Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.01.2003, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 16.01.2003, Qupperneq 27
Fyrir björt heimili - gluggar úr áli og tré Dönsk hönnun og hugvit eru trygging fyrir gæðum. Húsasmiðjan býður viðskiptavinum sínum glugga og hurðir frá Ideal Combi í Danmörku. Gluggarnir fást í ýmsum útfærslum, tvær tegundir af ál-/trégluggum og einnig hinir hefðbundnu trégluggar. Öll framleiðsla kemur fullunnin frá verksmiðju, gluggarnir er málaðir og glerjaðir og búið er að ganga frá opnanlegum fögum og hurðum í karma. Gluggarnir koma ekki í stöðluðum stærðum svo að allir viðskiptavinir ættu að geta fengið stærð og útlit sem hentar hverju sinni. 9 Pýþagóríski heimspekingurinn Achytas frá Tarentum, sem var uppi á fimmtu öld fyrir Krist, er talinn hafa fundið upp skrúfuna. Upphaflega voru þær notaðar í vín- og ólífupressur. Almenningur tók skrúfur ekki í notkun fyrr en fjórum öldum síðar og voru þær gerðar úr tré. Járnskrúfur (með beinu spori) komu ekki til sögunnar fyrr en á 15. öld. Bandaríkjamað- urinn David Wilkinson var fyrstur manna til að fjöldaframleiða járnskrúfur árið 1789. Viðskiptamaður frá Portland, Henry F. Phillips að nafni, fann upp stjörnuskrúfuna árið 1936. Hann vissi að bílaframleiðendur þurftu á skrúfum að halda sem mættu við meira átaki en þær hefðbundnu. Stjörnu- skrúfur eru til í ýmsum tegundum og fyrir mismunandi verk. Smiðir eru þó flestir hættir að nota stjörnu- skrúfur og hafa þess í stað tekið upp sex- hyrndar torx skrúfur. Torx skrúfurnar koma upphaflega frá Banda- ríkjunum. Þær komu fyrst í Húsasmiðjuna árið 1996 og varð Ísland þar meðal fyrstu Evrópulanda til að taka þær í notkun. Saga skrúfunnar

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.