Fréttablaðið - 16.01.2003, Side 40
MYNDLIST Það er ekki nóg að vera
góður með pennann til þess að ná
árangri í teiknisamkeppnum á borð
við þá er Eyþór Stefánsson mynd-
listarkennari náði öðru sæti í.
Keppnin er haldin árlega á vegum
Aydin Dogan-stofnunarinnar í
Ankara í Tyrklandi. Alls sendu um
1350 teiknarar frá 90 löndum inn
myndir sínar. Hver teiknari fær að
senda inn þrjár myndir og er úr um
3500 myndum að moða. Árangur
Eyþórs hlýtur því að teljast glæsi-
legur. Árið 2001 fékk hann sérstök
velgengnisverðlaun, „award of
success“, í þessari keppni en þau
hljóta þeir sem eru í efstu 15 sætun-
um. Í haust sem leið náði hann svo
öðru sæti í keppninni, fyrstur Norð-
urlandabúa að ná í eitt efstu þriggja
sætanna.
Vinningsmyndir í svona keppni
eru sterkar háðsádeilur á heims-
málin hverju sinni. Teiknararnir
þurfa því að vera vel með á nótun-
um ef myndirnar eiga að verða flug-
beittar. Þemað var „hryðjuverk“.
Mynd Eyþórs sýnir götur fá-
tækrahverfis í Tyrklandi. Það eina
sem gefur vísbendingu um ártal er
sjálfvirkur kóksölukassi sem lýsir
upp dimma götuna. Ljósið nýtir sér
ungur piltur sem krýpur fyrir fram-
an kassann og skoðar teikningar af
byssum. Hugsanlega er þetta verð-
andi hryðjuverkamaður.
„Ég var svo lánsamur að vera úti
í Ankara í fyrra. Þá fór ég í gamalt
fátækrahverfi og tók fullt af ljós-
myndum sem ég nýtti í þessa mynd.
Í fátækrahverfunum er eina banda-
ríska menningin sem flestir þekkja
hin yfirborðskennda „Kóka-kóla
menning“. Myndin sýnir að fræinu
er kannski sáð snemma.“
Auk þess að hafa verið myndlist-
arkennari í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti í mörg ár teiknaði Eyþór
myndgátuna í hvert einasta tölublað
DV í ein ellefu ár. Í heild urðu þær
um 3300 talsins. Hvernig fór hann
eiginlega að þessu?
„Ég er náttúrulega alltaf með
litla teikniblokk á mér. Þegar ég
hlusta á fréttir eða ræði við ein-
hvern kviknar kannski hugmynd
sem ég nýti mér svo hugsanlega.
Það var agalegt þegar maður
gleymdi sér og varð að hlaupa með
eitthvað niður á DV á síðasta snún-
ingi. Það kom nú ekki oft fyrir enda
klikkaði ekki einn einasti dagur öll
þessi ár.“
biggi@frettabladid.is is
28 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
MEST SELDU MÁNAÐARRIT
Í VERSLUNUM PENNANS/
EYMUNDSSONAR
In Style
Marie Claire
Living ETC
Q
Architectural Digest
Elle Decoration
Elle
Vogue
Empire
Vanity Fair
BÆKUR Fimmta skáldsagan um
galdrastrákinn Harry Potter,
„Harry Potter og Fönixreglan,“
verður gefin út í Bretlandi 21. júní
næstkomandi.
38 kafla og 255 þúsund orð er að
finna í bókinni sem þýðir að hún
verður þriðjungi lengri en sú síð-
asta, „Harry Potter og eldbikarinn“,
sem kom út fyrir þremur árum. Sú
bók seldist hraðar en nokkur önnur
bók í sögunni fyrstu vikuna eftir út-
gáfudag.
Nýja bókin verður gefin út á
laugardegi eins og sú síðasta. Þar
með þurfa æstir aðdáendur bókar-
innar ekki að missa úr skóla til þess
að kaupa gripinn. ■
Fimmta Harry
Potter-bókin:
Ný í sumar
ROWLING
J.K. Rowling, höfundur bókanna um Harry
Potter. Nýjasta bókin verður örlítið myrkari
en fyrri bækur í seríunni.
Kóka-kóla hryðjuverk
Teiknarinn Eyþór Stefánsson, sem valdið hefur lesendum DV hugar-
brotum í 11 ár með myndgátum, varð í öðru sæti á einni stærstu alþjóð-
legu teiknisamkeppni heims. Mynd hans leitar í rætur hryðjuverka.
VERÐLAUNAMYNDIN
Eyþór segir að myndasöguhefðin sé rík í fyrrum austantjaldslöndunum. „Þetta eru ríki
sem hafa verið undir járnhæl einræðisherra eða kommúnista. Þetta er bara innbyggt í
fólk. Ég talaði til dæmis við pólska konu sem sagði að landar hennar hugsuðu bara í
„satíru“. Þau voru því svolítið hissa að ég skyldi ráðast inn á þessu helgu vé þeirra.“
Borgarleikhúsið frumsýndirokksöngleikinn Sól og Mána
á laugardaginn. Hilmar Jónsson
leikstýrir sýningunni, sem er
byggð á tónlist Sálarinnar hans
Jóns míns, en lögin úr henni eru
flest af plötunum Logandi ljós og
Annar Máni.
Hugmyndin að verkinu er kom-
in frá Guðmundi Jónssyni, laga-
höfundi Sálarinnar, en Karl Ágúst
Úlfsson skrifaði handritið.
Arnbjörg Valsdóttir fer með
hlutverk Sólar en Bergur Þór Ing-
ólfsson leikur Mána.
BÓKMENNTIR Bandaríska utan-
ríkisráðuneytið hefur fengið
fimmtán virta rithöfunda í lið með
sér til þess að hressa upp á ímynd
landsins nú þegar stríðsáform eru
í hámæli. Hver rithöfundanna
fékk 2.500 dali í vasann fyrir að
skrifa um það, hvernig það er að
vera bandarískur rithöfundur.
Afraksturinn hefur verið gef-
inn út í 60 blaðsíðna bæklingi, sem
dreift verður ókeypis í þrjátíu
þúsund eintökum víða um heim.
Til stendur að þýða þessa texta á
arabísku, rússnesku og fleiri
tungumál.
Rithöfundarnir fimmtán eru
reyndar ekki allir jafn gallharðir
föðurlandsvinir. Sumir minnast á
glæpi og kynþáttahatur í Banda-
ríkjunum. Aðrir minnast á Ví-
etnamstríðið og ofsóknir Mc-
Carthys öldungadeildarþing-
manns. Megintilgangur ritsins er
þó að fegra ímynd Bandaríkjanna
í augum umheimsins.
Bandaríkjamenn sjálfir verða
þó að fara á Netið ef þeir ætla að
nálgast þessa texta. Ástæðan er
sú að samkvæmt rúmlega fimm-
tíu ára gömlum lögum er banda-
rískum stjórnvöldum bannað að
gefa innanlands út áróður sem
beint er til annarra landa. ■
Bandarískir rithöfundar:
Í þjónustu hins
opinbera
BANDARÍSKIR RÁÐAMENN
Colin Powell utanríkisráðherra fékk nokkra rithöfunda til þess að hressa upp á ímynd
Bandaríkjanna erlendis. Powell situr þarna á milli þeirra Gale Norton innanríkisráðherra
og George W. Bush forseta.
HVERNIG FANNST ÞÉR?
Skemmti mér
konunglega
Sýningin er kraftmikil, fyndin og fersk.
Kóreógrafían er mjög flott og leikurinn
góður. Það mæðir mikið á Bergi Þór Ing-
ólfssyni, sem leikur Mána, og hann fer á
kostum í leiknum og það sama má segja
um þau Jóhönnu Vigdísi, Stefán Hilmars-
son og Svein Þór Geirsson. Þau fara öll á
kostum í söngnum. Ég var mjög hrifin og
skemmti mér konunglega.
Mjög skemmtileg
sýning
Það var mjög gaman.
Söngleikurinn virkaði
algjörlega og það var
gaman að sjá hvernig
þetta tengdist síðan
allt, sagan, frábær leik-
ur, tónlistin og dans-
flokkurinn, saman í
eina heild. Leikurinn
fannst mér algerlega
frábær og þetta var
mjög skemmtileg sýn-
ing sem óhætt er að
mæla með.
Alveg
brilljant show
Þetta var mjög öðruvísi og er mjög flott
show. Það er gert svolítið mikið úr tónlistinni
sem er eðlilegt þar sem þetta er barn Sálar-
innar og maður þarf því að fíla Sálina dálítið
til að fara á þetta og það geri ég þannig að
ég hafði mjög gaman af þessu. Leikararnir
stóðu sig vel en mér fannst pínu skrítið að
heyra þá syngja lög sem Stefán Hilmarsson
er vanur að syngja. Það var samt mjög
áhugavert að sjá þetta. Það kom líka á óvart
í þessari ástarsögu að sjá allt í einu hljóm-
sveitina og Stebba sitja fyrir aftan í skuggan-
um. Það er svolítið öðruvísi og lætur mann
detta aðeins út úr söguinni en þetta eru
mjög skemmtilegir leikhústónleikar með ást-
arsöguívafi. Alveg brilljant show.
SELMA BJÖRNSDÓTTIR
Söngkona.
BALDUR
ÞÓRHALLSSON
Dósent í stjórn-
málafræði við HÍ.
SVERRIR SVERRISSON
Dagskrárgerðarmaður á Popp Tíví.
HVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA?
„Ég er einmitt að lesa tvær bækur, ná-
kvæmlega núna þessa stundina. Þetta eru
Papillon og Banco eftir Henri Charriere.
Þarna segir frá manni sem var dæmdur
saklaus til vistar á Djöflaeyju en mér finnst
ég alltaf einmitt hafa verið dæmdur saklaus
á þessa djöflaeyju.
Sverrir Stormsker tónlistarmaður.
Tímarit:
Konublöð
TÍMARIT Tísku- og svokölluð konu-
blöð drottna yfir sölulista mánað-
arrita í verslunum Pennans/Ey-
mundssonar. In Style nýtur
mestra vinsælda en Marie Claire
fylgir í kjölfarið. Tónlistartíma-
ritið Q á einnig sinn trausta les-
endahóp og er í fjórða sætinu en
systurblað þess, kvikmyndatíma-
ritið Empire, kemst ekki ofar en í
það níunda. Klámblöðin alræmdu
sem verma efstu hillurnar og eru
stöðugt að verða grófari eru hins
vegar fjarri góðu gamni sem
stendur. ■