að þar sem í ljós
hafi komið að Jóhannes skilji ekki
það sem fram komi á vottorðinu,
sem ritað er á ensku, geti lögbannið
ekki byggt á því. ■
Prestur í Noregi ákærður:
Safnaði
barnaklámi
TROMS, NOREGI Prestur í bænum
Troms í Noregi hefur verið ákærð-
ur fyrir að hafa undir höndum
3560 myndir sem skilgreindar
hafa verið sem barnaklám, að því
er fram kemur í norskum fjölmiðl-
um. Ákæra hefur einnig verið gef-
in út á hendur manninum fyrir að
hafa leitað á tíu ára gamlan dreng.
Prestinum var vikið úr embætti
um leið og upp komst um málið en
grunsemdir um háttalag hans
vöknuðu þegar nágrannarnir tóku
eftir því að hann var ítrekað heim-
sóttur af ungum drengjum.
Myndirnar fundust í tölvu
prestsins og hefur hann játað að
hafa sýnt þær börnum auk þess að
hafa látið þau horfa á klámmyndir.
Presturinn hefur aftur á móti
þvertekið fyrir að hafa nokkurn
tíma leitað á eða misnotað með
öðrum hætti barn undir lögaldri. ■
Akranes:
Engir
tvíburar
FÆÐINGAR Fæðingum á Akranesi
fækkaði á síðasta ári miðað við
árið á undan. Í
fyrra fæddust
alls 158 börn á
S j ú k r a h ú s i
Akraness, 94
strákar og 64
stelpur. Er það
breyting frá
fyrri árum þeg-
ar hlutfall kynj-
anna var miklu
jafnara. Athygl-
isvert er að á síðasta ári fæddust
engir tvíburar á Akranesi og þyk-
ir það með eindæmum. ■
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 34
1.
2.
3.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra og Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra kepptust
um fyrsta sætið í Norðaustur-
kjördæmi fyrir skömmu. Hvort
hafði betur?
Forseti Rússlands er sagður
væntanlegur til Íslands á kom-
andi hausti. Hvað heitir hann?
Bandarískur rappari vann til
fernra verðlauna á Bandarísku
tónlistarverðlaununum í Los
Angeles. Hver var það?
TVÍBURAR
Engir slíkir fæddust á
Akranesi í fyrra.
RÖR Í EYRU MUN ALGENGARI HÉR
Spyrja má hvort það úrræði að koma röri
fyrir í eyra barna með eyrnabólgu sé ekki
ofnotað hér á landi.
Eftir því sem
þekking for-
eldra er meiri,
því minni líkur
eru á því að
læknir ávísi
sýklalyfjum.
Sýklalyfjanotkun
meðal barna minnkar
Rannsókn sýnir að tekist hefur að minnka sýklalyfjanotkun meðal
barna um þriðjung. Á hinn bóginn eru rör í eyru notuð mun oftar hér
en þekkist annars staðar.
ORRUSTUFLUGMENN LEIDDIR FYRIR RÉTT
Flugmaðurinn Harry Schmidt gengur út úr réttarsalnum ásamt konu sinni. Verði hann
fundinn sekur af öllum ákæruatriðum á hann yfir höfði sér allt að 64 ára fangelsi.
AP
M
YN
D
/A
C
H
M
AD
I
B
R
AH
IM