Fréttablaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Bíó 36
Íþróttir 12
Sjónvarp 38
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
VIÐTAL
Tímarnir breytast
og mennirnir með
SÖNGNÁM
Einhver tegund
ofvirkni
LAUGARDAGUR
3. maí 2003 – 100. tölublað – 3. árgangur
bls. 26 bls. 22
RÁÐSTEFNA Hugvísindastofnun Há-
skóla Íslands efnir til ráðstefnu til
heiðurs Sigurjóni Björnssyni pró-
fessori. Meðal fyrirlesara eru, auk
Sigurjóns, Jón Ólafsson, Haukur
Ingi Jónasson og Sigurður J. Grét-
arsson. Ráðstefnan fer fram í Odda
og hefst klukkan 10.30.
Sálgreining
á Íslandi
FÓTBOLTI Valur og KR eigast við í
undanúrslitum deildarbikars
kvenna. Leikurinn fer fram í
Fífunni og hefst kl. 13. Sigurliðið
etur kappi við sigurvegarana úr
leik ÍBV og Breiðabliks sem fer
fram í Fífunni á morgun kl. 16.30.
Undanúrslit
kvenna
MYNDLIST Sýning Ríkharðs Valtin-
gojer og Helga Snæs Sigurðssonar,
Tvíraddað, opnar í Hafnarhúsinu
kl. 15. Á sama tíma opnar Tolli sýn-
ingu í Listasetrinu Kirkjuhvoli á
Akranesi. Klukkutíma síðar opnar
Steingrímur Eyfjörð sýningu í
Gallerí Hlemmi og Margrét Brynj-
ólfsdóttir sýningu á Kaffi Sólon.
Opnað hér og þar
KVIKMYNDIR Aðdáendur Ingmars
Bergmans geta haldið í Bæjarbíó í
Hafnarfirði í dag. Þar verður sýnd
myndin Stund úlfanna, eða
Vargtimmen frá 1968. Sýningin
hefst kl. 16.
Bergman í
Bæjarbíói
REYKJAVÍK Norðaustan
5-10 m/ og léttskýjað.
Hiti 0 til 5 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
-
-
-
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Skýjað 4
Akureyri 5-10 Él 6
Egilsstaðir 5-10 Él 8
Vestmannaeyjar 5-10 Bjartviðri 2
➜
➜
➜
➜
UMFERÐARSLYS Átta voru fluttir á
sjúkrahús eftir harðan árekstur á
Hellisheiði. Útlit var fyrir að
tveir þeirra sem slösuðust í árek-
strinum yrðu að vera á
sjúkrahúsi yfir nótt hið minnsta.
Enginn var þó í lífshættu.
Áreksturinn átti sér stað um
kvöldmatarleytið í gærkvöldi.
Fjórir bílar rákust saman. Ekki
var alveg ljóst hvernig árekst-
urinn bar að. Kalla þurfti á
tækja-bíl til að losa tvo einstak-
linga úr bílunum.
Lögreglan á Selfossi hafði
yfirumsjón með aðgerðum en
kalla þurfti á fjóra sjúkrabíla úr
Reykjavík til að flytja þá slösuðu
á slysadeild Landspítalans.
Áreksturinn var mjög harður.
Það sést kannski best á því að
þrír af bílunum fjórum eru taldir
ónýtir. Hellisheiði var lokað um
tíma og þurfti fjöldi manna að
bíða eða fara aðra leið á meðan.
Sú lokun stóð þó yfir í skamma
stund.
Eitt og hálft ár er liðið frá því
jafn margir hafa lent í árekstri í
umdæmi lögreglunnar á Selfossi.
Það var þegar fjórir létust í árek-
stri í Gnúpverjahreppi. ■
Harður árekstur á Hellisheiði í gærkvöldi:
Átta fluttir á sjúkrahús
Guðni Ágústsson
skipar 1. sæti á lista
Framsóknarflokksins í
Suðurkjördæmi
Kjósum flokk sem framkvæmir
VOR
SALA
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
R
I
20
64
5
0
4/
20
03
STA Ð R EY N D UM
MEST
LESNA DAGBLAÐIÐ
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003
22,1%
52,3%
61,7%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
Traust til Ingibjargar
Sólrúnar hrapar
Davíð Oddsson nýtur mests traust stjórnmálamanna samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins. Flestir segjast einnig bera minnst traust til hans. Traust á hendur
Halldóri Ásgrímssyni eykst verulega.
INGIBJÖRG SÓLRÚN
Þeim fjölgar mikið sem segjast bera minnst traust til hennar.
DAVÍÐ ODDSSON
Hann er sá stjórnmálamaður sem oftast er nefndur.
SKOÐANAKÖNNUN Traust lands-
manna til Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, forsætisráðherra-
efnis Samfylkingarinnar, minnk-
ar verulega, samkvæmt niður-
stöðu skoðanakönnunar Frétta-
blaðsins, sem gerð var á fimmtu-
daginn.
Rúmlega 24% segjast nú bera
mest traust til Ingibjargar Sól-
rúnar eða 13% færri en fyrir
mánuði síðan. Davíð Oddsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
nýtur trausts rúmlega 32% þjóð-
arinnar, sem er svipað og fyrir
mánuði síðan. Landsmenn bera
því aftur mest traust til Davíðs.
Athygli vekur að tæplega 34%
þjóðarinnar segjast bera minnst
traust til Ingibjargar Sólrúnar,
samaborið við 18,7% fyrir mán-
uði síðan. Þá skiptist vantraust á
hendur forystu Samfylk-
ingarinnar nokkurn veginn
jafnt á milli Össurar
Skarphéðinssonar, for-
manns flokksins, og Ingi-
bjargar Sólrúnar og sam-
anlagt voru þau ekki jafn
óvinsæl og Davíð. Nú virð-
ist vantraustið hins vegar
hafa færst yfir á Ingi-
björgu Sólrúnu. Samanlagt
segjast tæplega 43% lands-
manna bera minnst traust
til Ingibjargar Sólrúnar og
Össurar eða töluvert fleiri
en segjast bera minnst
traust til Davíðs. Rúmlega
35% segjast bera minnst
traust til hans.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, mælist nú
með hlutfallslega mun meira
traust en fyrir mánuði síðan.
Rúmlega 11% landsmanna segjast
bera mest traust til hans, saman-
borið við tæplega 6% fyrir mán-
uði. Traust til Steingríms
J. Sigfússonar, formanns
Vinstri grænna og Guð-
jóns A. Kristjánssonar,
formanns Frjálslyndra,
stendur nokkurn veginn í
stað. Tæplega 11% lands-
manna segjast bera mest
traust til Steingríms J., en
tæplega 3% segjast bera
mest traust til Guðjóns A.
Þegar spurt var til
hvaða stjórnmálamanna
fólk bæri mest traust voru
alls 38 menn nefndir. Alls
voru 33 menn nefndir þeg-
ar spurt var til hvaða
stjórnmálamanns fólk
bæri minnst traust til. Úrtakið í
könnuninni var 1.200 manns.
trausti@frettabladid.is
sjá bls. 2
TIL HVAÐA STJÓRNMÁLAMANNS BERÐ
ÞÚ MEST TRAUST UM ÞESSAR MUNDIR?
Febrúar Mars Apríl
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 32,9% 37,8% 24,4%
Davíð Oddsson 35,7% 32,4% 32,2%
Steingrímur J. Sigfússon 6,9% 10,3% 10,7%
Halldór Ásgrímsson 7,8% 5,9% 11,1%
Guðjón A. Kristjánsson 0,2% 2,8% 2,7%
TIL HVAÐA STJÓRNMÁLAMANNS BERÐ
ÞÚ MINNST TRAUST UM ÞESSAR MUNDIR?
Febrúar Mars Apríl
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 17,5% 18,7% 33,8%
Davíð Oddsson 33,3% 43,3% 35,4%
Steingrímur J. Sigfússon 5,6% 4,0% 3,3%
Halldór Ásgrímsson 4,6% 7,2% 5,7%
Guðjón A. Kristjánsson 0,0% 0,0% 1,0%
KVÓTI
bls. 36
Ákvarðar
kvóta
einhliða
HÁTÍÐ
Ókeypis
mynda-
sögur
bls. 8