Fréttablaðið - 02.06.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 02.06.2003, Blaðsíða 14
14 2. júní 2003 MÁNUDAGUR GUÐMUNDUR E. STEPHENSEN Lagði Norðurlandameistarann Asamoah 4-1 í borðtennis. Veganesti fyrir komandi landsleiki: Metfall landsliðsins KNATTSPYRNA Af öllum 204 þjóð- unum á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins [FIFA] sem birtur var fyrir stuttu fellur engin þjóð um jafn mörg sæti og Ísland ef tekið er mið af stöð- unni eins og hún var þann 2. des- ember 2002. Síðan þá hafa Ís- lendingar fallið um tólf sæti, niður í það sjötugasta, og aðeins Oman verður að sætta sig við jafn slakan árangur. Besta staða liðsins var í febr- úar árið 2000 þegar það vermdi 42. sætið og fallið því orðið niður á við um 28 sæti frá þeim tíma. Hástökkvarar þessa síðasta lista FIFA eru Kúba sem stekkur upp um 15 sæti, Indónesía sem hleypur upp um 26 sæti og Singapúr sem hoppar heil 20 sæti upp listann. Færeyingar, sem landsliðið mætir þann 7. júní, eru í 113. sæti og í því 99. eru Litháar, sem liðið mætir 11. júní næstkom- andi. ■ 175 keppendur frá Íslandi: Leikarnir settir SMÁÞJÓÐALEIKAR „Ég held að við eigum alveg að eiga góða von um nokkur verðlaun,“ sagði Stefán Snær Konráðsson, framkvæmda- stjóri ÍSÍ, um Smáþjóðaleikana sem hefjast í dag. Um 175 keppendur frá Íslandi taka þátt í leikunum að þessu sinni og etja kappi við 900 aðra kepp- endur frá sjö öðrum smáþjóðum. Þær eru Andorra, Lúxemborg, Mónakó, Liechtenstein, San Mar- ínó, Kýpur og Malta. Þetta er í tí- unda skipti sem þeir eru haldnir og fara að þessu sinni fram á Möltu og standa til sjöunda júní. ■ SKOTFIMI „Smáþjóðaleikarnir eru rétti vettvangurinn til að afla okkur reynslu,“ segir Guðmundur Kr. Gíslason, einn keppenda Íslands í skotfimi. „Allir í hópnum eiga möguleika á að ná sér í verðlaun. Ég keppti á síðasta móti og náði mér í bronsið. Ekkert hinna hefur tekið þátt í Smáþjóðaleikum áður. Við bindum nokkrar vonir við konurnar, en þær hafa ekki áður keppt á þess- um vettvangi. Þær hafa keppt á lög- reglumótum af og til en ekki á mót- um sem eru viðurkennd af alþjóða skotsambandinu.“ Sex Íslendingar keppa í skotfimi á Smáþjóðaleikunum á Möltu í næstu viku. Ingibjörg Ásgeirsdóttir og Kristína Sigurðardóttir úr Leiftra, íþróttafélagi lögreglu- manna, keppa í skotfimi á leikun- um, fyrstar íslenskra kvenna. Þær keppa í loftskammbyssugreinum eins og Guðmundur Kr. Gíslason, Skotfélagi Reykjavíkur, og Anton Konráðsson, Skotfélagi Ólafsfjarð- ar. Hilmar Árnason, Skotfélagi Reykjavíkur, og Pétur Gunnarsson, Skotfélagi Suðurlands, keppa í leir- dúfuskotfimi. „Árangur á síðasta keppnistíma- bili var látinn ráða vali í liðið. Miðað við Ólympíulágmarkið en enginn náði því þó menn kæmust nærri því. Því voru tveir efstu valdir.“ „Enginn skotmanna okkar kemst nálægt heimslistanum, en við von- um að það fari að breytast því að- staðan er að gjörbreytast. Með til- komu Egilshallarinnar batnar að- staða loftbyssugreinanna verulega. Haglabyssan er þess eðlis að strák- arnir hafa örfáa mánuði á ári. Það má segja að sé fyrst og fremst veð- urfarslegt vandamál með utanhúss- greinarnar. Við sendum einn þátt- takanda á síðustu Ólympíuleikum. Hann átti þangað fullt erindi en gekk ekki nógu vel í lokin.“ „Í haglabyssunni eru Kýp- verjarnir á heimsmælikvarða. Þeir eru að vinna stóru mótin svo það verður við ramman reip að draga þar. Á góðum degi eiga okkar menn alveg að geta kroppað í þá og verð- launasæti alls ekki fjarlægt ef menn halda sig á jörðinni.“ „Smáþjóðaleikarnir eru ekki við- urkennd keppni til að ná Ólympíu- lágmarki. Við fengjum ekki viður- kenndan árangur þar eins og sundið og frjálsar íþróttir. Þetta er mikið strangara í skotfiminni. Aðeins mót á vegum alþjóða skotsambandsins (ISSF) og álfuleikarnir, t.d. Evrópu- meistaramótið, bandaríska meist- aramótið og Asíuleikarnir gefa möguleika á að skjóta sig inn á Ólympíuleikana. Árangur á danska og þýska meistaramótinu er ekki nægjanlegur heldur. „Það er ekki útlit fyrir að við för- um á Ólympíuleika á næstunni. Við höfum heldur ekki sótt um uppbót- arsæti eins og hægt er í þessum greinum. Við teljum okkar fólk ekki nægilega vel í stakk búið þó unnið sé hörðum höndum að því að bæta úr því. Við förum á Evrópumeist- aramót og önnur stærri mót ef menn eiga erindi þangað.“ ■ Þrátt fyrir stöku áföll er stangveiði á góðu róli: Sjóbirtingsveiði fer mjög vaxandi VEIÐAR „Stangveiði á Íslandi fer vaxandi um allt land,“ sagði Guðni Guðbergsson hjá Veiðimálastofn- un um nýlega skýrslu sína um lax- og silungsveiði á Íslandi árið 2002. „Við erum ánægðir með það því það sýnir að það er fremur upp- sveifla í laxastofnum en hitt. At- hyglisverð er einnig vaxandi til- hneiging veiðimanna að veiða og sleppa laxi. Þeir sleppa tæpum 18% veiðinnar og það er í sam- ræmi við það sem gerist víða er- lendis þó þar sé talsvert meiru sleppt. Hluti ástæðunnar er að stórlax hefur verið að skila sér illa undanfarin ár og veiðimenn hlífa stórlaxinum, sérstaklega hrygn- um, eftir að við óskuðum eftir því.“ Guðni sagði enn fremur að netaveiði tilheyrði að mestu leyti liðinni tíð. „Þegar veitt er í net er ómögulegt að segja til um upp- runa fisksins, hvort hann kemur úr litlum stofni eða stórum og þetta vilja menn vita í dag. Annað sem menn taka eftir er mjög auk- in sjóbirtingsveiði um allt land, sérstaklega vestanlands. Fleiri og fleiri veiða silung enda ekki á allra færi að kaupa sér laxveiði- leyfi.“ ■ MONTOYA FAGNAR SIGRI Juan Pablo Montoya ók til sigurs í erfiðri götukeppninni í Mónakó. Tuttugu ára bið að baki: Spennandi í Mónakó FORMÚLA1 Williams-liðið vann sinn fyrsta sigur í Mónakó í 20 ár, þökk sé Juan Pablo Montoya frá Kólumbíu. Kimi Räikkönen sem leiðir stigakeppni ökumanna varð annar og Michael Schumacher þriðji. Keppnin í Mónakó þykir vera ein sú erfiðasta vegna þess að keppt er á götum borgarinnar en ekki á kappakstursbraut eins og venja er. Hraðinn verður minni fyrir vikið, mun fleiri krappari beygjur og fá tækifæri til að kom- ast fram úr. Juan Pablo Montoya fer við þennan sigur í þriðja sæti í stiga- keppni ökumanna en staða efstu manna, Räikkönen og Schumacher, breytist ekki. ■  16.40 RÚV Helgarsportið. Fjallað verður um helstu íþróttaviðburði helgar- innar.  19.00 Sýn Bein útsending frá leik Vals og Þróttar í Landsbankadeild karla.  21.45 Sýn Spænsku mörkin. Þáttur um leiki 36. umferðar spænsku 1. deild- arinnar.  22.20 RÚV Smáþjóðaleikarnir á Möltu. Samantekt af keppni dagsins.  22.40 Sýn Olíssport. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlend- is.  22.50 Skjár 1 Mótor - Sumarsport. Þáttur um akstursíþróttir.  23.10 Gillette-sportpakkinn. Íþróttir um víða veröld. KNATTSPYRNULANDSLIÐIÐ Ísland og Oman falla mest allra liða á sex mánaða tímabili. Allir eiga möguleika á verðlaunum Sex Íslendingar keppa í skotfimi á Smáþjóðaleikunum. Ingibjörg Ásgeirsdóttir og Kristína Sig- urðardóttir keppa í skotfimi á leikunum, fyrstar íslenskra kvenna. SKOTFIMI Landsliðið í skotfimi keppir á Smáþjóðaleikunum á Möltu. BJART FRAM UNDAN Í STANGVEIÐI Úttekt sýnir að stangveiði fer vaxandi á öllu landinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M hvað?hvar?hvenær? 28 29 31 2 3 4 5 JÚNÍ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.