Fréttablaðið - 02.05.2003, Side 10
10 2. maí 2003 FÖSTUDAGUR
Stærsti
sýningarsalur
með gólfefnum
á landinu
Krókhálsi 4 • 110 Reykjavík
Sími 567 1010
H A R Ð V I Ð A R V A L
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
7
.0
11
Viðarparket úr eik
á aðeins
Sterkt og fallegt
Fljótlegt og auðvelt
að leggja
Ekkert lím
Ekkert lakk
Tilbúið til notkunar
strax eftir lagningu
Góð hljóðeinangrun
smellur
saman
Nú
allt
w w w . p a r k e t . i s
kr. 2.890 pr. m2
TILBOÐ
frábært
á smelluparketi
Það sem gerir Clic & Connect viðarparketið
þægilegra í lagningu en annað smelluparket
er að það þarf ekki að vinda upp á fjalirnar
til að krækja þeim saman.
Fjalirnar eru einfaldlega lagðar hver að annarri og smellt saman.
HEIMAHJÚKRUN „Við erum mjög
ánægð með lyktir málsins,“ segir
Kristjana Guðjónsdóttir hjá Mið-
stöð heimahjúkrunar.
Hún segir að fyrst og fremst
hafi starfsfólkið verið óánægt
með hvernig staðið hafi verið að
þessari uppsögn samninga en sé
alls ekki á móti breytingum eða
framþróun. „Ég get séð fyrir mér
að þeir komi inn rekstrarbílum
með nýju fólki ef það er það sem
þeir vilja í framtíðinni. Við vorum
ekki að mótmæla öðru en því
hvernig staðið var að þessari upp-
sögn og fögnum því að þeir skuli
hafa séð að sér,“ segir Kristjana.
Guðmundur Einarsson, for-
stöðumaður Heilsugæslunnar í
Reykjavík, segir að í framtíðinni
muni allt skipulag þjónustunnar
verða tekið til endurskoðunar í
framhaldi af þessu. Starfsfólk
verði haft með í ráðum eins og
efni standi til. „Það liggur alveg
ljóst fyrir að nýtt fólk verður ráð-
ið án bifreiðahlunninda og fær
rekstrarbíla til afnota. Það telur
hins vegar allt of langan tíma að
breyta á þann veg og við skoðum
hvernig best er að koma þessu
við. Við ætlum okkur að ná fram
hagkvæmni í rekstrinum,“ segir
Guðmundur Einarsson. ■
FYRIR RÉTTI „Já, ég þekki myndina,“
sagði Kjartan Gunnarsson vitni.
Kjartan mætti til að bera vitni í
Stóra málverkafölsunarmálinu
fyrir hádegi þriðjudags þegar
vitnaleiðslum lauk. Hann var feng-
inn til að bera kennsl á mynd sem
sögð er eftir Jón Stefánsson, en
verkið keypti Kjartan á uppboði
Gallerí Borgar árið 1995 fyrir
400.000 kr. Fram kom í máli Kjart-
ans að hann hefði farið með mál-
verkið til lögreglu en hann gerir
ekki skaðabóta-
kröfu. „Ég var á
uppboði að leita
eftir bernskri
mynd eftir Jón
S t e f á n s s o n ,
kyrralífsmynd
frá hans fyrstu
árum.“
Annars voru
danskir dagar í
H é r a ð s d ó m i
Reykjavíkur fyr-
ir hádegi þriðju-
dags. Þrjú dönsk
vitni mættu,
tveir galleríeigendur og einn frá
danska þjóðminjasafninu auk Vikt-
ors Smára Sæmundssonar for-
varðar. Listaverkahöndlararnir
gerðu grein fyrir viðskiptum sín-
um við Pétur Þór Gunnarsson, sem
voru nokkur í tengslum við sýning-
arhald á verkum Þorvaldar Skúla-
sonar og Svavars Guðnasonar. Þeir
þekktu ekki verkin sem þeim voru
sýnd fyrir réttinum en sögðu þó
erfitt um að segja, langt væri um
liðið og myndirnar hafi aðeins ver-
ið dagstund í þeirra vörslu. Þeir
hittu Pétur á hótelherbergi í Kaup-
mannahöfn þar sem hann festi
kaup á nokkrum myndum. Alkyd
kom við sögu enn og aftur en áhöld
virðast um nákvæmlega hvenær
efnið kom á markað. Alkyd hefur
greinst í mörgum verkanna, efni
sem sagt er að geti ekki hafa farið
um hendur þeirra listamanna sem
um ræðir.
Fremur fátt hefur verið milli
Jóns H. Snorrasonar saksóknara
og lögmanns Péturs Þórs, Sigríðar
Rutar Júlíusdóttur, sem hefur
áður látið færa til bókar að hún uni
ekki lítilsvirðingu sem hún telur
sér hafa verið sýnda af hálfu
sækjanda. Enn bar á því þegar
grein úr bók sem Jónas Freydal
lagði fram, „Modern Paints“, kom
til tals. Jón H. spurði Mats Krist-
jansen frá Þjóðminjasafni Dana
hvort hann kannaðist við bókina.
Mats sagðist þekkja til hennar.
Spurði þá saksóknari: Þannig að
þetta er engin biblía í þessum
fræðum? Sigríður Rut mótmælti
þessari gildishlöðnu spurningu
harðlega. Til að flækja málin er
um að ræða bók sem lykilvitni
Jóns nefna til sögunnar í skýrslum
sínum.
jakob@frettabladid.is
SAKAMÁL Jón Atli Júlíusson, sem
slapp illa særður undan morðtil-
ræði í Flórída um miðjan mars,
kom heim til Íslands um páskana.
Jón Atli, sem er sextán ára, bjó
með móður sinni, Lucille Mosco, í
bænum Pensacola. Fyrrverandi
eiginmaður hennar til fimm ára er
talinn hafa myrt Lucille á heimili
þeirra mæðgna og síðan reynt að
bana Jóni Atla.
Faðir Jóns Atla og sautján ára
bróðir, sem búa á Íslandi, fóru
utan og voru í Flórída þar til
ákæra var gefin út á hendur hin-
um meinta morðingja um miðjan
apríl.
Meðferðis til Íslands höfðu
feðgarnir ösku Lucille Mosco,
sem mun hvíla í íslenskri jörð við
hlið móður hennar og ömmu.
Líkamlegt ástand Jóns Atla
mun vera ótrúlega gott miðað við
að hann var skotinn í bakið með
haglabyssu og stunginn með hnífi.
Fram hefur komið að fjöldi hagla
er enn í líkama drengsins og
ræstu þau málmleitartæki í rétt-
arsal ytra. Jóni Atla verður á
næstunni veitt sérfræðiaðstoð
hérlendis vegna áfallsins sem
fylgdi hinum hræðilega atburði. ■
Heimahjúkrun:
Bílar inn með nýju fólki
Danskir dagar
í dómsalnum
Alkyd kemur enn við sögu. Áhöld um hvenær
efnið kom á markað. Engir kærleikar með
saksóknara og verjanda Péturs Þórs.
KJARTAN GUNNARSSON
Var á uppboði að leita að bernskri kyrralífsmynd eftir Jón Stefánsson. Bernska kyrralífs-
mynd fann Kjartan en hvort hún er eftir Jón er svo önnur spurning.
„Þannig að
þetta er eng-
in biblía í
þessum fræð-
um? Sigríður
Rut mótmælti
þessari gildis-
hlöðnu spurn-
ingu harð-
lega.
BERNSK KYRRALÍFSMYND
Þessa mynd (olía 60,5 x 50 cm) sagði
Bryndís Jónsdóttir (Stefánssonar) slíka flat-
neskju að ekki komi til greina að hún sé
eftir föður sinn.
JÓN ATLI JÚLÍUSSON ÁSAMT FRÆNDA SÍNUM OG BRÓÐUR
Jón Atli, lengst til vinstri, er kominn heim til Íslands með föður sínum og bróður.
Pilturinn sem slapp á frá morðtilræði stjúpföður:
Kominn heim
til Íslands
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IH
EL
M
NASA:
Vilja út úr
sólkerfinu
FLÓRÍDA, AP Sá möguleiki að kanna
hnetti utan okkar sólkerfis er háður
því að þróaðar verði geimflaugar
knúnar áfram af kjarnorku, að sögn
bandarísku geimferðastofnunar-
innar, NASA. Á árlegri geimráð-
stefnu í Cape Canaveral í Flórída
kom það fram að með því að nota
kjarnorkuknúnar geimflaugar væri
hægt að komast að enda sólkerfis-
ins á innan við fimm árum. Með
þeirri tækni sem notuð er í dag tek-
ur ferðin um fimmtán ár. Á næstu
fimm árum munu renna sem svarar
um 225 milljörðum íslenskra króna
til þess að þróa kjarnorkuknúnar
geimflaugar hjá NASA. ■
Svonaerum við
Vara Verðmæti í miljónum
Sjávarafurðir 29.634,7
Landbúnaðarafurðir 979,5
Iðnaðarvörur 17.507,4
Aðrar vörur 1.257,5
Samtals 49.379,1
Heimild: Hagstofan
FLUTT ÚT FYRIR
49 MILLJARÐA
Á fyrsta ársfjórðungi voru fluttar út vörur
fyrir 49 milljarða króna. Þetta er fjórum
milljörðum minna en á sama tíma á síð-
asta ári. Sjávarafurðir eru sem fyrr stærst-
ur hluti vöruútflutnings og skila þremur af
hverjum fimm krónum sem fást fyrir út-
fluttar vörur.