Fréttablaðið - 02.05.2003, Síða 4
DAGBLÖÐ Ný fjölmiðlakönnun
Gallup sýnir miklar sveiflur á
dagblaðamarkaði. Meðallestur
Fréttablaðsins mælist nú 61,7
prósent og hefur hækkað um 9,9
prósentustig frá október á síð-
asta ári. Meðallestur Morgun-
blaðsins fellur á sama tíma úr
57,3 prósentum í 52,3 prósent eða
um 5 prósentustig. Munurinn á
lestri þessara blaða er nú 9,4 pró-
sentustig. Munurinn á fjölda les-
enda hjá Fréttablaðinu og Morg-
unblaðinu er um 22 þúsund
manns.
Mjög hefur dregið úr lestri á
DV. Meðallestur þess var 31,5
prósent í október en mælist nú
22,1 prósent. Mismunur-
inn er 9,4 prósentustig.
Lesendahópur DV hefur
samkvæmt þessu minnk-
að um rétt tæp 30 pró-
sent á fimm mánuðum.
Lesendur blaðsins eru
aðeins 42 prósent af les-
endahóp Morgunblaðsins
og 36 prósent af lesenda-
hóp Fréttablaðsins.
„Þetta eru miklar
breytingar – nánast um-
pólun,“ segir Gunnar
Smári Egilsson, ritstjóri
Fréttablaðsins. „Á þess-
um fimm mánuðum hef-
ur lesendum Frétta-
blaðsins fjölgað um hart-
nær 20 prósent. Hingað
til hefur vöxtur Frétta-
blaðsins fremur aukið
dagblaðalestur almennt
en að hann hafi dregið úr
lestri áskriftarblaðanna.
Nú gerist það hins vegar
í fyrsta skipti að nokkuð
dregur úr samanlögðum
lestri dagblaðanna. Hin
mikla aukning á lestri
Fréttablaðsins nær ekki
að vega upp samdráttinn hjá hin-
um. Mér segir svo hugur að þessi
niðurstaða muni bera með sér
meiri breytingar og feli í sér
stærri tímamót en menn gera sér
grein fyrir í fljótu bragði.“
Fréttablaðið er mest lesna
dagblaðið á öllum markaðssvæð-
um. Á höfuðborgarsvæðinu er
meðallestur þess 72,6 prósent en
61,5 prósent hjá Morgunblaðinu
og 19,6 prósent hjá DV. Ef Suð-
vesturhornið er tekið saman er
meðallestur á Fréttablaðinu 69,7
prósent en 58,6 prósent hjá
Morgunblaðinu og 21,0 prósent
hjá DV. Á landsbyggðinni, það er
öll svæði utan Suðvesturhorns-
ins, er meðallestur Fréttablaðs-
ins 43,8 prósent en 37,1 prósent
hjá Morgunblaðinu og 26,2 pró-
sent hjá DV.
Fréttablaðið er einnig mest
lesið alla útgáfudaga þess. Laug-
ardagsblað Fréttablaðsins var
mest lesna dagblaðið í könnunar-
vikunni og mældist lestur þess
66,5 prósent. Mest lesna blað
Morgunblaðsins var laugardags-
útgáfan og mældist lestur hennar
57,2 prósent. Það er bæði minni
lestur en á lakasta útgáfudegi
Fréttablaðsins og um 9,3 pró-
sentustigum minni en lestur
Fréttablaðsins sama dag.
„Við á Fréttablaðinu erum
ákaflega þakklát fyrir þessar
góðu viðtökur en við skynjum
jafnframt vel þær kröfur sem
þessi staða setur á okkur,“ segir
Gunnar Smári. „Það fylgir mikil
ábyrgð því að gefa út mest lesna
dagblað landsins og því fylgja
kröfur um sífellt betra og öflugra
blað. Eina leiðin sem við kunnum
til að mæta þeim kröfum er auð-
mýkt og virðing fyrir lesendun-
um. Þótt við höfum búið til blaðið
eru það lesendurnir sem hafa
gætt það lífi og byggt upp þessa
sterku stöðu Fréttablaðsins.“ ■
4 2. maí 2003 FÖSTUDAGUR
Hverjir verða Íslandsmeistarar í
handbolta karla?
Spurning dagsins í dag:
Fórstu í kröfugöngu á verkalýðsdegin-
um?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
42,3%
57,7%
ÍR
0%Veit ekki
Haukar
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
DAGBLÖÐ Samkvæmt niðurstöðum
endurskoðaðs ársreiknings
Fréttar ehf., útgáfufélags Frétta-
blaðsins, var 10,6 milljón króna
halli á rekstri félagsins í fyrra.
Þann halla má rekja til reksturs
fyrstu þriggja mánaða útgáfunn-
ar. Hagnaður hefur verið á
rekstri félagsins síðan í október
á síðasta ári og fyrstu þrjá mán-
uði þessa árs nam hagnaðurinn
12 milljónum króna.
„Áætlanir gerðu ráð fyrir að
rekstur fyrstu þriggja mánaða
ársins væri í jafnvægi og myndi
skila tæplega 2 milljón króna
hagnaði. Sala á auglýsingum hef-
ur hins vegar farið fram úr áætl-
unum og tekjur af sölu inn í
dreifingarkerfið hafa einnig orð-
ið meiri en við gerðum ráð fyr-
ir,“ segir Gunnar Smári Egilsson,
framkvæmdastjóri Fréttar.
Samkvæmt ársreikningi
Fréttar var eigið fé félagsins 52
milljónir króna um áramót.
Eiginfjárhlutfallið var 31 pró-
sent og veltufjárhutfall félagsins
var 1,3. Nettóskuldir voru engar.
„Efnahagur Fréttar ehf. er
traustur og samkvæmt áætlun-
um,“ segir Gunnar Smári.
Að baki Fréttar standa félög í
eigu Árna Haukssonar, forstjóra
Húsasmiðjunnar, Gunnars
Smára Egilssonar, ritstjóra
Fréttablaðsins, Ingibjargar S.
Pálmadóttur innanhússhönnuðar,
Jóhannesar Jónssonar í Bónus,
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, for-
stjóra Baugs, Pálma Haraldsson-
ar, forstjóra Fengs, og Ragnars
Tómassonar lögmanns. Eigna-
hlutir skiptast nokkuð jafnt milli
félagana.
Auk þess að gefa út Frétta-
blaðið í 92 þúsund eintökum gef-
ur Frétt út Birtu, vikulegt tíma-
rit í jafn stóru upplagi. Félagið
rekur dreifikerfi með hátt í 600
blaðberum sem bera út blöð á
fleiri en 80 þúsund heimili sex
daga vikunnar á höfuðborgar-
svæðinu, Suðurnesjum og Akur-
eyri. Aðrir starfsmenn Fréttar
eru nú 55.
„Góð markaðsstaða og góður
rekstur mun gefa okkur tæki-
færi til að efla enn starfsemi fé-
lagsins á þessu ári. Við munum
bæði reyna að auka tekjur okkar
af núverandi starfsemi og sækja
fram á ný mið,“ segir Gunnar
Smári. ■
DAGBLÖÐ Samkvæmt fjölmiðla-
könnun Gallup lesa um 78 þúsund
manns smáauglýsingar Frétta-
blaðsins á laugardögum. Sama dag
lesa tæplega 37 þúsund manns
smáauglýsingar DV. Smáauglýs-
ingar Fréttablaðsins eru því lesnar
af meira en tvöfalt stærri hópi en
smáauglýsingar DV – 113 prósent
fleiri nánar tiltekið.
„Það að 78 þúsund manns lesi
smáauglýsingar Fréttablaðsins
og séu þar af leiðandi tilbúnir að
kaupa eða selja vöru og þjónustu
gerir smáauglýsingar Frétta-
blaðins að öflugasta markaðs-
torgi landsins. Stærstu verslun-
armiðstöðvar á Norðurlöndum
myndu fagna því að fá svona
marga viðskiptavini á Þorláks-
messu,“ segir Ásmundur Helga-
son, sölustjóri flokkaðra auglýs-
inga hjá Fréttablaðinu.
Ásmundur vill benda á að
þrátt fyrir þá miklu athygli sem
smáauglýsingar Fréttablaðsins
nái kosti aðeins frá 995 krónum
að auglýsa í blaðinu. „Það er í
raun hlægilegt verð,“ bætir hann
við. ■
Birta:
Mest lesna
tímaritið
TÍMARIT Birta, tímarit sem fylgir
Fréttablaðinu á föstudögum, er
mest lesna tímarit á Íslandi. Þetta
er niðurstaða nýrrar fjölmiðla-
könnunar Gallup
„Þetta er ótrúlegt,“ segir Þrá-
inn Bertelsson, nýráðinn ritstjóri
Birtu. „Þegar könnunin var gerð
höfðu aðeins þrjú tölublöð af
Birtu komið út. Eins og á við um
öll blöð mun það taka Birtu lengri
tíma að byggja upp sinn lesenda-
hóp. En það er óneitanlega glæsi-
legt að byrja í toppsætinu.“
Á eftir Birtu koma tvö önnur
fríblöð á listanum yfir vinsælustu
tímaritin; Magasín og Myndbönd
mánaðarins. Af fylgiritum dag-
blaðanna nær Viðskiptablað
Morgunblaðsins mestum lestri en
Séð & heyrt er vinsælasta sölu-
tímaritið. ■
Frétt ehf., útgáfufélag Fréttablaðsins:
Hagnaður af rekstri og traustur efnahagur
VINSÆLUSTU TÍMARITIN
1. Birta
2. Magasín
3. Myndbönd mánaðarins
4. Viðskiptablað Morgunblaðsins
5. Séð & heyrt
6. Gestgjafinn
7. Hús & híbýli
8. Fókus
9. Nýtt líf
10. Lifun
11. Mannlíf
12. Vikan
13. Bleikt & blátt
LESTUR Á TÍMARITUM
Birta er mest lesna tímarit landsins.
Þitt
eintak
Viku legt t ímar i t um fó lk ið í l and inu
birta
2. TIL 8. MAÍ 2003
hversu vel
þekkjast bubbi
og brynja?
hvaða
árstíð
er þú?
undir stjörnu-
björtum himni
sundfata-
tískan
bréf frá
bryndísi
7dagskrásjónvarpsins
þórirhið góða
í manninum
Fréttablaðið er mest lesið alla útgáfudag-
ana og það blað Fréttablaðsins sem
minnst er lesið er meira lesið en mest
lesnu blöð hinna blaðanna.
Fréttablaðið mest lesna
dagblaðið á Íslandi
Lestur á Fréttablaðinu eykst mikið frá síðustu fjölmiðlakönnun Gallup á sama tíma og dregur úr
lestri á hinum dagblöðunum. Fréttablaðið hefur yfirburði á höfuðborgarsvæðinu og á lands-
byggðinni, meðal karla og kvenna og meðal yngra fólks jafnt sem eldra fólks.
0
10
20
30
40
50
60
70
OKT ‘02 MARS ‘03 OKT ‘02 MARS ‘03 OKT ‘02 MARS ‘03
31,5%
22,1%
57,3%
52,3%51,8%
61,7%
+9,9
-5,0
-9,4
MIKLAR SVEIFLUR
Meðallestur Fréttablaðsins óx um rétt tæp 10 prósentustig á sama tíma og meðallestur Morgunblaðs-
ins féll um 5 prósentustig og DV um rúm 9 prósentustig.
Fréttablaðið á laugardögum 67%1
Fréttablaðið á mánudögum 62%2
Fréttablaðið á þriðjudögum 62%3
Fréttablaðið á miðvikud. 61%4
Fréttablaðið á fimmtud. 60%5
Fréttablaðið á föstud. 59%6
Morgunblaðið á laugard. 57%7
Morgunblaðið á sunnud. 55%8
Morgunblaðið á föstud. 54%9
Morgunblaðið á mánud. 52%10
VINSÆLUSTU BLÖÐIN
78.000
lesendur
36.700
lesendur
Fjöldi þeirra sem lesa allar smáauglýsingar
eða að hluta á laugardögum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
D
V
ÞÓREY EDDA
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ
STEKKUR Á STÖNG
Þórey Edda mætir með stöngina,
fimleikasýning, tónlist,
andlitsmálning,
grillaðar pylsur, sykurfrauð, kaffi.
Frambjóðendur U - listans verða á svæðinu.
á Þórsplani við kosningamiðstöð VG í Hafnarfirði 2. maí frá kl. 16 - 18
Fréttablaðið:
Mest lesnu
smáauglýsingarnar