Fréttablaðið - 16.01.2003, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
Sigurjóns M. Egilssonar
www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
Ég er svo
stoltur
Handboltalandsliðið er enn og afturað reyna sig á meðal bestu hand-
boltamanna. Stundum hefur frammi-
staða þeirra orðið til þess að þjóðin
hefur fyllst stolti og hrifningu. Vinna
hefur lagst niður meðan atgangurinn
hefur verið hvað mestur. Ég fór meira
að segja í bíósal til að horfa á leik með
liðinu fyrir ekki svo löngu síðan.
ÞAÐ ER fleira en handboltamenn
sem vekur hjá þjóðinni stolt. Nú er til-
hlökkunin yfir væntanlegri heimsókn
Rússlandsforseta, sjálfs Pútíns, okkur
lifandi að drepa. Ég vona að hann
sendi tímanlega lista yfir það sem
honum er illa við svo hægt verði að
veita honum jafn glæsilega og vand-
aða meðferð og Kínaforseta þegar
hann heiðraði okkur með nærveru
sinni. Það er þakkarvert að forseti Ís-
lands skuli trekk ofan í trekk finna
forseta hér og þar til að fá til okkar.
Það er þakkarvert.
MIKIÐ HLAKKA ég til að sjá fyrir-
myndirnar allar, Ólaf Ragnar sjálfan,
forsætisráðherrann, Davíð eða Ingi-
björgu, Ólaf ráðuneytisstjóra og hina
alla standa í beinni röð í rokinu á
Keflavíkurflugvelli til að taka á móti
fyrirmenninu. Þjóðin á eftir að verða
svo stolt. Þvílíkur glæsileiki. Harald-
ur, aðal lögreglustjóri landsmanna,
lofar að ekkert fari úrskeiðis sama
hvað það kostar. Við getum um ókom-
in ár hlýjað okkur við minningarnar
um hversu vel okkur ferst úr hendi að
gleðja góða gesti.
VIÐ ERUM svo lánsöm að forsetinn
okkar er svo gestrisinn og svo mikill
selskapsmaður. Hann taldist um árabil
vera talsmaður alþýðunnar sem laun-
aði honum störfin, góð og vond, með
því að gera hann að forseta sínum. Nú
man hann eftir lýðnum stöku sinnum
og hefur jafnvel orð á hversu sumir
hafi það skítt. Rétt á milli þess að hann
finnur nýjar leiðir til að efla stolt og
samhug þjóðarinnar. Svo heppilega vill
til að fyrirmenn héðan og þaðan leggja
það á sig að koma til okkar, enda óvíða
brugðist við af eins miklum sköruleik
og hér til að gestir okkar pirrist ekki.
Landinu er jafnvel lokað. Löggan sem
á ekki peninga til umferðareftirlits
eða til öryggis okkar veður í seðlum
þegar gæta þarf fyrirmenna. Þeir fá-
tæku, sem forsetinn segist hafa
áhyggjur af, verða kannski geymdir
afsíðis meðan fyrirmenninn renna sér
milli veisluborðanna. Pútín verður að
hafa það flott, sama hvað það kostar. ■