Fréttablaðið - 16.01.2003, Page 33
21FIMMTUDAGUR 16. janúar 2003
KVIKMYNDIR Leikarinn George
Clooney er nú farinn að leggja
drög að framhaldsmynd „Ocean’s
Eleven“ ásamt leikstjóranum
Steven Soderbergh sem gerði með
honum fyrstu myndina. Myndin
kemur til með að heita „Ocean’s
Twelve“ og talið er að leikarahóp-
ur fyrri myndarinnar, sem inni-
hélt meðal annars Brad Pitt, Juliu
Roberts, Matt Damon og George
Clooney, muni stíga aftur í hlut-
verk sín í myndinni.
Tökur á myndinni hefjast á
næsta ári og er búist við frumsýn-
ingu árið eftir það. Höfundur
handrits er George Nolfi.
Fyrri myndin var unnin upp úr
mynd með sama nafni frá árinu
1960. Þar fóru allir helstu leik-
menn Rottugengisins svokallaða,
Frank Sinatra, Dean Martin og
Sammy Davis Jr., með aðalhlut-
verk.
Endurgerðin halaði rúmlega 14
milljarða króna í kassann. Slík
velgengni ætti að fá menn til þess
að hugsa sig tvisvar um að endur-
skoða gerð framhaldsmyndar. ■
Framhaldsmynd Ocean’s Eleven:
Bófarnir bæta í hópinn
OCEAN’S TWELVE
Talið er að allur leikarahópur Ocean’s
Eleven komi til með að snúa aftur í
framhaldsmyndinni.
GEORGE LUCAS
Kvikmyndagerðarmaðurinn George Lucas,
skapari Stjörnustríðsheima, brosti sínu
breiðasta er hann mætti til hátíðar banda-
rískra gagnrýnenda á þriðjudagskvöldið í
New York. Nú eru sögusagnir á kreiki um
að Lucas ætli sér að gera annan Star Wars-
þríleik að þessum loknum. Hann myndi þá
halda áfram sögunni eftir atburði sem eiga
sér stað í „Return of the Jedi“.
SÉRSTÆÐUR BRÚÐARKJÓLL
Þessi sérstæði brúðarkjóll var til sýnis á
tískusýningu sem haldin var í Hong Kong
nýverið. Tíu tískuhönnuðir frá Tævan sýndu
þar nýjustu afurðir sínar. Hönnuðurinn
Liang Jung-chen á heiðurinn af brúðar-
kjólnum óvenjulega.
EMINEM
Ljósmyndir af Eminem verður meðal ann-
ars að finna á sýningunni sem hefst í
Lundúnum á morgun.
Ljósmyndasýning
í Lundúnum:
100 áhrifa-
mestu hip-
hoppararnir
TÓNLIST Ljósmyndir af hljómsveit-
um og tónlistarmönnum úr hip
hop-geiranum á borð við Eminem,
Public Enemy og Run DMC verða
til sýnis á ljósmyndasýningu sem
hefst í Lundúnum á morgun. Sýn-
ingin kallast „Hip Hop Immortals
Volume One“ og stendur yfir í sex
vikur.
Myndir af 100 áhrifamestu hip
hop-tónlistarmönnum heimsins
voru valdar í sýninguna. Meðal
annars verða þar til sýnis ljós-
myndir eftir breska ljósmyndar-
ann Jennie Baptiste. ■
KVIKMYNDIR Leikarinn Tom Cruise
er staddur um þessar mundir í
Nýja-Sjálandi vegna nýjustu kvik-
myndar sinnar, „The Last
Samurai“, sem tekin verður upp
víðs vegar um landið.
Á myndinni má sjá Cruise
framkvæma „hongi“, sem er hefð-
bundin kveðja Maóra, ásamt hinni
innfæddu Wahire. Kveðja var
hluti af „Powhiri“ sem er athöfn
sem haldin er til að bjóða nýja
gesti velkomna til Nýja-Sjálands.
Skömmu síðar var haldinn blaða-
mannafundur til að kynna mynd-
ina. ■
Heidi Fleiss semur:
Hóru-
mamma á
hvíta tjaldið
KVIKMYNDIR „Hórumamman frá
Hollywood“, Heidi Fleiss, hefur
gengið frá samningi við kvik-
myndafyrirtækið Paramount um
að gerð verði mynd sem byggð
verður á lífshlaupi hennar. Mynd-
in mun kallast „Pay the Girl“ og
eru líkur taldar á því að Nicole
Kidman farið með aðalhlutverkið.
Fleiss, sem útvegaði ríkustu
mönnum gleðikonur, er nýkomin
úr fangelsi. Hún afplánaði þriggja
ára dóm fyrir peningaþvott, skatt-
svik og tilraun til hórmangs. ■
Tom Cruise á Nýja-Sjálandi:
Tökur á Síðasta Sam-
úræjanum að hefjast
HONGI
Cruise og Wahire heilsast að sið Maóra.
AP/M
YN
D