Fréttablaðið - 16.01.2003, Side 34
FUNDIR
12.00 Emily Martin, prófessor í mann-
fræði við New York University,
flytur fyrirlesturinn „Cultures of
mania: Toward an anthropology
of mood“ á fyrsta rabbfundi
vormisseris hjá Rannsóknarstofu
í kvennafræðum í stofu 101 í
Lögbergi.
12.00 Ólafur Helgi Þorgrímsson, meist-
aranemi í fjármálum, kynnir
meistararitgerð sína: Nýbyggingar
og viðhald eldri bygginga á
miðbæjarsvæðinu. Málstofan fer
fram í Kaffistofu Odda, þriðju
hæð. Allir velkomnir á meðan
húsrúm leyfir.
OPNANIR
17.00 Tumi Magnússon opnar sýningu
sína í Kúlunni í Ásmundarsafni
við Sigtún í Reykjavík.
Friðrik Tryggvason ljósmyndari
opnar sýningu á Mokka kaffi við
Skólavörðustíg. Sýninguna kallar
hann Blátt og rautt. Sýningin
stendur til 15. febrúar og er opin
á opnunartíma kaffihússins.
LEIKHÚS
20.00 Söngleikurinn Með fullri reisn
eftir Terrence McNally og Davit
Yazbek á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
21.00 Einleikurinn Sellófan eftir Björk
Jakobsdóttur verður forsýndur í
NASA við Austurvöll til styrktar
Kristínu Ingu Brynjarsdóttur. Upp-
selt.
SKEMMTANIR
20.00 Hljómsveitirnar Sans Culot og
XanaX leika listir sínar á fimmtu-
dagsforleik Hins hússins á Loft-
inu. Auk þess verða óvæntar
uppákomur á boðstólum. Sextán
ára og eldri velkomnir.
TÓNLEIKAR
19.30 Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur
verk eftir Béla Bartok, Hauk Tóm-
asson og Charles Ives ásamt Kór
Langholtskirkju í bláu röðinni í
Háskólabíói. Hljómsveitarstjóri er
Ilan Volkov, einleikari Sharon
Bezaly.
SÝNINGAR
Sýning sem hlotið hefur nafnið BókList
stendur í anddyri Norræna hússins. Þar
er að sjá verk finnsku listakonunnar
Senju Vellonen. Sýningin stendur til 9.
febrúar og er opin kl. 9-17 alla daga
nema sunnudaga frá kl. 12-17.
Arnar Herbertsson sýnir málverk í Gall-
eríi Sævars Karls. Myndefni listamanns-
ins er fengið úr bókinni ‘Handan góðs
og ills’ eftir Friedrich Nietzsche.
Í Ketilshúsinu á Akureyri stendur yfir
sýningin Veiðimenning í Útnorðri.
Myndlistarmaðurinn Díana Hrafnsdóttir
sýnir leirverk í Gallerý Hár og list - Hjá
Halla rakara, Strandgötu 39, Hafnarfirði.
Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
stendur nú yfir sýning á 124 ljósmynd-
um frá árunum 1921-81. Ljósmyndar-
arnir eru 41 talsins, allir þýskir og að-
hylltust allir Bauhaus-stefnuna, sem
fólst í því að myndlist og iðnhönnun
ættu að sameinast í byggingarlistinni.
Bandaríska myndlistarkonan Joan
Backes er með myndlistarsýningu í
Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar. Á þessari sýningu beitir
Joan ýmsum miðlum til að koma til
skila vangaveltum sínum um tré og
skóga og það sjónræna viðhorf sem þar
kviknar. Safnið er opið alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17. Sýningunni
lýkur 27. janúar.
Í Hafnarborg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, var um helgina opnuð
sýning á verkum átta færeyskra lista-
manna. Þetta er sumarsýning Norður-
landahússins í Þórshöfn og nefnist ‘Atl-
antic Visions’ eða HAFSÝN. Safnið er
opið alla daga nema þriðjudaga frá kl.
11 til 17. Sýningunni lýkur 27. janúar.
Hallgrímur Helgason sýnir í austursal
Gerðarsafns í Kópavogi nokkur málverk
af Grim, teiknimyndapersónunni með
tennurnar stóru. Myndirnar eru unnar
með nýjustu tölvutækni. Safnið er opið
11-17 alla daga nema mánudaga.
FLYING/DYING er heiti sýningar
Bjargeyjar Ólafsdóttur sýnir í vestursal
Gerðarsafns í Kópavogi. Á sýningunni
eru ljósmyndir og vídeóverk, sem meðal
annars fjalla um bílslys sem listakonan
lenti sjálf í og komst nálægt því að
deyja. Safnið er opið 11-17 alla daga
nema mánudaga.
Húbert Nói sýnir á neðri hæð Gerðar-
safns í Kópavogi. Sýningin, sem nefnist
HÉR OG HÉR / 37 m.y.s., er sérstaklega
unnin fyrir salinn og er innsetning á ol-
íumálverkum sem sýna annars vegar
hluta af salnum og hins vegar málverk
sem hanga þar á veggjum. Safnið er
opið 11-17 alla daga nema mánudaga.
Á jarðhæðinni í Gallerí Skugga, Hverfis-
götu 39, sýnir Ásgeir Jón Ásgeirsson
málverk. Sýningin ber yfirskriftina
“neo–naive“. Ásgeir hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum og unnið við
hönnun á tölvuleiknum Eve online. Sýn-
ingin er opin 13-17 alla daga nema
mánudaga.
Í kjallaranum í Gallerí Skugga, Hverfis-
götu 39, stendur yfir sýning á verkum
eftir Hans Alan Tómasson. Sýninguna
nefnir hann “Undirmyndir“. Um er að
ræða lágmyndir sem unnar eru með
blandaðri tækni s.s. M.D.F. bíla spartli,
olíulakki, gólfbóni og öðrum tilfallandi
efnum. Sýningin er opin 13-17 alla daga
nema mánudaga.
Rakel Kristinsdóttir sýnir í Kaffi Sólon
Bankastræti 7a.
Óboðnir gestir er heiti málverkasýningar
Þuríðar Sigurðardóttur á Galleríi
Hlemmi. Sýningin er opin frá miðviku-
22 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
...ljómandi skemmtileg barnasýning!
Hafliði Helgason, Fréttablaðið.
Útfærsla Ólafs Gunnars er ágætlega frumleg
og skemmtileg ... Benedikt búálfur er afar
skemmtilegur söngleikur og stuðla margir þættir
að því, eins og ætíð þegar góð leiklist er á ferðinni!
Soffía Auður Birgisdóttir, Morgunblaðið.
Miðapantanir
í síma 552 3000
eftir Ólaf Gunnar
Guðlaugsson
Næstu sýningar:
Sun. 19. jan. kl. 14. laus sæti
Sun. 26. jan. kl. 14. örfá sæti
Sun. 2. feb. kl. 14. laus sæti
Sun. 9. feb. kl. 14. laus sæti
Hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda
meira enn3000sýningargestir
Eins og þegar barn
útskýrir eitthvað
Ásgeir Jón Ásgeirsson leggur rækt við frumstæðan einfaldleika á
fyrstu einkasýningu sinni. Hann vill komast nær þeirri einlægni
sem sjá má í teikningum barna og á hellamyndum frummanna.
MYNDLIST „Þegar maður útskýrir
eitthvað fyrir barni, eða þegar
barn útskýrir eitthvað, þá verð-
ur það oft svo einfalt og satt,“
segir Ásgeir Jón Ásgeirsson
myndlistarmaður, sem þessa
dagana sýnir málverk sín í gall-
eríinu Skugga á Hverfisgötu.
Sýninguna nefnir hann
„neo–naive“.
Myndirnar hans minna ein-
mitt á teikningar barna. Þetta
eru einfaldar teikningar af tví-
víðum persónum með skýrar
útlínur.
„Með því að teikna svona
naívt eða primitívt finnst mér
að ég komist nær einhverjum
sannleika sem ég vil koma á
framfæri, einhverju sem mér
finnst satt og einlægt.“
Undir þessum einföldu
teikningum eru svo gjarnan
þrívíðar landslagsmyndir, sem
Ásgeir hefur málað í mjög
hefðbundnum stíl. Landslagið
segir hann að sé samt hvergi til
nema í huga sér. „Landslagið
hjá mér er ekki neitt ákveðið
landslag, heldur eru þetta
fyrst og fremst landslagsmál-
verk.“
Ásgeir segir að sér séu
nokkur viðfangsefni sérstak-
lega hugleikin, eins og til
dæmis neyslusamfélagið,
stríð, ofurmennið og svo nú-
tíma mammútaveiðar.
Sumar myndir Ásgeirs
minna einmitt töluvert á forn-
ar hellamyndir, þar sem sjá má
mammútaveiðar.
„Mín skoðun er sú að það
hafi lítið breyst síðan þá, fólk
sé ennþá að veiða mammúta.
Núna notar fólk bara flug-
beitta peningaseðla.“
Ofurmennið í myndum Ás-
geirs er líka ekki endilega
þetta ameríska ofurmenni sem
allir þekkja, „heldur kannski
þetta ofurmenni sem lista-
menn reyna oft að vera.“ Hann
segir að ofurmenni af því tagi
sé að finna á öllum sviðum
mannlífsins, alveg eins og
listamenn er að finna á öllum
sviðum.
Ásgeir hefur annars unnið
að því að teikna og hanna
tölvuleikinn Eve Online, sem
kemur á markað í mars. Sá
tölvuleikur þykir marka tíma-
mót vegna þess að margir geta
leikið hann samtímis á Netinu.
Fólk getur þá tekið sig saman í
hópa og unnið saman, til dæm-
is að því að reisa geimstöðvar
eða framleiða vörur og tæki
ásamt því að berjast gegn öðr-
um hópum á Netinu.
Þegar blaðamaður Frétta-
blaðsins skoðaði sýningu Ás-
geirs í galleríi Skugga komu
þangað nokkur ungmenni,
sem áttu vart orð til að lýsa
hrifningu sinni á því sem Ás-
geir er að gera fyrir tölvuleik-
inn: „Hann er að gjörbylta öll-
um reglum um tölvuleiki.“
gudsteinn@frettabladid.is
FIMMTUDAGUR
16. JANÚAR
hvað?
hvar?
hvenær?
ÁSGEIR JÓN ÁSGEIRSSON
Hann segist stundum klæða einfaldar teikningar sínar í „málverkabúning“ til þess að fólk „taki þetta alvarlega“.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Skagfirðingur góður!!!!!!!
Ert þú Skagfirðingur sem vill skemmta sér
og syngja meðal Skagfirðinga
Þorrablót Skagfirðinga verður haldið laugardaginn 25. janúar kl. 19.00
í Akoges-salnum, Sigtúni 3, miðaverð 3.900 kr.
Hljómsveitin Nátthrafnar sér um fjörið.
Miðapantanir þurfa að berast í síðasta lagi sunnudaginn 19. janúar nk.
Símar: Denna 565-8649/860-1942, Lovísa 554-1279, Ingvi 565-4332/e. kl.18 565-2090.
Laugardag 18/1 kl. 21.00
Föstudag 24/1 kl. 21.00 UPPSELT
Föstudag 31/1 kl. 21.00
Miðasalan er opin
virka daga á milli 10.00 og 16.00
og laugardaga 14.00-17.00
og frá kl. 19.00 sýningardaga,
en síminn er 562 9700.
Ósóttar pantanir eru seldar
4 dögum fyrir sýningar.
Fim. 16. jan. kl. 21 forsýning
til styrktar Kristínu Ingu
Brynjarsdóttur, UPPSELT
Fös. 17. jan. kl. 21
frumsýning kl. 21 UPPSELT
Lau 25. jan. örfá sæti laus
Lau 1. feb. örfá sæti laus
Fös. 7. feb.
Miðasalan, sími 568 8000, er opin kl. 13-18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu opnar kl. 10 virka dag. Fax 568 0383 midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is
STÓRA SVIÐ
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
3. sýn. fös. 17/1 kl. 20 rauð kort
4. sýn. lau. 18/1 kl. 20 græn kort UPPSELT
5. sýn. fös. 24/1 kl. 20 blá kort
Lau. 25/1 kl. 20
Fös. 31/1 kl. 20
Lau. 1/2 kl. 20
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Sun. 19/1 kl. 20
Sun. 26/1 kl. 20
Fim. 30/1 kl. 20
SÝNINGUM FER FÆKKANDI
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Sun. 19/1 kl. 14
Sun. 26/1 kl. 14
NÝJA SVIÐ
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
e. Gabor Rassov
Fös. 17/1 kl. 20
Lau. 25/1 kl. 20
Fös. 31/1 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Lau. 18/1 kl. 21
Sun. 26/1 kl. 21
Ath. breyttan sýningartímaÐJA HÆÐIN
GINUSÖGUR - VAGINA MONOLOGER - PÍKUSÖGUR
á færeysku, dönsku og íslensku
Birita Mohr, Chorlotte Böving, Kristbjörg Kjeld og María
Ellingsen
Leiksýning, kaffi, tónleikar:
Eivör Pálsdóttir syngur.
Lau. 25/1 kl. 20
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Lau. 18/1 kl. 19
Fim. 23/1 kl. 20
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA! Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús:
börn 12 ára og yngri fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum. (Gildir ekki á söngleiki og barnasýningar.)
Miðasalan,
sími 568 8000