Fréttablaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 8. maí 2003
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
05
23
03
/2
00
3
Smáralind
mán.-fös. kl. 11-19
lau. kl. 11-18
sun. kl. 13-18
Glæsibæ
mán.-fös. kl. 10-18
lau. kl. 10-16
OPIÐ
Líkamsræktarföt
eins og þau gerast
best, fyrir konur
á öllum aldri.
Komdu í Smáralind
eða Glæsibæ
og sjáðu úrvalið.
Það er
ekki
eftir
neinu
að bíða.
Byrjaðu strax!
Smáralind - Glæsibæ
Sími 545 1550 og 545 1500
staðar sem við komum. Ég upp-
lifi þetta mikið á vinnustöðum
þar sem ég kem og flyt erindi og
fæ svör. Ég var hér í eina tíð í
kosningabaráttu, bæði til þings
og borgarstjórnar. Ég man ekki
eftir svona vinsamlegum mót-
tökum. Kannski eru Íslendingar
orðnir svona vanir að taka á
móti stjórnmálamönnum. Mér
finnst annað athyglisvert. Mér
finnst almennt að fólk segi, eftir
að ég hef flutt tölu:„Þetta er allt
rétt sem þú ert að segja.“ Það er
ekki að skila sér inn í kosninga-
baráttuna. En við erum ekki
hættir enn.
Guðmundur segist hafa orðið
var við það í viðræðum sínum
við fólk að margir telji að Nýtt
afl sé að moka fylgi inn á Frjáls-
lynda flokkinn. „Sumir telja að
við eigum enga möguleika og
álíta að Frjálslyndi flokkurinn
sé næstur okkar og kjósi þá því.
Sannleikurinn er nú sá að
Frjálslyndi flokkurinn er ekki
að tala um sömu fiskveiðistefnu
og við erum með. Hann er að
tala um að fara inn á færeysku
leiðina sem flestir eru dálítið
hræddir við.“
Röddin verður að heyrast
Fylgi flokksins hefur mælst
lágt í skoðanakönnunum. Bar-
áttan er erfið og verður jafnvel
erfiðari af þeim sökum. „Ég hef
heyrt fólk lýsa áhyggjum af því
að atkvæðin falli dauð ef það
kýs.
Ég er að berjast fyrir málstað
lýðræðisins og segi: Atkvæði í
lýðræðislegum kosningum falla
aldrei dauð. Þau eru alltaf
stuðningur við ákveðinn mál-
stað og ákveðna rödd. Ég er
þeirrar skoðunar að okkar rödd
þurfi að heyrast. Ég er aðeins
hræddur um það að ef við fáum
mjög lítið fylgi muni hinir
stjórnmálaflokkarnir segja sem
svo: Við getum bara gert það
sem við viljum. Þjóðin hefur
ekki áhuga á þessum röngu fjár-
festingum, rangri forgangsröð,
biðlistum og eignatilfærslu. Við
teljum að þetta séu aðalatriði.“
brynjolfur@frettabladid.is
Kosningar 2003:
Jafnt hlutfall
kynjanna á
kjörskrá
KOSNINGAR Kjósendur á kjörskrá
eru 211.289 og skiptist fjöldi á
milli karla og kvenna nokkuð
jafnt, eftir því sem fram kemur
á vefnum www.kosning2003.is.
Konur eru 105.889 en karlar
105.400. Þessar tölur eru þó ekki
alveg endanlegar þar sem
einhverjar leiðréttingar eiga
eftir að verða. Við alþingis-
kosningarnar 8. maí 1999 voru
201.443 kjósendur á kjörskrá og
nemur fjölgunin 9.846 manns,
eða 4,9%. ■