Fréttablaðið - 02.06.2003, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 02.06.2003, Blaðsíða 47
27MÁNUDAGUR 2. júní 2003 ■ Nýjar bækur Í sumar bjóðum við upp á nám í nagla- skólanum þar sem við útskrifum nagla- fræðinga með alþjóðleg réttindi. Kennari: Sigríður M. Gudjohnsen, snyrti- og naglafræðingur. Auk þess bjóðum við upp á styttri nám- skeið í varanlegri förðun (tattoo). Kenn- ari: Hulda Jónsdóttir, meistari í snyr- tifræði. Su-do airbrush helgarnámskeið, brúnku- meðferðir, tímabundið tattoo líkams- förðun, naglaskreytingar. Kennari: Jó- hanna Þorvaldsdóttir, nagla og Su-do meistari. Kennt verður í skólanum í Kópavogi og á Akureyri. Upplýsingar í síma 588 8300. Sumarskóli Professionails Notaðu sumarið til að láta drauma þína rætast setjast þeir allir inn á nýmálaðar skrifstofur. Reyndar eru skrif- stofurnar ekki nema 17 því einn hinna nýkjörnu, Árni Magnús- son, fór beint í félagsmálaráðu- neytið sem ráðherra. „Innanhúsarkitektinn okkar segir að það sé einfaldlega hag- kvæmara og fljótlegra að rúlla einu sinni yfir með málningu en að þrífa,“ segir Helgi Bernódusson, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis. „En við hreyfum ekki við öðru og notum gömlu húsgögnin þó nýir menn fái skrifstofurnar. Þeir fá þó nýjar tölvur og gömlu þingmönn- unum er gefinn kostur á að kaupa sínar á matsverði.“ ■ ALÞINGI Iðnaðarmenn hafa að undanförnu verið að mála skrif- stofur þeirra þingmanna sem nú setjast nýir á löggjafarsamkund- una. Alls voru 18 nýir þingmenn kjörnir í síðustu kosningum og Betra að mála en þrífa ALÞINGI Gömlum þingmönnum boðið að kaupa tölvur sínar á matsverði. Egill Helgason hefur um ára-tugaskeið verið með dyggari áhangendum KR-liðsins í fót- bolta. Hann hefur verið virkur í KR-útvarpinu, mætt reglulega á herrakvöld KR og man jafnvel leiki KR-liðsins allt frá dögum Þórólfs Beck. Hann hefur hins vegar ekkert látið sjá sig í Frostaskjólinu, heimavelli KR- inga, það sem af er leiktíð. Egill hefur haft á orði að hann sé orð- inn Valsari og er þá bleik brugð- ið. Óstaðfestar heimildir herma að honum hugnist ekki að vera í sama liði og þeir Hjörtur Niel- sen og Óli Björn Kárason, sem eru eitilharðir KR-ingar jafn- framt því að tengjast eignar- haldi á Skjá einum. Ljóðabókin Týndur á meðal orða, eftir Hörð Gunnarsson, er komin út hjá bókaforlaginu Pjaxa. Hörður er fæddur árið 1962 og þetta er önnur ljóða- bók hans. Bókin er 96 blaðsíð- ur. Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.