Fréttablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 34
KVIKMYNDIR The Matrix er hugar-
fóstur bræðranna Andy og Larry
Wachowski sem skrifa handritið og
leikstýra. Velgengni fyrstu Matrix-
myndarinnar gerði það að verkum
að þeir fengu ótakmörkuð fjárráð til
þess að klára söguna, sem þeir segj-
ast alltaf hafa hugsað sér sem þrí-
leik. Þeir ákváðu að taka framhalds-
myndirnar tvær upp í einum rykk
og aðdáendur The Matrix fá því tvö-
faldan skammt í ár. Millikaflinn,
The Matrix Reloaded, verður sjálf-
sagt ein stærsta mynd sumarsins og
þegar skyggja tekur í vetur mun
The Matrix Revolutions etja kappi
við lokakafla Hringadróttinssögu í
kvikmyndahúsum úti um allan
heim.
Bræðurnir hafa tekið sér fjögur
ár til þess að reyna að toppa sjálfa
sig og ekkert hefur verið til sparað.
Framhaldsmyndirnar tvær voru
teknar á 18 mánuðum í Ástralíu og
kostuðu rúmlega 300 milljón dollara
í framleiðslu, en það er um það bil
fimm sinnum meira en kostaði að
gera fyrstu myndina.
Þroskasaga Neo
The Matrix halaði inn 460 millj-
ónir dollara í miðasölum úti um all-
an heim en hefur það óneitanlega
fram yfir það sem koma skal að árið
1999 var The Matrix eitthvað alveg
nýtt. Kröfuharðir aðdáendur biðu
ekki, væntingarnar voru engar og
vinsældirnar komu öllum á óvart,
ekki síst bræðrunum og framleið-
andanum Joel Silver. Nú er öldin
önnur og The Matrix Reloaded og
The Matrix Revolutions þurfa að
standast gríðarlegar kröfur sem
hafa magnast hjá áhangendum
frummyndarinnar í fjögur ár.
Tölvuhakkarinn Thomas A. And-
erson (Keanu Reeves) komst að
raun um það í The Matrix að mann-
kynið liggur í dvala í sýndarveru-
leika sem tölvur hafa skapað því og
eru í raun ekkert annað en þrælar
vélanna. Lítill hópur uppreisnar-
manna með töffarann Morpheus
(Laurence Fishburne) og þröng-
klæddu ofurgelluna Trinity (Carrie-
Anne Moss) í broddi fylkingar
svipta hulunni frá augum Ander-
sons og upplýsa hann um að sam-
kvæmt véfréttarspádómi sé hann,
Neo, eina von mannkynsins.
Keanu Reeves segir að í fyrstu
myndinni hafi áhorfendur fengið að
fylgjast með fæðingu hetju, „önnur
og þriðja myndin greina svo frá lífi
hetjunnar“. Neo hefur náð að þróa
hæfileika sína enn frekar frá því við
skildum við hann fyrir fjórum árum
en gerir sér þó ljóst að hann á margt
ólært um uppbyggingu Matrixins
og hvaða hlutverki hann hefur að
gegna fyrir framtíð mannkynsins.
Til bjargar Zion
Neðanjarðarborgin Zion er síð-
asta athvarf mannfólksins, það er
að segja þeirra sem ekki sofa blekk-
ingarsvefninum langa. Áhorfendur
fá fyrst núna að berja Zion augum
þar sem Wachowski-bræður skorti
einfaldlega fjármagn til þess að
koma henni að í fyrstu myndinni.
Borgin er við það að falla í hendur
vélunum og endalok mannkynsins
blasa við. Neo og Trinity hafa aftur
á móti öðlast aukinn styrk í krafti
ástar sinnar og sjálfsöryggis og af-
ráða því að fara aftur inn í Matrixið
með Morpheusi og bjóða vélunum
birginn.
Öflugir nýliðar
Allar aðalpersónur fyrstu mynd-
arinnar eru því mættar aftur til
leiks, auk þess sem fjöldi nýrra per-
sóna hefur bæst í hópinn. Þeirra á
meðal eru Niobe, sem hin ábúðar-
mikla Jada Pinkett Smith leikur.
Hún falaðist á sínum tíma eftir hlut-
verki Trinity, án árangurs, en fær
núna að vera með í hlutverki fyrr-
verandi kærustu Morpheusar. Hún
ber þó enn hug til gamla kærastans
og óhlýðnast yfirboðurum sínum
með því að liðsinna Morpheusi.
Lyklasmiðurinn er einnig ný
mikilvæg aukapersóna en hann get-
ur opnað allar dyr Matrixins fyrir
Neo. Þá kynnist Neo einnig
Persephone, sem franska þokka-
gyðjan Monica Bellucci (Malena, Ir-
revérsible) leikur. Hún er tálkvendi
sem er gift nýjum skúrki sem nefn-
ist Merovingian. Sá er með Lykla-
smiðinn í haldi og hefur lítinn áhuga
á frjálsum vilja og öllu því sem Neo
berst fyrir. Þá má ekki gleyma Tví-
burunum, náhvítum morðtólum í
þjónustu Merovingian. Þeir eru ein-
hvers konar draugaforrit og geta
skipt um lögun og skotið upp kollin-
um hvar sem er. Það eru karatetví-
burnarnir Neil og Adrian Rayment
sem leika þessi óféti, sem væntan-
lega eru kærkomin viðbót í
skúrkagallerí Matrixins.
Kröfuharðir aðdáendur
Væntingarnar áhorfenda til Neo
og félaga eru vitaskuld miklar en
eins og Morpheus benti Neo á í
fyrstu myndinni er ekki hægt að
útskýra hvað Matrixið er. Menn
verða einfaldlega að komast að því
sjálfir. Sömu sögu er að segja af
myndunum og hver verður að
dæma um það fyrir sig hvort sú
þrotlausa vinna sem leikarar og aðr-
ir aðstandendur hafa lagt á sig skili
sér í betra bíói en The Matrix.
Talnaspekingarnir hafa hins vegar
litlar áhyggjur og ganga að því sem
gefnu að samanlagt muni myndirn-
ar ná inn rúmlega einum milljarði
Bandaríkjadala í miðasölunni, en
það hefur ekki gerst síðan James
Cameron sökkti Titanic með bravúr
árið 1997.
thorarinn@frettabladid.is
34 15. maí 2003 FIMMTUDAGUR
Það er ekki hægt að
útskýra hvað Matrix er
Langþráð framhaldið af The Matrix verður frumsýnt um helgina og enginn efast um að á ferð-
inni sé mikil veisla fyrir augu og eyru. Dyggir aðdáendur fyrstu myndarinar óttast þó að frum-
leikinn sem einkenndi fyrstu myndina sé ekki lengur til staðar.
Eina von mannkynsins:
Svalur blær yfir fjöllunum
THE MATRIX Kvikmyndaunnendur
fá sjálfsagt seint leið á því að
deila um leikhæfileika Keanu
Reeves. Fólk virðist almennt sam-
mála um að drengurinn sé fagur á
að líta en það breyti engu um það
að hann sé marflatur í allri tilfinn-
ingatúlkun sinni á hvíta tjaldinu.
Það verður þó ekki af drengnum
tekið að hann er naskur þegar það
kemur að hlutverkavali og hann
skýtur reglulega upp kollinum í
stórsmellum og er því alltaf að
nálgast efsta launaflokk í
Hollywood þó hann leiki inn á
milli í afleitum myndum sem falla
marflatar.
Keanu Reeves fæddist í Beirút
í Líbanon árið 1964. Móðir hans
var sýningarstúlka og faðir hans
jarðfræðingur og þau gáfu honum
þetta sérkennilega nafn sem er
hawaiískt og þýðir „svalur blær
yfir fjöllunum.“
Reeves vakti fyrst verulega at-
hygli í hinni sýrðu tímaflakks-
gamanmynd Bill & Ted’s Exellent
Adventure árið 1989 en reyndi
síðan á næstu árum að hrista
trúðsímyndina af sér með alvar-
legum myndum eins og My Own
Private Idaho, Dracula og Much
Ado About Nothing. Ferill hans
tók góðan kipp með Speed árið
1994. Næstu myndir gerðu ekki
sömu lukku en árið 1999 hitti hann
aftur beint í mark með The
Matrix.
Reeves hefur svo gert lítið af
viti síðan The Matrix sló í gegn og
hvað tekur við hjá honum að Mat-
rixævintýrinu loknu er svo
ómögulegt að segja. ■
KEANU REEVES
Honum virtist þó ekki ætla að takast að
fylgja velgengninni eftir á næstu árum en
gæfan snerist honum heldur betur í hag í
miðasölunni árið 1999 þegar hann var
fremstur í flokki vasks hóps sem barðist
gegn ofríki tölvudrottnara í sýndarveruleika
Matrixins.
SLAGSMÁL Í SÝNDARVERULEIKA
Nýjar og æði skrautlegar persónur mæta til leiks í The Matrix Reloaded. Þar á meðal eru
hinir illskeyttu draugatvíburar sem gera Neo og félögum lífið leitt.
Gifssteinar fyrir
milliveggi og aðra
breytingarvinnu.
www.gifsverk.is
Skin Vitality
rakakremið
er loksins komið aftur.
Debenhams, Smáralind,
Lyf og heilsu, Kringlunni