Fréttablaðið - 15.05.2003, Side 13
■ Erlent
13FIMMTUDAGUR 15. maí 2003
Þeir sem eru með F plús
njóta tryggingaverndar
fyrir alla fjölskylduna á
ferðalagi erlendis. Það er
sama hversu margir eru í fjölskyldunni eða hve oft farið
er til útlanda, F plús verndin gildir í allt að 91 dag hverju
sinni.
Að sjálfsögðu býður VÍS líka samsetta ferðatryggingu
fyrir þá sem ekki eru með F plús.
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar í síma 560 5000.
F plús fjölskyldutrygging felur, auk slysatryggingar,
í sér sjúkrakostnaðartryggingu, ferðarofstryggingu og
farangurstryggingu. Sjá nánar í skilmálum F plús
tryggingar.
Með tryggingunni fær fjölskyldan
einnig öryggiskort og aðgang að
neyðarþjónustu SOS International.
Tryggðu þér ánægjulegra frí. Leyfðu
okkur að bera ábyrgðina með þér.
Vátryggingafélag Íslands · Ármúla 3 · 108 Reykjavík · Þjónustuver 560 5000 · www.vis.is
Mundu þá eftir SOS-kortinu!
Ferðatrygging er alltaf innifalin í F plús fjölskyldutryggingunni
Ert þú með F plús tryggingu?
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
7
0
6
7
STYÐJA BANDARÍKJAMENN
Danir munu styðja áfram baráttu
Bandaríkjanna gegn hryðjuverk-
um víðs vegar um heiminn. Þetta
sagði Anders Fogh Rasmussen,
forsætisráðherra Dana, eftir
fund með stjórnvöldum í Wash-
ington. Hann fordæmdi árásirnar
í Sádi-Arabíu. „Bleyðurnar sem
ábyrgar eru fyrir þessum
grimmdarverkum verða hand-
teknar og dæmdar.“
VILJA ÓLYMPÍULEIKANA
París hefur bæst í hóp þeirra
borga sem vilja halda sumar-
ólympíuleikanna árið 2012, sam-
kvæmt frétt franska dagblaðsins
Le Parisien. Alþjóða Ólympíu-
nefndin mun tilkynna hver hlýtur
hnossið í júlí 2005.
ÓKUNNUGIR ÓVELKOMNIR
Í kínverskum sveitaþorpum hafa víða verið
reistir vegatálmar til þess að koma í veg
fyrir heimsóknir ókunnugra sem gætu bor-
ið með sér bráðalungnabólguveiruna.
Óttinn við bráðalunga-
bólguna:
Á náðir hins
yfirnáttúru-
lega
PEKING, AP Í dreifbýlishéruðum
Kína hafa þúsundir snúið sér til
galdramanna í þeirri trú að þeir
geti gert fólk ónæmt fyrir
bráðalungnabólgunni alræmdu.
Yfirvöld, sem leggja traust sitt á
nútímavísindi, hafa árangurslaust
reynt að stemma stigu við þessari
þróun.
Þær sögusagnir komust á kreik
að nýfætt barn hefði skyndilega
hafið upp raust sína og lýst því
yfir að baunasúpa gæti komið í
veg fyrir bráðalungnabólgusmit. Í
kjölfarið margfaldaðist baunasala
í sveitum landsins. Sú trú er
einnig ríkjandi að byssupúður
geti drepið veiruna og sótthreins-
að andrúmsloftið.
Kínverskur þjóðháttafræðing-
ur segir að ótti almennings við
bráðalungnabólguna endur-
speglist í því hversu margir hafi
leitað á náðir hins yfirnáttúru-
lega. „Fólkinu dugir ekki læknis-
fræðileg skýring heldur þarfnast
það einnig félagslegrar og sál-
fræðilegrar skýringar.“ ■
Gassprenging í kola-
námu:
Öryggismál
í ólestri
PEKING, AP Að minnsta kosti 63
verkamenn létu lífið þegar gas-
sprenging varð í kolanámu í aust-
urhluta Kína. Að sögn yfirvalda
eru 23 enn lokaðir inni á um 500
metra dýpi. Litlar líkur eru þó
taldar á því að þeir hafi komist
lífs af. Rannsókn á tildrögum
slyssins er þegar hafin.
Kolanámur í Kína eru þær
hættulegustu í heimi og á síðasta
ári létust yfir 5.000 kínverskir
námaverkamenn við störf sín. Tíð
óhöpp eru meðal annars rakin til
þess hve léleg loftræsting er í
námunum auk þess sem búnaður
til þess að slökkva eld er sjaldnast
fyrir hendi. Yfirvöld segja að það
sé áhugaleysi rekstraraðila sem
veldur því að öryggisreglum er
ekki fylgt. ■
HEIMAÞJÓNUSTA Nefnd á vegum heil-
brigðisráðherra hefur verið skipuð
til að samhæfa þjónustu sveitarfé-
laga og ríkisins við heimahjúkrun
og aðra þjónustu við aldraðra á höf-
uðborgarsvæðinu.
Elsa Friðfinnsdóttir, aðstoðar-
maður heilbrigðisráðherra, segir
tilganginn vera að veita markviss-
ari þjónustu með því að bæði
heimahjúkrun og heimaþjónusta
verði á sömu hendi. Hún segir að
með þessu sé horft til reynslu á Ak-
ureyri og Hornafirði, sem hafi ver-
ið reynslusveitarfélög.
Við þau var gerður samningur
um að þau yfirtækju þátt ríkisins í
heilbrigðisþjónustu og segir Elsa að
reynslan sýni að það sé hag-
kvæmara að hafa þessi mál á
sömu hendi. „Eins og málum er
háttað nú hefur það brunnið við að
heimaþjónustan og heimahjúkr-
unin hafi jafnvel heimsótt fólk á
sama degi og síðan liðið langur
tími á milli. Unnið verður að því
að koma í veg fyrir það þannig að
þjónustan verði markvissari og
nýtist betur.“
Elsa segir að unnið sé í sam-
ræmi við markmið heilbrigðisráð-
herra að aldraðir geti verið eins
lengi heima og kostur er og feng-
ið viðeigandi þjónustu. Til þess
hafi verið veitt 50 milljónum
næstu þrjú árin. ■
ALDRAÐIR HEIMA FREMUR EN Á
HJÚKRUNARHEIMILUM
Í þeim tilgangi er unnið að því að sam-
ræma þjónustuna og gera hana markviss-
ari.
Samræma þjónustuna:
Aldraðir geti búið heima lengur SÓMALAR SNÚA HEIMFlóttamannahjálp Sameinuðu þjóð-
anna sendi hóp Sómala aftur til
föðurlandsins eftir að þrjú þúsund
þeirra fóru fram á það. Sómalarn-
ir, sem flúðu þegar blóðbaðið stóð
sem hæst árið 1991, eru orðnir
þreyttir á flóttanum og hafa hjálp-
arstarfsmenn nú búið svo um að
heimför er möguleg.
BARN FANNST Í KÆLI
Lögregla í Melbourne í Ástralíu yf-
irheyrir nú fimmtán ára gamla
stúlku vegna kornabarns sem
fannst látið í ísskáp á heimili henn-
ar. Lögregla telur stúlkuna eiga
barnið. „Við teljum mjög líklegt að
stúlkan sé móðirin og barnið hafi
fæðst inni á heimilinu. Þetta er allt
ákaflega sorglegt mál.“
■ Erlent