Fréttablaðið - 16.01.2003, Side 10
10 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
LANDBÚNAÐUR
Kaupmannahöfn:
Róm á 3.000
krónur
FERÐIR Mikið fargjaldastríð geisar
nú á milli ferðaskrifstofa og flugfé-
laga í Kaupmannahöfn sem kristall-
ast í tilboðum um ferðir til Rómar
og Mílanó fyrir aðeins rúmar 3.000
íslenskar krónur. Þá er hægt að
komast til London fyrir 2.000 krón-
ur. Kanaríeyjaferð kostar svo um
7.000 krónur. Samkvæmt fréttum
Ekstrabladet mun sætaframboð á
þessu verði vera takmarkað og að
stórum hluta auglýsingaskrum sem
erfitt er að festa hendur á. Far-
gjaldastríðið geisar hins vegar af
fullum krafti og tekur á sig nýjar
myndir frá degi til dags í gömlu
höfuðborginni við sundið. ■
SAMGÖNGUR „Salan er langt um-
fram áætlanir. En vegna sam-
keppnissjónarmiða gefum við
þær tölur ekki upp að sinni,“ seg-
ir Ólafur Hauksson, talsmaður
Iceland Express, sem býður flug-
miða til Kaupmannahafnar og
London á áður óþekktu verði.
Fyrsta ferðin verður farin í
næsta mánuði:
„Til þessa höfum við orðið
varir við meiri áhuga viðskipa-
vina okkar á flugsætum til Kaup-
mannahafnar en London þó ekki
muni miklu. Nær því allir far-
seðlar sem við höfum selt til
þessa hafa verið í lægsta far-
gjaldaflokki og enn er nóg til,“
segir Ólafur en lægsti fargjalda-
flokkurinn er rúmar 14 þúsund
krónur. Næstlægsti flokkurinn er
hins vegar 19 þúsund krónur.
„Svo getur fólk blandað þessu
saman, fengið lægsta fargjaldið
út og það næstlægsta heim þan-
nig að möguleikarnir eru marg-
ir,“ segir hann.
Iceland Express lofar að 40
prósent af árlegu sætaframboði
verði boðin á lægsta fargjaldi. Í
væntanlegu flugi félagsins til
London verður lent á Stanstead-
flugvelli en hann er rétt utan við
London en tengdur henni með
hraðlest sem er 42 mínútur inn í
borgina. Í Kaupmannahöfn er
hins vegar lent á Kastrup-flug-
velli, sem í dag heitir Copen-
hagen Airport. ■
RAGNHEIÐUR RÍKHARÐSDÓTTIR
Meiri umferð og fleiri slys á Vesturlands-
vegi en á Reykjanesbraut.
Bæjarstjórinn í
Mosfellsbæ óánægður:
Reykjanes-
braut seld
sem slysa-
braut
UMFERÐ „Mér finnst þessi for-
gangsröð óskiljanleg. Reykjanes-
braut hefur verið seld sem slysa-
braut en það höfum við aldrei gert
við Vesturlandsveginn,“ segir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæj-
arstjóri í Mosfellsbæ, um tvöföld-
un Reykjanesbrautar, sem veldur
því að Vesturlandsvegur situr á
hakanum og verður einfaldur enn
um hríð. Þar er um að ræða kafl-
ann frá Víkurvegamótum við
Grafarholt og upp að hringtorginu
fyrir neðan Lágfell þar sem ekið
er inn í Mosfellsbæ: „Þó sýna töl-
ur okkur að bæði umferð og slysa-
tíðni á þessum kafla er meiri en á
Reykjanesbrautinni,“ segir bæj-
arstjórinn en um Vesturlandsveg-
inn fara um 18 þúsund bílar á sól-
arhring á móti 7 þúsund bílum á
Reykjanesbraut. Þá er slysatíðnin
á Vesturlandsvegi 0,33 prósent af
ekinni umferð en 0,29 á Reykja-
nesbraut. Þó er bæjarstjórinn
vongóður: „Ég trúi því að þessi
spotti Vesturlandsvegar verði tvö-
faldaður á næsta ári. En við hefð-
um átt að hafa forgang,“ segir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir. ■
Bíræfinn þjófur:
Sneri aftur
eftir fjarstýr-
ingunni
MOSKVA, AP Það eru ekki allir þjóf-
ar jafn bíræfnir og maðurinn sem
gekk inn í raftækjaverslun í rúss-
nesku borginni Vladimir og
heimtaði ábyrgðarskírteini, fjar-
stýringu, loftnet og leiðbeininga-
bækling við sjónvarpið sem hann
hafði stolið úr versluninni
nokkrum dögum áður.
Maðurinn hafði tekið sjónvarp-
ið úr hillu verslunar og gengið út
með það án þess að nokkur fengi
hönd við reist. Lögregla gerði sér
litlar vonir um að ná manninum
þar til hann sneri aftur í verslun-
ina nokkrum dögum síðar og
kvaðst vera óánægður viðskipta-
vinur sem hefði fengið lélega
þjónustu. Forviða afgreiðslufólkið
kannaðist við manninn og hringdi
á lögreglu. ■
FERÐAMÁL Gistinætur á hótelum á
höfuðborgarsvæðinu í nóvember
voru 16% færri en á sama tíma
árið 2001. Í nóvember síðastliðn-
um töldust gistinætur vera 33.765
en árið 2001 voru þær 40.166.
Hagstofan telur að rekja megi
þennan samdrátt að hluta til þess
að Hótel Esja er nú lokuð vegna
framkvæmda og minnkar því
gistirými á höfuðborgarsvæðinu
um 106 herbergi og 212 rúm.
Á Suðurnesjum, Vesturlandi og
Vestfjörðum fækkaði gistinóttum
samtals um tæp 16%. Þar voru
gistinætur 3.177 í nóvember síð-
astliðnum en árið á undan voru
þær 3.778. Þess má þó geta að
gistirými á þessu svæði hefur
minnkað milli ára um 42 rúm.
Gistinóttum á Norðurlandi
vestra og eystra fækkaði um rúm
3% milli ára. Gistinæturnar voru
2.961 í nóvember árið 2001 en
töldust 2.859 síðastliðinn nóvem-
ber. Á milli ára hefur hótelum á
Norðurlandi fjölgað um eitt og
rúmum um 105.
Eins og flesta aðra mánuði árs-
ins fjölgar gistinóttum á Suður-
landi. Þær voru 3.142 í nóvember
2001 en töldust 4.212 í nóvember
sl., en það er aukning um rúm
34%. Fjölgunin á bæði við um ís-
lenska og erlenda hótelgesti.
Gististöðum á Suðurlandi fjölgaði
um 4 á milli ára og rúmum um
303.
Nú fjórða mánuðinn í röð hafa
skil á gistiskýrslum ekki verið
nægjanleg fyrir Austurland. Hag-
stofa Íslands getur því hvorki birt
tölur fyrir Austurland né heildar-
tölur fyrir landið. ■
SJÁVARÚTVEGUR Heildarafli ís-
lenskra skipa á árinu 2002 nemur
alls 2.129.293 tonnum, samkvæmt
upplýsingum frá Hagstofu Ís-
lands. Þetta er tæplega 143.000
tonnum meiri afli en árið 2001.
Aðeins einu sinni áður hefur
heildarafli íslenska fiskveiðiflot-
ans orðið meiri, en það var á árinu
1997 þegar 2.199.111 tonn veidd-
ust.
Heildarafli botnfisktegunda er
reiknaður rúmlega 448 þúsund
tonn, sem er aflaaukning um 9.400
tonn. Uppsjávarafli ársins 2002 er
1.591.828 tonn, flatfiskaflinn
35.183 tonn og skel- og krabba-
dýraaflinn 53.892 tonn.
Milli desembermánaðar 2001
og 2002 dregst verðmæti bráða-
birgðafiskaflans saman, á föstu
verði ársins 2000, um 7,4% en
milli áranna 2001 og 2002 eykst
aflaverðmætið, á föstu verði árs-
ins 2000, um 2,5%.
Fiskaflinn í nýliðnum desem-
bermánuði var 99.959 tonn saman-
borið við 91.877 tonn í desember-
mánuði árið 2001 og er þetta
aukning um alls 8.082 tonn eða
tæp 9%.
Botnfiskafli var 29.611 tonn
samanborið við 31.380 tonn í des-
embermánuði 2001, sem er tæp-
lega 1.800 tonna samdráttur á
milli ára. Þorskafli dregst saman
um tæplega 2.000 tonn á milli ára.
Um 18.390 tonn veiddust í desem-
ber 2002 samanborið við 20.376
tonn í desember 2001.
Af flatfiski bárust 1.665 tonn á
land en í desembermánuði 2001
veiddust 2.178 tonn og dregst flat-
fiskaflinn því saman um 514 tonn
á milli ára. Skel- og krabbadýra-
afli var 2.707 tonn, sem er 605
tonnum minni afli en í desember
2001.
Af loðnu veiddust tæplega
47.600 tonn, sem er aukning um
tæplega 32.000 tonn frá desem-
bermánuði 2001. Af síld veiddust
rúmlega 18.400 tonn, sem er
10.000 tonnum minni afli en
fékkst í desember 2001. Enginn
kolmunni barst á land í nýliðnum
desembermánuði en kolmunna-
aflinn nam tæplega 11.000 tonn-
um í desember 2001.
trausti@frettabladid.is
Hart barist:
Þúsundir
flýja átök
BUJUMBURA, BÚRÚNDÍ, AP Hjálpar-
starfsmenn í Búrúndí segja að
um 30.000 manns hafi flúið heim-
ili sín í tveimur héruðum Afríku-
ríkisins Búrúndí vegna harðra
bardaga milli stjórnarhersins og
tveggja hópa uppreisnarmanna.
Vopnahlé tók gildi um síðustu
áramót en bardagar brutust út á
nýjan leik viku síðar.
Stjórnarhernum er að mestu
stjórnað af tútsum en uppreisn-
armenn koma úr hópi hútúa. Átök
milli þessara ættbálka hafa verið
tíð undanfarna áratugi, bæði í
Búrúndí og nágrannaríkinu Rú-
anda. Tútsar eru í minnihluta í
Búrúndí en hafa farið með völdin
nær allan tímann frá því landið
fékk sjálfstæði 1962. ■
LOTTÓ
Stendur undir sér sjálft.
Íslensk getspá:
Aldrei undir
3 milljónum
GETRAUNIR Íslensk getspá hefur
hækkað lágmarksvinningsupp-
hæð í Lottóinu úr tveimur millj-
ónum í þrjár. Vinningur vikunnar
getur því aldrei orðið lægri:
„Upphaflega tryggðum við að
fyrsti vinningur yrði aldrei lægri
en tvær milljónir og bættum því í
sjálfir ef salan stóð ekki undir
þeirri upphæð. Þessi lágmarks-
upphæð er nú þrjár milljónir og
það gleðilega er að nú stendur
salan fyllilega undir þeirri vinn-
ingsupphæð,“ segir Bergsveinn
Sampsted, framkvæmdastjóri Ís-
lenskrar getspár.
Lottóvinningur síðustu helgar
var 3,2 milljónir króna en hann
gekk ekki út og því verður hann
enn tvöfaldur næst: „Við gerum
ráð fyrir að fyrsti vinningur um
næstu helgi verði um sjö milljón-
ir króna. Þá tekur fólk kipp,“ seg-
ir Bergsveinn. ■
Roksala hjá Iceland Express:
Meiri áhugi á Kaupmannahöfn
KAUPMANNAHÖFN
Fleiri vilja þangað en til London.
Gistinóttum fjölgar um 34% á Suðurlandi:
Færri gista á höf-
uðborgarsvæðinu
HÓTEL ESJA
Samdrátt í gistinóttum á hótelum á höfuð-
borgarsvæðinu má að hluta til rekja til
þess að Hótel Esja hefur verið lokuð vegna
framkvæmda.
Aflaverðmæti
flotans eykst
TÆP 100 ÞÚSUND TONN VEIDDUST Í DESEMBER
Fiskaflinn í nýliðnum desembermánuði var 99.959 tonn samanborið við 91.877 tonn í desembermánuði árið 2001 og er þetta
aukning um alls 8.082 tonn eða tæp 9%.
Heildarafli íslenska fiskveiðiflotans var 2.130.000 tonn árið 2002.
Aflinn hefur aðeins einu sinni verið meiri, en það var árið 1997.
Heildarafli botnfisktegunda var 448.000 tonn og eykst milli ára.
ÚTRÁS KS Á SAUÐÁRKRÓKI Eftir
miklar endurbætur hefur slátur-
hús KS á Sauðárkróki fengið leyfi
til að slátra fyrir Evrópumarkað.
Ágúst Andrésson sláturhússtjóri
segir í Bændablaðinu mikil tæki-
færi vera á evrópskum mörkuð-
um.
Meðalvöxtur þjóðartekna eftir tíma-
bilum frá árinu 1975 til ársins 2000.
1975-1980
6,1%
1980-1985
1,9%
1985-1990
3,1%
1990-1995
0,5%
1995-2000
5,0%
SVONA ERUM VIÐ
Meðalvöxtur
þjóðartekna
Heimild: Hagstofa Íslands.