Fréttablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 22
22 22. maí 2003 FIMMTUDAGUR
L J Ó S M Y N D A S T Ú D Í Ó
P É T U R P É T U R S S O N
FÓTBOLTI Ástralinn Jim McQuillan,
ákafur stuðningsmaður Celtic,
leggur í næstu viku í langt ferða-
lag frá heimalandi sínu til Sevilla
til að sjá félagið leika til úrslita í
UEFA-bikarkeppninni við Porto.
McQuillan, sem bjó í Glasgow í
þrettán ár, hefur greinilega náð að
temja sér sparsemi Skotanna.
Með útsjónarsemi tókst honum að
raða saman hagstæðum tilboðun-
um á flugleiðinni til Spánar. Ferð-
in verður að vísu lengri og tíma-
frekari fyrir vikið en hann kemst
til Sevilla eftir 62 tíma flug í tíu
áföngum.
Rod Stewart fer hins vegar
ekki lengri leiðina til Spánar ef
marka má enska dagblaðið The
Sun. Stewart og tólf vinir hans
fljúga í einkaþotu til Spánar og
dvelja á glæsihóteli á kostnað
söngvarans. Stewart hefur lengi
verið ákafur stuðningsmaður
Celtic og ætlar ekki að missa af
fyrsta úrslitaleik félagsins í Evr-
ópukeppni í 33 ár. ■
UEFA-bikarkeppnin:
62 tíma
á flugi
LARSSON
Jim McQuillan ætlar að ferðast í 62 klukkustundir til að fylgjast með Svíanum Henrik Lars-
son og félögum hans í Celtic etja kappi við Porto.
FÓTBOLTI Landsbankadeild kvenna
hefst á laugardag með leik Breiða-
bliks og Þórs/KA/KS í Kópavogi.
Fyrstu umferð lýkur með þremur
leikjum á þriðjudag. Miðað við
leiki vormótanna og breytingar á
leikmannahópum félaganna ætti
keppnin í sumar að verða jafnari
en í fyrra og er útlit fyrir að
Breiðablik, ÍBV, KR og Valur berj-
ist um titilinn.
Félagskipti Olgu Færseth voru
helstu tíðindin af kvennaknatt-
spyrnunni í vetur. Hún gekk til
liðs við ÍBV eftir að hafa leikið
með KR í átta ár. Bretarnir
Michelle Barr, Karen Burke og
Mhairi Gilmour leika með ÍBV í
sumar, Gilmour í fyrsta sinn, Barr
þriðja árið í röð en Burke lék með
Eyjastúlkum árin 1998 til 2000.
Fyrirliðinn Íris Sæmundsdóttir
leikur einnig að nýju með ÍBV í
sumar.
Valur hefur leikið best í vor og
sigraði bæði á Reykjavíkurmótinu
og í deildabikarkeppninni. Félagið
mætir til leiks með sterkari hóp en
í fyrra. Guðbjörg Gunnarsdóttir,
Pála Marie Einarsdóttir og Nína
Ósk Kristinsdóttir hafa sýnt í vor-
leikjunum að þær eru góður liðs-
styrkur fyrir Val en einnig endur-
heimti Valur tvo fyrrum liðsmenn
félagsins, Laufeyju Ólafsdóttur og
Rakel Logadóttur, frá ÍBV. ■
Landsbankadeild kvenna:
Útlit fyrir jafna
keppni í sumar
OLGA FÆRSETH
Olga Færseth leikur með ÍBV í sumar.