Fréttablaðið - 02.06.2003, Page 37

Fréttablaðið - 02.06.2003, Page 37
MÁNUDAGUR 2. júní 2003 17 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 5.30, 8, og 10 b.i. 16 SKÓGARLÍF 2 m/ísl tali kl. 5.30HOW TO LOOSE A GUY ... kl. 7 Sýnd kl. 5.30, 8, 10.30 b.i. 12 ára Sýnd kl. 5.50, 8, 9.05, 10.10 og 11.15 Sýnd kl. 6, 8 og 10 bi 16 Sýnd kl. 6 og 9XMEN 2 VIEW FROM THE TOP kl. 6, 8 og 10 DARKNESS FALLS kl. 6, 8 og 10 bi 16 Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i 16 Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15 bi 14. ára                  !!  "#" $ %  & %  ( ) * ! +%   ) * ,   * % % !   %  ( %, ! +  -'  % %"  ./* !  0&10234 51036  5$7 183  9:;38<0  * +" +  =>? @' A %  Leikir sem byggja á stríðum erualgengir þar sem ekki þarf að skálda sögusviðið og óvininn. Nasist- ar eru t.d. mikið notaðir í leikjum, m.a. vegna þess að það er „í lagi“ að drepa þá vegna þess að þeir voru svo vondir. Fyrstu persónu skotleikurinn VietCong byggir á Víetnam-stríðinu og ræður sjónarmið Bandaríkja- manna algjörlega ferðinni hvað varðar umgjörð og söguþráð. Ég er kannski ekki alveg sáttur við að þurfa að feta í þau fótspor en horfi ég hins vegar framhjá því stendur eftir hinn ágætasti leikur. Grafíkin er ekki í hæsta klassa en ágæt þó. Umhverfi leiksins kom reyndar á óvart fyrir það hversu raunveruleg það er og á það einnig við um hljóðið og talsetninguna, sem er afar vel unnin. Einn vélbyssuher- maður var reyndar aðeins of gjarn á að gjamma „Damn commies“ og fór nett í taugarnar á mér. Ég fyrirgef hönnuðum leiksins samt nánast allt fyrir að láta „I Wanna Be Your Dog“ með The Stooges hljóma í tilkomu- miklu upphafsatriðinu. Afar hresst. Einnig hefur einhver verið fenginn til að glamra eitthvað Hendrixlegt til að hafa með í valmyndum og slíku. Fín grafík, fínt hljóð og ágæt mission. Semsagt, fínn leikur fyrir þá sem vilja fíla sig sem bandarísk- an táning í Vietnam árið 1969. Gunnlaugur Lárusson Umfjölluntölvuleikir Leikur fyrir stríðsglaða VIETCONG (PC) ANGELINA JOLIE OG BILLY BOB THORNTON Á meðan allt lék í lyndi. Tveggja ára hjóna- bandi þeirra er nú lokið. Hjónin fyrrverandi skrifuðu undir skilnaðarpappírana á þriðju- daginn. Narc (Fíknó) fjallar um leittveggja fíkniefnalögreglu- manna í Detroit að banamanni starfsbróður þeirra. Þetta er ekki mynd fyrir viðkvæmar sálir, ekki vegna þess að veröld fíkniefnaneyt- enda sé svo ofbeldisfull og dapurleg heldur vegna þess að leikstjóri myndarinnar hefur tröllatrú á því að nákvæmar upptökur á blóðslettum og barsmíðum séu besta leiðin til að fanga athygli bíógesta. Það sem ger- ir þessa mynd áhugaverða fyrir áhugafólk um kvikmyndir er fyrst og fremst stjörnuleikur hjá Ray Liotta í hlutverki hrottafenginnar fíkniefnalöggu. Myndatakan er líka frábær. Að öðru leyti er þessi mynd ósköp svipuð og langur sjónvarps- þáttur um breyskar löggur í baráttu við brjálaða eiturlyfjasjúklinga. En það var ekki bara hrottaskap- urinn í myndinni sem virkaði frá- hrindandi á 8-sýningu í Smárabíói á uppstigningardag, heldur hrotta- skapur sýningarmannsins í upphafi myndarinnar þegar hann leitaði eins og barn í dótakassa að réttri linsu fyrir sýningarvélina. Þeir sem reka kvikmyndahús þurfa að huga að því að gestir þeirra eru fyrst og fremst komnir til að horfa á kvikmyndir en ekki til að sitja í mjúkum stólum og eta nýbrasað poppkorn, heldur eiga þeir heimtingu á að sýning myndar- innar gangi snoturlega. Þráinn Bertelsson UmfjöllunKvikmyndir Fíknó býsna gott og rokk- spekingar telja ástæðuna fyrir stöð- ugum vinsældum sveitarinnar til þeirr- ar staðreyndar að hún hafi aldrei snúið baki við þungarokksgyðj- unni á meðan aðrir hafa visnað eða afneit- að uppruna sínum. Söngvarinn Bruce Dickinson yfirgaf að vísu bandið um tíma þar sem hann óttaðist stöðnun. Harðir aðdá- endur sveitarinnar gáfu hins vegar ekki mikið fyrir sólóferil kappans en fögnuðu þeim mun meira þegar hann sneri aftur árið 1999. Platan Brave New World kom út í kjölfarið árið 2000 og Bruce fylgdi henni úr hlaði með þeim orðum að hún myndi festa Iron Maiden aftur í sessi sem eina bestu þungarokk- sveit allra tíma. Phil Alexander hjá tónlistartímaritinu Kerrang! sagði á sínum tíma að Brave New World sýndi það og sannaði að Iron Maiden þekkti engar málamiðlanir og tæki af allan vafa að í bresku rokki stæði sveitin jafnfætis Black Sabbath, Led Zeppelin og jafnvel Queen. Þeir sem vilja rannsaka þá sögu- skýringu frekar hafa nú fengið kærkomið tækifæri til þess að bera frammistöðu sveitarinnar í árdaga saman við Brave New World á mynddiskunum sem innihalda að sjálfsögðu klassíkera eins og The Number of the Beast, Run to the Hills, Aces High og The Wicker Man, en það myndband byggir á samnefndri hryllingsmynd frá ár- inu 1973 með Christopher Lee og Edward Woodward í aðalhlutverk- um. Þeir sem vilja svo komast í nán- ari kynni við Dickinson ættu að íhuga það að fljúga milli Íslands og Kaupmannahafnar þar sem Dickin- son er flugmaður í hjáverkum og á það til að fljúga fyrir félagið. Hann er öllu snyrtilegri í flugstjórnar- klefanum en á sviði en sjálfsagt fer hrollur um flughrædda þegar þeir sjá flugstjórann fyrir sér öskrandi með reistan makkann. NÚMER DÝRSINS The Number of the Beast er sjálfsagt þekktasta lag hljóm- sveitarinnar en vísanir í Opinberunarbók Jóhannesar hafa heillað rokkhunda í gegnum árin og gefst aðdáendum nú tækifæri til að endurskoða lagið í tónum og myndum. IRON MAIDEN Þessi nafntogaða þungarokksveit hefur verið að síðan 1980 og slær hvergi af. NARC (FÍKNÓ) HANDRIT OG LEIKSTJÓRN: JOE CARNAHAN AÐALHLUTVERK: RAY LIOTTA, JASON PATRIC

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.