Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.01.2003, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 16.01.2003, Qupperneq 15
15FIMMTUDAGUR 16. janúar 2003 Laugavegi 13. Sími: 511 1185 | Brautarholti 2. Sími: 520 7605 VIÐ ELSKUM TÓNLIST... ÞÚ ELSKAR VERÐIÐ! RISAÚTSALA ALLT AÐ 90% AFSLÁTTUR FULLT AF NÝJUM TITLUM Á FRÁBÆRU VERÐI. FJÖLBREYTT ÚRVAL AF KLASSÍSKRI TÓNLIST Í VERSLUNINNI Á LAUGAVEGI. Tap á rekstri flugvalla: Ljósin slökkt til að spara FLUGVELLIR Slökkt verður á að- flugshallaljósum á flugvöllunum á Patreksfirði og á Raufarhöfn í sparnaðarskyni: „Það var 30 milljóna króna tap á rekstri flugvalla á landinu á síð- asta ári og með þessu erum við að reyna að vinna upp það tap,“ segir Heimir Már Pétursson, upplýs- ingafulltrúi Flugmálastjórnar, sem sinnir viðhaldi og eftirliti með völlunum. „Reyndar er ekki lengur áætlunarflug til Patreks- fjarðar og þessi ljós eru á flug- velli handan fjallsins, á Bíldudal. Að auki hafa ljósin á flugvellinum á Patreksfirði verið biluð um margra mánaða skeið“. Vegna þess hversu dregið hef- ur úr áætlunarflugi til margra minni staða á landsbyggðinni leit- ar Flugmálastjórn nú leiða til að nýta þær húseignir sem stofnunin á við flugvelli víða um land. Oft ágætar byggingar sem lítið gagn er af. Þegar hefur verið gengið til samninga við Vegagerðina um að hún taki yfir rekstur flugstöðvar- byggingarinnar á Húsavík og verður sá kostur reyndur víðar ef unnt reynist. ■ Fjölbrautaskólar: Gjald fyrir fjarnám hækkar MENNTAMÁL Gjald fyrir fjarnám til stúdentsprófs hækkaði umtalsvert um áramótin. Sölvi Sveinsson, skólameistari við Fjölbrautaskól- ann Ármúla, segir ástæðuna vera þá að þeim sem eru í námi í öldunga- deild annars vegar og fjarnámi hins vegar sé ekki mismunað. „Þeir sem sótt hafa í fjarnám hefur fjölgað mjög síðan við hófum tilraun með það fyrir einu og hálfu ári. Í byrjun greiddu þeir aðeins innritunargjald en við fengum heimild frá mennta- málaráðuneytinu til að hækka það. Ástæðan var sú að helmingur þeirra sem stundaðu námið voru komnir yfir tvítugt og ekki skráðir í skóla. Mismununin fólst í því að ekki var réttlátt að þeir sem sæktu nám í öld- ungadeild þyrftu að greiða hærra gjald,“ segir Sölvi. Hann segir að þeir sem séu und- ir tvítugu og skráðir í skóla greiði aðeins innritunargjald. Komið hafi í ljós við könnun að mjög margir sæktu í fjarnámið úr öðrum skólum. „Það eru bæði þeir sem vilja bæta við sig einingum og eins þeir sem eiga ekki kost á faginu í sínum skóla.“ Sölvi nefnir sem dæmi að nem- anda sem skráir sig í níu eininga fjarnám sé gert að greiða fyrir það tæpar 25 þúsund krónur á önn og hækki gjaldið um tvö þúsund krón- ur fyrir hverja einingu. Hann bend- ir á að það megi gera ráð fyrir að flestir sem sæki fjarnám séu í vinnu en hefðu að öðrum kosti sótt nám í öldungadeild og greitt þar fullt gjald. ■ LÖGREGLUFRÉTTIR NÁÐIST MEÐ ÞÝFIÐ Brotist var inn í Tækniháskólann í Reykjavík í fyrrinótt og raftækjum stolið. Nokkru síðar stöðvaði lögreglan ökumann á mótum Vesturlandsveg- ar og Hálsabrautar. Í bíl hans fannst skjávarpi og tölvubúnaður. Var þá komið í ljós þýfið úr Tækni- háskólanum. Maðurinn var hand- tekinn og yfirheyrður í gær. ELDUR Í BÍLSKÚR Eldur kom upp í bílskúr við íbúðarhús við Sogaveg í Reykjavík í fyrra- kvöld. Skúrinn skemmdist mik- ið auk timburs sem í honum var geymt. Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins var kallað á vettvang og náði það að slökkva eldinn og hindra að hann bærist í íbúð- arhúsið. HEIMIR MÁR PÉTURSSON Tapið 30 milljónir - þarf að vinna upp. HEFÐU AÐ ÖÐRUM KOSTI ÞURFT AÐ SÆKJA NÁM Í ÖLDUNGADEILD Hækkun var heimiluð til að mismuna ekki þeim sem þangað sækja nám. Þeir sem eru undir tvítugt greiða eftir sem áður aðeins innritunargjald.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.