Fréttablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 45
Fréttiraf fólki
45FIMMTUDAGUR 15. maí 2003
Söng-
björgunar-
sveit
TÓNLEIKAR Björgunarsveitin Ár-
sæll og Þingeyingakórinn hafa
tekið höndum saman um fjáröfl-
un. Björgunarsveitin tók að sér
forsölu miða á tónleika kórsins.
Tónleikarnir verða í Gerðubergi
næstkomandi laugardag, en for-
sala á þá er hafin í Gróubúð að
Grandagarði á vegum björgun-
arsveitarinnar.
Á tónleikunum verða sungnir
negrasálmar og íslensk alþýðu-
lög auk nokkurra sönglaga eftir
kórstjórann Kára Friðriksson. ■
Akureyringar í höfuðstaðnumhafa fyrir sið að koma saman
reglulega og lyfta sér upp og efla
samkenndina. Nú er eitt Akureyr-
ingakvöld í aðsigi
og verður það hald-
ið í Versölum við
Hallveigarstíg
næstkomandi laug-
ardagskvöldið. Boð-
ið verður upp á ít-
alskt hlaðborð. Vitað er til þess að
forkólfar gleðinnar, þeir Raggi Sót
og Jón Haukur, sem jafnan er
kallaður „Þögli útvarpsmaðurinn“,
hafa gert sitt til að fá rándýra
skemmtikrafta fyrir lítið: Hannes
töframann, Kristján Jóhannsson,
Jón Bjarnason úrsmið og Bara-
flokkinn og sjálfan MA-kvartett-
inn. Ekki fylgir sögunni hvort þeir
höfðu erindi sem erfiði. Ráðgert
er að veislustjóri verði Logi Már
Einarsson arkitekt, sem ef til vill
er betur þekktur sem dansari
Skriðjöklanna. Að skemmtidag-
skrá lokinni sér DJ Jón kvart-
milljón frá Grænhóli um fjörið.