Fréttablaðið - 02.06.2003, Blaðsíða 7
■ Lögreglufréttir
7MÁNUDAGUR 2. júní 2003
Bandaríkjamönnum
bjargað:
Hröktust
undan veðri
BJÖRGUN Þremur Bandaríkja-
mönnum var komið til hjálpar þar
sem þeir höfðust við í neyðarskýli
í fjörunni við Skaftárós á laugar-
dag.
Hafði fólkið verið á hringferð
um landið á kajökum en hrakist
vegna hvassviðris og sandstorms.
Fólkið hafði beðið björgunar í
neyðarskýlinu í einn og hálfan
dag, án matar og drykkjar, þegar
það sá hvar þyrla Landhelgis-
gæslunnar flaug yfir. Freistaði
fólkið þess að ná talstöðvarsam-
bandi við áhöfnina í gegnum neyð-
arsendi sem var í skýlinu. Það
tókst og sóttu björgunarsveitar-
menn frá Kirkjubæjarklaustri
fólkið á tveimur jeppum. Fólkið
var ákveðið að láta ekki deigan
síga heldur hélt áfram för sinni
um landið. ■
BJÖRGUNARSKIP
Björgunarskip Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, Björg frá Rifi, var kallað út.
Eldsneyti kláraðist:
Bjargað á
Breiðafirði
BJÖRGUN Björgunarskip Bjargar
frá Rifi kom tveimur mönnum til
hjálpar eftir að bátur þeirra hafði
orðið eldsneytislaus á Breiðafirði.
Mennirnir tveir voru á leið frá
Breiðuvík til Grundarfjarðar þeg-
ar eldsneytið kláraðist. Engir bát-
ar voru nærstaddir til að aðstoða
þá og ekki aðrar leiðir til að hafa
samband við umheiminn en með
því að setja neyðarsendi í gang.
Björgunarskipið var sent til leitar
og fann bát mannanna, sem höfðu
ekki skráð sig hjá Tilkynninga-
skyldu. Þeir reyndust heilir á húfi
og var fylgt til hafnar. ■
KLOFNINGS MINNST
Um 5.000 ungverskir þjóðernissinnar fóru
í göngu um miðborg Búdapest til að
minnast Trianon-samkomulagsins frá 1920
sem kvað á um að austurrísk-ungverska
keisaradæmið yrði leyst upp. Síðan
dreifðust einstaklingar af ungverskum upp-
runa á nokkur lönd.
BÍLVELTA Á REYKJANESBRAUT Kona
slasaðist lítillega þegar bíll valt á
mótum Reykjanesbrautar og Voga-
afleggjara á laugardag. Lögreglan í
Reykjanesbæ telur víst að slysið
hafði orðið vegna mikillar bleytu á
veginum. Konan var ein í bílnum.
FLUTTUR Á SLYSADEILD Þriggja bíla
árekstur varð á mótum Bogatanga
og Langtanga í Mosfellsbæ síðdeg-
is á laugardag. Einn bíllinn valt við
áreksturinn og var ökumaður flutt-
ur á slysadeild. Ökumenn hinna bíl-
anna fundu til eymsla og ætluðu
sjálfir að leita læknis. Allir bílarnir
voru dregnir af slysstaðnum.
Leiðtogafundur í
Frakklandi:
Litríkari en
venjulega
FRAKKLAND, AP Vel fór á með leið-
togum átta helstu iðnríkja heims í
smábænum Evian í Frakklandi.
Fundurinn var heldur litríkari en
venjulega, þar sem fulltrúar frá
þróunarríkjum sátu fundinn með
þessum valdamestu mönnum
heims.
Ýmislegt er á dagskrá annað
en hefðbundin fundahöld. Meðal
annars ætlar George Bush, forseti
Bandaríkjanna, að funda með Vla-
dímír Pútín, forseta Rússlands, og
einnig Jacques Chirac, forseta
Frakklands. ■
Hringmyrkvinn:
Mögnuð
upplifun
NÁTTÚRAN „Þetta var mögnuð upplif-
un,“ segir Þórir Traustason, sem
fylgdist með því þegar hringmyrkvi
varð í fyrrinótt. Þórir, sem var
staddur uppi á Barða á Ingjalds-
sandi ásamt ellefu manna hópi, seg-
ir ferðalagið hafa verið vel þess
virði. „Skilyrði voru mjög góð. Það
var léttskýjað og því betra að horfa
upp í sólina. Þetta tók í allt klukku-
stund þar til sólin var farin að skína
skært á ný.“ Þess má geta að þeir
sem misstu af hringmyrkvanum á
laugardagsmorgun þurfa að bíða í
45 ár eftir næsta tækifæri til að sjá
slíkt fyrirbæri frá Íslandi. ■
HRINGMYRKVI Á ÍSLANDI
Hópurinn fór út á Ingjaldssand niður að Sæbóli, gekk upp Skáladal og þaðan upp á
Barða, þar sem horft var á sólmyrkvann.
LJ
Ó
SM
YN
D
/I
N
G
Ó
LF
U
R
AR
N
AR
SS
O
N