Fréttablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 18
15. maí 2003 FIMMTUDAGUR
Það er auðvelt að segjast beraannarra hag fyrir brjósti, en
miklu erfiðara er að láta verkin
tala. „Put your money where your
mouth is,“ segja þeir í Ameríku
þegar menn eru stórorðir, sérstak-
lega pólitíkusar, en stjórnmála-
menn eru einmitt ósjaldan sakaðir
um að vilja skara eld að eigin köku
áður en þeir nenna
að huga að mygluðu
rúgbrauði almenn-
ings.
Nú þegar þing-
mennirnir okkar
hafa gefið sjálfum
sér og ráðherraliði
18 prósenta launa-
hækkun, kannski í
tilefni mæðradags-
ins, þó bolludagur-
inn hefði reyndar
verið betur við hæfi, hafa þeir
kjörið tækifæri til að sýna hvað
þeir persónulega bera mikla um-
hyggju fyrir hag landsmanna.
Hækkunin barst til „litla fólksins“
Ég skora á þingmenn og ráð-
herra að fara að dæmi Paul heit-
ins Wellstone, þingmanns Minne-
sota-ríkis í öldungadeild Banda-
ríkjaþings, og gefa launahækkun-
ina sína. Wellstone, sem var öflug-
asti talsmaður „litla fólksins“ og
allra þeirra sem minna máttu sín,
lést á síðasta ári í hörmulegu flug-
slysi. Hann var demókrati og afar
umdeildur, en sama hvaða póli-
tískar skoðanir menn höfðu dáð-
ust allir að baráttukrafti hans og
ósérhlífni. Paul Wellstone gaf all-
ar launahækkanir á þingmanns-
tíma sínum til „litla fólksins“, til
góðgerðastofnana, til kvenna- og
barnaathvarfa. Einhverjir hefðu
ef til vill freistast til að láta slíka
rausn fréttast út til kjósenda, en
ekki Paul Wellstone. Flestir
Minnesotabúar lásu um þetta í
minningargreinum um hann. Auð-
vitað verður sárt að hafa ekki
þennan pening. Kannski margir
með jeppa og annan í kaupleigu,
nýbúið að panta ítalska marmar-
ann á baðherbergið og svona. Alls
konar reikningar sem þarf að
borga, við vitum það öll. En það
ætti samt að vera vel þess virði.
Fyrir utan öll atkvæðin sem hægt
verður að hala inn á þessu í næstu
kosningum, er líka möguleiki á að
þessi gjafmildi geti glatt sál gef-
andans (nei, ég er nú ekki að tala
um hvort svona gjöf væri frá-
dráttarbær, en sennilega er hún
það).
Hugað að mygluðu rúgbrauði
Þó að við séum svona fá Ís-
lendingar um þjóðarkökuna (ætti
maður kannski að segja þjóðar-
marengssúkkulaðikaramellu-
rjómatertuna) er meira en nóg af
„litlu fólki“ á Íslandi sem af ein-
hverjum ástæðum er enn að éta
myglað rúgbrauð. Svo það er úr
fjölda móttakenda að velja, mað-
ur þarf ekki endilega að senda
tékkann til Hjálparstofnunar
kirkjunnar eða Kvennaathvarfs-
ins þó þessar stofnanir séu vel að
öllum aurum komnar. Nóg er að
fara bara í einhverja tölvu tengda
launabatteríi t.d. ríkisstarfs-
manna eða ASÍ og senda tékkana
til þeirra þúsunda Íslendinga sem
ætlað er að merja líftóruna úr
rúmum 80 þúsund krónum á mán-
uði. ■
Kynntu þér verðkönnun ASÍ á
ávöxtum og grænmeti sem birtist
í Morgunblaðinu þriðjudag 13. maí
þar sem Bónus er með lægsta
verðið í 40 af 41 tilviki. Og vertu
viss, við erum með stanslausar
verðkannanir, fylgjumst sífellt með
og bjóðum ALLTAF betur!
-að í 19 af 43 tilvikum er
munur á hæsta og lægsta
verði á ávöxtum og grænmeti
meiri en 100% þar af í sex
tilvikum meiri en 200%
305%
og
mest og að minnsti
verðmunur er 28% skv.
verðkönnun ASÍ 2. maí sl.
E
R
A
N
/L
a
n
d
lis
t
OPIÐ TIL HÁLF SJÖ
ekkert
brudl-
Nýtt korta
tímabil
hefst í dag
Vissir þú?
Skynsemin
velur Bónus
Viltu vita meira?
Opnum klukkan tólf
Neytendur geta sparað
Fjárhagsvandi Borgarleikhússinsflýtur enn einu sinni upp á yfir-
borðið. Borgarstjóri og Borgarleik-
hússtjóri ræddust við gegnum
spyril í Kastljósi í
síðustu viku og
f r a m b j ó ð a n d i
Frjálslynda flokks-
ins lýsti áliti sínu í
Fréttablaðinu dag-
inn eftir. Vandinn
virðist viðurkennd-
ur og vilji til úr-
lausna skýr. Guði sé
lof! En eitthvað er bogið við þekk-
ingu og umburðarlyndi stjórnmála-
manna gagnvart leikarastéttinni.
Mjaðmauppskurður á kostnað
leikara
Birgir H. Björgvinsson, fram-
bjóðandi Frjálslynda flokksins,
sýnir frjálslyndi sitt með framúr-
skarandi hætti: „...meðan fólk þarf
að bíða í eitt til tvö ár til að skipta
um mjaðmarlið eða annað slíkt, þá
er ég mótfallinn því að fé sé ausið í
tómstundargaman.“ Með öðrum
orðum ættu leikarar að fá sér heið-
arlega vinnu svo fólk komist í
mjaðmauppskurð. Hverjir fleiri?
Tónlistarmenn, rthöfundar, mynd-
listarmenn? Jú, jú, þetta fólk á ör-
ugglega allt rétt á sér ef það myndi
bara vinna einhverja „arðbæra“
vinnu meðfram þessu tómstunda-
gamni sínu.
Er leikhús
stuðningsverkefni?
Borgarstjóra virtist þykja miður
að leikarar gætu ekki lifað af laun-
um sínum en lét jafnframt út úr sér,
eins og til að réttlæta fátæktina, að
þeir hefðu „...ýmis stuðningsverk-
efni úti í bæ“. Hvað á hann við? Jú,
leikarar starfa í leikhúsunum við
æfingar á daginn og sýningar á
kvöldin og um helgar fyrir lúsar-
laun af því það er svo skemmtilegt.
Svo veitir hinn raunverulegi at-
vinnumarkaður þeim stuðning með
því að greiða það sem upp á vantar
fyrir að lesa útvarpssögur, leika í
íslenskum kvikmyndum, færa
barnasjónvarpsefni á íslenskt mál,
leika í auglýsingum og fleira smá-
legt. Er þetta ekki sanngjarnt?
Ekki er hægt að ætla annað af
máli og fasi borgarstjórans í
Reykjavík í Kastljósþættinum en
að hann sé allur af vilja gerður til
að leysa vanda Borgarleikhússins.
Það er frábært. Vonandi tekst
honum það. En vegur það ekki að
starfsheiðri allra leikara að kalla
álags- og aukavinnu þeirra
„stuðningsverkefni“? Kannski
meinti hann þetta ekki og valdi
röng orð í veikindum sínum.
(Hann var hás og hálfsljór til
augnanna). ■
Hættumat í umhverfi okkarhefur sannað sig og þróast
verulega á allri síðustu öld. Ekki
svo að skilja að hættunum hafi
verið eytt, heldur hafa kröfur
okkar og atferli breyst. Þar sem
við áður þurftum
að sýna varkárni
og gá vel að okkur,
viljum við nú geta
gengið af öryggi
með lokuð augun.
Kannanir á láði,
legi, vindum og
veðri, hönnun
skipa, flugvéla og
annarra farar-
tækja er orðin það
fullkomin að ekk-
ert ófyrirsjáanlegt
á að geta gerst.
Þrátt fyrir það fórst ferja á
milli Noregs og Danmerkur í apr-
íl 1990 þar sem 158 manns létust,
og önnur tæpum 5 árum síðar á
milli Eistlands og Svíþjóðar, sem
tók með sér 852 líf. Ofangreint
eru bara tvö dæmi. Dæmi um
stórslys þrátt fyrir að hættumat
sjóferða um allan heim hafi eytt
öllum vafa um öryggi, með rann-
sóknum og útreikningum á því
umhverfi, sem við ferðumst í.
Falskt öryggi
Enginn getur sagt fyrir um bíl-
slys, sjóslys eða flugslys. Ein af
þeim fáu hættum sem hægt er að
segja fyrir um á okkar tímum er
snjóflóðahætta. Þökk veri þeim
sem við störf sín geta sameinað vís-
indi og reynslu. Þeir eru ekki marg-
ir í dag, en það væri ómaksins vert
að nýta krafta þeirra til að miðla
þekkingunni. Nú þegar allt þarf að
vera vísindalega rannsakað af há-
skólum og stofnunum, er að sjálf-
sögðu reynt að finna þeim staði á
landsbyggðinni. Hér á Ísafirði væri
kannski ekki úr vegi að koma á fót
stofnun snjóflóða- og snjóalaga-
rannsókna, með það að markmiði að
koma í veg fyrir slys af völdum
flóða, í stað þess að byggja okkur ef
til vill falskt öryggi í formi varnar-
garða.
Staðsetning ofanflóðavarna
Það má færa fyrir því rök, að
snjóflóð gæti fallið innan við Bása
með þeim afleiðingum að það kæmi
af stað flóðbylgju sem drekkir Eyr-
inni. Enn fremur má færa fyrir því
rök að það sé óðs manns æði að búa
undir Gleiðahjallanum eða Kubban-
um. Hættumatsnefnd ofanflóða-
nefndar hefur ákveðið (til að byrja
með) að skikka sveitarfélag Ísa-
fjarðar til að byggja ofanflóðavörn í
Múlanum við Seljaland, akkúrat á
þeim stað sem minnstar líkur eru á
ofanflóði af nokkru tagi. En þar er
hentugasti staðurinn til æfinga, að
sýna náttúrunni í tvo heimana.
Landið hefur mótast í þúsundir
ára, í það form sem því líður best.
Ýmsu getum við hagrætt, og reyn-
um gjarnan að ala umhverfi okkar
upp, svo að það hagi sér eins og við
viljum.
Að ráðast á og refsa umhverfinu
með þeim hætti sem nú er fyrirhug-
aður, verður ævarandi minnisvarði
augnabliks reiði og vanmáttar gagn-
vart náttúruöflunum.
Og þar með minnisvarði um
okkar versta fjanda, sem er þá
álitinn vera það umhverfi sem við
lifum í. ■
Þjóðmál
maí 2003
PÉTUR
TRYGGVI
HJÁLMARSSON
■ skrifar um ofan-
flóðavarnir á Ísafirði.
Þjóðmál
maí 2003
BERGUR ÞÓR
INGÓLFSSON
■ leikari skrifar um
málefni Borgarleik-
hússins.
Þjóðmál
maí 2003
ÍRIS ERLINGS-
DÓTTIR
■ fjölmiðlafræðingur,
búsett í Minnesota í
Bandaríkjunum, skrifar
um launahækkun
ráðamanna.
■
Ofanflóða-
nefnd hefur
ákveðið að
skikka sveitafé-
lag Ísafjarðar
til að byggja of-
anflóðavörn í
Múlanum við
Seljaland,
akkúrat á þeim
stað sem
minnstar líkur
eru á ofanflóði
af nokkru tagi.
Varnir og hættumat
í fræðilega óöruggri náttúru
■
Kannski geta
þessar 38
manneskjur
sem sagt var
upp í Borgar-
leikhúsinu látið
skipta um
mjaðmarlið.
■
Ég skora á þing-
menn og ráð-
herra að fara að
dæmi Paul heit-
ins Wellstone,
þingmanns
Minnesota-ríkis
í öldungadeild
Bandaríkja-
þings, og gefa
launahækkun-
ina sína.
Sælla er að gefa en þiggja
Leikhús – tómstundagaman
eða stuðningsverkefni?