Fréttablaðið - 08.05.2003, Side 1

Fréttablaðið - 08.05.2003, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 30 Leikhús 30 Myndlist 30 Bíó 34 Íþróttir 16 Sjónvarp 38 KVÖLDIÐ Í KVÖLD TÓNLIST Villtir drengir snúa aftur FRAMBOÐ Atkvæði falla aldrei dauð FIMMTUDAGUR 8. maí 2003 – 104. tölublað – 3. árgangur bls. 26 bls. 34 MÓTMÆLI Listamenn ætla að mót- mæla aðgerðaleysi borgaryfirvalda vegna fjárhagserfiðleika Borgar- leikhússins sem hafa leitt til þess að 52 starfsmönnum hefur verið sagt upp á þessu ári og því síðasta. Mótmælin munu eiga sér stað við Ráðhús Reykjavíkur og hefjast klukkan 14. Mótmælt við Ráðhúsið RÚTUFERÐIR Guðmundur Ólafsson fornleifafræðingur og Björn Þor- steinsson verða fararstjórar í rútu- ferð eldri borgara um þingstaðina við Þingsnes og á Kópavogstúni. Haldið verður af stað frá Gljá- bakka og Gullsmára í Kópavogi klukkan 14. Þingstaðir skoðaðir FYRIRLESTUR Í fyrirlestrinum Getur Rauðhetta verið brún? fjalla Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir og Elsa Sig- ríður Jónsdóttir um rannsókn á fjölmenningarstarfi í leikskólanum Lækjaborg. Fyrirlesturinn fer fram í Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð og hefst klukkan 16.15. Brún Rauðhetta? HANDBOLTI ÍR-ingar fá tækifæri til að hefna fyrir ófarir sínar í fyrsta leik liðsins við Hauka í baráttu lið- anna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla. Annar leikur lið- anna fer fram í Íþróttahúsinu við Austurberg og hefst klukkan 19.15. ÍR-ingar fá annað tækifæri REYKJAVÍK Suðlæg átt 3-8 m/s og skúrir en lægir síðdegis. Hiti 3 til 10 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-10 Skúrir 6 Akureyri 3-5 Skúrir 11 Egilsstaðir 3-8 Skúrir 13 Vestmannaeyjar 3-5 Skúrir 5 ➜ ➜ ➜ ➜ Jónína Bjartmarz skipar 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík suður Kjósum lægri endurgreiðslu námslána STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V HEILBRIGÐISMÁL „Þetta eru flest mál sem hafa verið lengi í undir- búningi og ég hef viljað klára áður en ég fer úr ráðuneytinu,“ segir Jón Kristjánsson heilbrigð- isráðherra að- spurður um mikil afköst í ráð- herrastarfi á síð- ustu dögum, í að- draganda kosn- inganna. R á ð h e r r a n n hefur gefið yfir- lýsingar um fjár- framlög, undir- ritað samninga, opnað heilsugæslu eða gefið yfir- lýsingar um framfaramál í heil- brigðiskerfinu að jafnaði annan hvern dag undanfarnar tvær vik- ur. Hann segir að það sé ekki tóm tilviljun að málin hafi raðast svona niður. Hann sé að öllum lík- indum á leið úr embætti heil- brigðisráðherra, sem hann hafi einungis gegnt í tvö ár, og það sé því ekki seinna vænna að koma ýmsum málum í höfn. Hann segist hins vegar aðspurður ekki hafa kosninga- baráttuna sérstaklega í huga. „Ég hef ekki trú á því að þetta sé eitt- hvað sem skipti sköpum í kosn- ingabaráttunni,“ segir Jón. „Ég hef ekki mikla trú á svona yfir- lýsingum og undirskriftum sem tæki í kosningabaráttu. Ég hef miklu meiri trú á því að ganga um og tala við fólk og segja því frá því hvað við viljum gera og hver stefna flokksins er. Ég held að fólk geri upp við sig hvað það vill kjósa á þeim forsendum.“ gs@frettabladid.is Eitt mál í höfn annan hvern dag Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur gert samninga eða gefið yfir- lýsingar um einstakar aðgerðir í heilbrigðismálum að jafnaði annan hvern dag undanfarnar tvær vikur. SLYS Með ólíkindum þykir að eng- inn skyldi slasast í umferðarslysi á Reykjanesbraut, við Lækjar- götu í Hafnarfirði, síðla í gær. Fólksbifreið var ekið í veg fyrir vöruflutningabifreið með þeim afleiðingum að bílstjórar beggja bíla misstu stjórn á þeim. Vöru- flutningabíllinn fór út af götunni og endaði í munna undirganga fyrir gangandi vegfarendur. Meiðsl voru með minnsta móti miðað við aðstæður. Bílstjóri vöru- flutningabílsins meiddist lítillega á fæti og haltraði að sögn lög- reglumanns um á vettvangi eftir slysið. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús en ekki var búist við að hann þyrfti að dvelja þar lengi. Ökumaður fólksbílsins og þrír far- þegar voru fluttir á sjúkrahús. Meiðsl þeirra voru minniháttar. Lögreglumenn á vettvangi ótt- uðust um tíma að einhver kynni að hafa átt leið um undirgöngin á þessum tíma og orðið undir vöru- bílnum. Svo illa fór ekki en ein kona mun hafa verið í göngunum þegar vörubíllinn fór fram af og lenti í inngangi undirganganna. ■ Fimm sluppu ótrúlega vel eftir árekstur á Reykjanesbraut: Bílstjórinn haltraði um eftir slysið LENTI VIÐ MUNNA UNDIRGANGA FYRIR GANGANDI VEGFARENDUR Mikil mildi var að enginn skyldi slasast alvarlega í árekstri fólksbíls og vöruflutningabíls í Hafnarfirði. Vöruflutningabíllinn rann út af göt- unni og endaði för sína við undirgöng fyrir gangandi vegfarendur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T + + SAMNINGAR OG YFIRLÝSINGAR HEILBRIGÐISRÁÐHERRA: 6. maí Samið um rekstur nýrrar heilsugæslustöðvar í Salahverfi í Kópavogi. 6. maí Samið um rekstur nýs fimmtíu rýma hjúkrunarheimilis á Vífilsstöðum. 5. maí Lýst yfir að nýrnaígræðsla og stofnfrumumeðferð muni fara fram á Íslandi. 2. maí Lýst yfir að göngudeild barna- og unglingageðdeildar á Akureyri fái húsnæði. 28. apríl Yfirlýsing um lausn á vanda Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og aukið framlag. 25. apríl Nýtt og endurbætt húsnæði heilsugæslu Hólmavíkur tekið i notkun. „ Ég hef ekki trú á því að þetta skipti sköp- um í kosn- ingabarátt- unni. AZNAR Í WASHINGTON Jose Maria Aznar fundaði með bandarísk- um embættismönnum í gær áður en hann hitti Bandaríkjaforseta að máli. Herskáir Baskar: Bætt á listann WASHINGTON, EL MUNDO Jose Maria Aznar, forsætisráðherra Spánar, fagnaði þeim fréttum að Banda- ríkjastjórn hefði bætt Aðskilnað- arsamtökum Baska, Batasuna, á lista sinn yfir hættuleg hryðju- verkasamtök í heiminum. Aznar hefur lengi barist fyrir að fá þessu framgengt og virðist sem stuðningur Spánverja við stríðs- rekstur Bandaríkjamanna hafi haft einhver áhrif. Þetta þýðir að eignir og banka- innistæður samtakanna verða frystar hvar sem þær finnast og að öll starfsemi Batasuna verður erfiðari. ■ Þingið fær völd: Engin miskunn LONDON, AP David Blunkett, innan- ríkisráðherra Bretlands, tilkynnti nýlega um nýjar reglur sem gefa breska þinginu meiri áhrif á hversu lengi dæmdir glæpamenn dvelja í fangelsi. Talsverð um- ræða hefur verið um það í Bret- landi og víðar hversu dómar fyrir svívirðilegustu glæpi eru oft á tíð- um mildir. Héðan í frá mun þingið geta breytt dómum sem þykja vægir ef ástæður eru fyrir hendi. „Þetta þýðir að héðan í frá mun lífstíð þýða lífstíð fyrir alvarlega glæpi,“ sagði Blunkett af þessu tilefni. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.