Fréttablaðið - 15.05.2003, Side 38
15. maí 2003 FIMMTUDAGUR
Liðið í Cold Feet á Stöð 2 ermætt til leiks að nýju. Komin
frá Ástralíu og ýmislegt hefur á
daga þeirra drifið.
Ég og mitt fólk
fögnum alveg sér-
staklega og nú hef
ég eitthvað að
hlakka til fyrri
hluta vikunnar.
Þeim er sannar-
lega ekki fisjað
saman Bretunum
þegar gerð sjónvarpsþátta er ann-
ars vegar. Vel leiknir, gott hand-
rit, mátulegur húmor og kómískir
leikarar sem eru ógleymanlegir í
hlutverkum sínum. Ekki man ég
hvað þeir heita en ég hef yndi
bæði af þeim sem vill hafa
mömmu góða og hinum sem var
að eignast barnið og er þegar orð-
inn afbrýðisamur.
Þáttur David Attenborough á
mánudagskvöldum um lífshætti
spendýra er ekki síðra sjónvarps-
efni, þótt í ólíkum búningi sé. Fyr-
ir áhugamanneskju um skepnur
jarðar er hann algjört sælgæti og
ég reyni að missa ekki af honum.
Að sama skapi eru dýrin á heimil-
inu spennt og horfa með athygli.
Jafnvel kötturinn gefur skjánum
gaum á meðan. Í hita leiksins æs-
ist þó önnur tíkin og vill inn í tæk-
ið.
David hefur lag á að segja
skemmtilega frá og hann talar
fallegt mál sem auðvelt er að
skilja. Ótrúlegt hvað hann getur
komist nálægt til að taka myndir
og ég get rétt ímyndað mér hve
langan tíma þetta hefur tekið og
miklu hefur verið til kostað. Ár-
angurinn er líka eftir því. ■
Sjónvarp
BERGLJÓTU DAVÍÐSDÓTTUR
■ finnst Cold Feet og Lífshættir spendýra
eiga fátt sameiginlegt nema þjóðernið. Á
hennar heimili er beðið með eftirvænt-
ingu eftir báðum þáttunum.
Algjört sælgæti
20.00 Kvöldljós
21.00 Bænastund
21.30 Joyce Meyer
22.00 Benny Hinn
22.30 Joyce Meyer
Á Breiðbandinu má finna 28
erlendar sjónvarpsstöðvar sem
seldar eru í áskrift og þar af eru
6 Norðurlandastöðvar. Að auki
sendir Breiðbandið út flestar ís-
lensku útvarpsrásirnar ásamt 10
erlendum tónlistarrásum með
mismunandi tónlistarstefnum.
18.00 Olíssport Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
18.30 Western World Soccer Show
(Heimsfótbolti West World)
19.00 Pacific Blue (2:22) (Kyrra-
hafslöggur) Aðrir lögregluþjónar líta nið-
ur á Kyrrahafslöggurnar vegna þess að
þær þeysast um á reiðhjólum í stað
kraftmikilla glæsibifreiða. Allar efasemd-
araddir eru þó þaggaðar niður þegar
löggurnar þeysast á eftir glæpamönnum
á rándýrum ferðamannaströndum Kali-
forníu og koma þeim á bak við lás og
slá.
20.00 US PGA Tour 2003 (Golfmót í
Bandaríkjunum)
21.00 European PGA Tour 2003 (Golf-
mót í Evrópu)
22.00 Football Week UK (Vikan í
enska boltanum)
22.30 Olíssport Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
23.00 HM 2002 (Kamerún - Þýska-
land)
0.45 Dagskrárlok og skjáleikur
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Sögur storksins (2:7)
18.30 Snjókross (12:12)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljósið
20.00 Lögin í söngvakeppninni (1:8)
20.15 Heimsins erfiðasta maraþon-
hlaup (19-Direkte: Verdens hårdeste
maratonlöb) Danskur þáttur um sjö daga
kapphlaup í Sahara-eyðimörkinni þar
sem keppendur hlaupa u.þ.b. 240 kíló-
metra og verða að bera vistir til vikunnar.
20.50 Í einum grænum (2:8)
21.15 Lögreglustjórinn (1:22) (The
District) Sakamálasyrpa um Jack
Mannion, hinn skelegga lögreglustjóra í
Washington, sem stendur í ströngu í bar-
áttu við glæpalýð og við umbætur innan
lögreglunnar.Aðalhlutverk: Craig T. Nel-
son, John Amos, Jayne Brook og Justin
Theroux.
22.00 Tíufréttir
22.20 Bjargið mér (1:6) (Rescue Me)
Sally Phillips úr þáttunum Út í hött
(Smack the Pony) er í aðalhlutverki í
þessum breska gamanmyndaflokki. Hún
leikur Katie Nash, blaðakonu á kvenna-
tímaritinu Eden og bunar út úr sér grein-
um um ást og rómantík en um leið er
hún að reyna að bjarga hjónabandi sínu
sem er í molum eftir að hún hélt fram
hjá manninum sínum með besta vini
hans.
23.10 Af fingrum fram (1:24)
23.50 Kastljósið
0.10 Dagskrárlok
6.58 Ísland í bítið
9.00 Bold and the Beautiful
9.20 Í fínu formi
9.35 Oprah Winfrey
10.20 Ísland í bítið
12.00 Neighbours
12.25 Í fínu formi (Þolfimi)
12.40 Reba (19:22)
13.00 American Dreams (7:25)
13.45 The Guardian (2:22)
14.30 Behind the Music: Ozzy Os-
bourn
15.15 Smallville (13:23)
16.00 Barnatími Stöðvar 2
17.40 Neighbours
18.05 Off Centre (8:21)
18.30 Fréttir Stöðvar 2
19.00 Ísland í dag, íþróttir,
19.30 Animatrix
19.50 Friends 3 (25:25)
20.15 Jag (20:24)
21.05 Third Watch (10:22)
21.50 Oz (2:16) (Öryggisfangelsið)
Þrýstingurinn á Glynn að reka Tim eykst,
Beecher borgar syni Vern fyrir að heim-
sækja hann, Said hættir við ákæruna
gegn fylkinu og þeir Busmalis og Miguel
hverfa.
22.45 Taking of Pelham One Two Thre
(Lestarránið) Endurgerð klassískrar
spennumyndar frá 1974. Fjórir glæpa-
menn ræna farþegalest í New York og
heimta fimm milljónir dala í lausnarfé
fyrir farþegana. Tíminn er senn á þrotum
fyrir lögregluna að frelsa gíslana áður en
þeir deyja einn af öðrum. Aðalhlutverk:
Edward James Olmos, Vincent D’Onofrio,
Richard Schiff, Donnie Wahlberg. 1998.
Bönnuð börnum.
0.15 The Jack Bull (Skepnuskapur)
Aðalhlutverk: John Cusack, John Goodm-
an, L.Q.Jones.1999. Bönnuð börnum.
2.05 Friends 3 (25:25)
2.25 Ísland í dag, íþróttir, veður
2.50 Tónlistarmyndbönd frá Popp
TíVí
6.10 Pootie Tang
8.00 Simply Irresistable
10.00 The Flintstones in Viva
12.00 Ben Hur
15.25 Simply Irresistable
17.00 Camelot - The Legend
18.10 The Flintstones in Viva
20.00 Pootie Tang
22.00 The Untouchables
0.00 Pearl Harbor
3.00 Screwed
4.20 The Untouchables
7.00 70 mínútur
16.00 Pikk TV
19.00 XY TV
20.00 Pepsí listinn
22.03 70 mínútur
23.10 Trailer
23.40 Meiri músík
18.30 Fólk - með Sirrý (e)
19.30 Grounded for life (e)
20.00 Malcolm in the middle Hinir
feiknavinsælu þættir um Malcolm í mið-
ið hafa svo sannarlega slegið í gegn á Ís-
landi en þeir snúast um prakkarastik
Malcolm og bræðra hans og undarleg
uppátæki föður hans og móður.
20.30 Life with Bonnie
21.00 The King of Queens Arthur
kveikti í húsinu sínu og situr nú uppi á
Carrie dóttur sinni og Doug eiginmanni
hennar. Hann er þeim óþægur ljár í
þúfu, alltaf á kvennafari og að skemmta
sér. En verst er að hann sefur í sjón-
varpsherberginu hans Doug. Carrie er
kvonfang af bestu sort og vinnur á lög-
mannastofu en Doug keyrir sendibíl með
aðra hönd á stýri og ávallt í stuttbuxum.
21.30 Everybody Loves Raymond -
Lokaþáttur Raymond Romano er virtur
og víðfrægur dálkahöfundur en í þeim
kryfur hann íþróttir og íþróttamenn á eit-
ursnjallan hátt. Heima fyrir þykir hann
hins vegar mesti heimskingi og heimsku-
pör fremur hann oft á dag, eiginkonu
sinni til mikillar armæðu. Enn aukast
raunir hennar er litið er yfir götuna því
þar búa tengdaforeldrar hennar og mág-
ur og er það allsvakalegt hyski.
22.00 Bachelorette - Lokaþáttur
22.50 Jay Leno
23.40 Law & Order (e)
0.30 Dagskrárlok
Doug og Carrie eru boðin í brúð-
kaup í Maryland. Þau ákveða að
þiggja boðið, fara samt ekki en
þykjast hafa farið. Doug segir
Deacon og Kelley að láta sem
þau séu þarna en kemst þá að
því að þau ætla ekki heldur. Þau
verða þá að flýta sér í hvelli í
brúðkaupið til að láta sjá sig.
Arthur undirbýr svikamyllu sem
byggir á því að Spence verður
að þykjast vera sonur hans.
Skjár 1
21.00 Stöð 2 20.15
Friðargæsluliðar
í gíslingu
■
Fyrir áhuga-
manneskju um
skepnur jarðar
er hann algjört
sælgæti og ég
reyni að missa
ekki af honum.
38
The King of
Queens
SJÓNVARP Gamanleikarinn Dan
Aykroyd, sem er líklegast
þekktastur fyrir leik sinn í
myndunum „The Blues
Brothers“, „Ghostbusters“ og
„Dragnet“, hefur fengið það
hlutverk að kynna þátt af Satur-
day Night Live. Þetta myndi lík-
legast ekki teljast til tíðinda ef
hann hefði ekki skotist upp á
sjónarsviðið fyrir leik sinn í
sjónvarpsþáttunum.
Hann mun bætast í leikara-
hópinn fyrir lokaþátt núverandi
seríu sem fer í loftið í Banda-
ríkjunum á laugardag.
Tónlistaratriði þáttarins
verður í höndunum á Beyoncé
Knowles úr Destiny’s Child.
Dan Aykroyd var einn af leik-
urum Saturday Night Live á ár-
unum 1975-1980. Þar gerði hann
stólpagrín að ýmsum þjóðþekkt-
um persónum, þar á meðal
Bandaríkjaforsetunum Richard
Nixon og Jimmy Carter.
Aykroyd var tilnefndur til
Óskarsverðlauna árið 1990 fyrir
leik sinn í myndinni „Driving
Miss Daisy“. ■
DAN AYKROYD
Er þekktastur fyrir grínhlutverk sín en hefur einnig tekið að sér alvarlegri hlutverk.
Dan Aykroyd:
Snýr aftur í gamla
þáttinn sinn
Harmon Rabb, bráðsnjall
flugmaður og skarpur lögfræð-
ingur, er aðalsöguhetjan í Jag,
dramatískum myndaflokki sem
hefur notið mikilla vinsælda í
Bandaríkjunum. Hann er fremst-
ur í flokki í lögfræðingasveit
flotans sem glímir við erfið mál
eins og morð, föðurlandssvik og
hryðjuverk. Í þætti kvöldsins
reynir á Harm og félaga sem
aldrei fyrr. Þrír friðargæsluliðar
eru teknir í gíslingu í Kosovo og
hópur hermanna er sendur þeim
til bjargar. Björgunarsveitin
lendir í vandræðum á leiðinni
og kemst ekki í tæka tíð. Friðar-
gæsluliðarnir eru myrtir og
skuldinni er skellt á hermennina
en það kemur í hlut Harms að
taka upp hanskann fyrir þá.
Hótel á miklu athafnasvæði færi!
Af sérstökum ástæðum býðst
rótgróið hótel nánast í túnfæti
álversframkvæmda á Austurlandi.
Álversframkvæmdum fylgja mikil
umsvif sem kalla á mikla þörf fyrir
gistiaðstöðu, veitingastað og bar.
Þetta er til staðar hér.
Um er að ræða 7 ágætlega búin
tveggja manna herbergi, veitingasal
og bar.
Hótelið er til afhendingar strax.
Seljandi skoðar ýmis skipti og
greiðslukjör.
Fjöldi mynda á heimasíðunni
www.fyrirtaekjasala.is
Ásett verð er 15 millj
og áhvílandi eru 8 millj.
Skoðaðu alla söluskrána á heimasíðunni
www.fyirtaekjasala.is
Síðumúla 15 Sími: 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
Löggiltur fasteigna-
og fyrirtækjasali.