Fréttablaðið - 02.06.2003, Blaðsíða 46
KVIKMYNDAGERÐ „Já, þetta er
ágætis orðrómur,“ segir Þor-
steinn J. Vilhjálmsson dagskrár-
gerðarmaður um hvort hann sé
að vinna að heimildarmynd sem
byggir á því sem kallað hefur
verið Stóra málverkafölsunar-
málið.
Nú hlýtur að styttast í að Pét-
ur Guðgeirsson dómari kveði
upp dóm í Héraðsdómi Reykja-
víkur yfir þeim Pétri Þór Gunn-
arssyni og Jónasi Freydal. Flest-
ir gera ráð fyrir því, vegna um-
fangs málsins, að þaðan fari
málið beina leið fyrir Hæstarétt
– hvernig sem dómur fellur.
Þorsteinn segir myndina á at-
hugunarstigi, eins og hann kall-
ar það, en hana hyggst hann
vinna í samstarfi við Saga film.
Þorsteinn hefur þegar þegið
styrk frá Kvikmyndasjóði til
handritsgerðar. Vinnutitillinn er
„Án titils“ sem er viðeigandi að
sögn Þorsteins – og þá í margvís-
legum skilningi. Nokkrir kvik-
myndagerðarmenn hafa fylgst
með fölsunarmálinu af mikilli
athygli og sjá greinilega á því
ýmsa forvitnilega fleti sem vert
væri að festa á filmu. Það kemur
Þorsteini ekki á óvart, þetta sé
ákaflega spennandi mál sem
varðar raunar samanlagða lista-
sögu Íslands.
Hjálmar Blöndal er einn
þeirra sem renna hýru auga til
þessa umfjöllunarefnis en hann
hefur setið hugmyndafundi um
hugsanlega heimildarmynd
ásamt Júlíusi Kemp og Ingvari
Þórðarsyni. Hjálmar fjallaði
reyndar um fölsunarmálið hið
fyrra sem blaðamaður og gerði
sér ferð til Danmerkur til að
kynna sér nánar hvernig mál-
verkahöndlun fer fram og hitti
þar meðal annarra Jónas Frey-
dal.
Heimildamyndin er þó á al-
geru hugmyndastigi og Hjálmar
neitar alfarið að tjá sig um mál-
ið. ■
26 2. júní 2003 MÁNUDAGUR
Listir
ÞORSTEINN JOÐ
■ Kvikmyndagerðarmenn eru áhugasam-
ir um Stóra málverkafölsunarmálið og að
minnsta kosti tvær heimildarmyndir þar
um eru á teiknborðinu.
PERSÓNAN „Ég er hamingjusam-
lega einhleypur maður,“ segir
Andri Óttarsson, sem nýlega tók
sæti í Útvarpsráði.
Miklar breytingar urðu á skip-
an útvarpsráðs eftir kosningar en
aðeins tveir af sjö útvarpsráðs-
mönnum sitja áfram: Sjálfstæðis-
mennirnir Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson og Anna K. Jóns-
dóttir. Nýir eru Páll Magnússon
frá Framsókn, Svanfríður Jónas-
dóttir og Ingvar Sverrisson Sam-
fylkingu. Frá Frjálslyndum kem-
ur svo Sigurður Ingi Jónsson og
þriðji maður sjálfstæðismanna er
svo Andri Óttarsson.
Hann er 28 ára gamall héraðs-
dómslögmaður hjá Lögmönnum
við Austurvöll en hann útskrifað-
ist frá Háskóla Íslands árið 2001.
Andri hefur starfað lengi innan
Sjálfstæðisflokksins en hann hef-
ur vakið athygli fyrir snarpa pist-
la á vefsíðunni Deiglan.com.
„Já, ég er aðstoðarritstjóri og
pistlahöfundur á Deiglunni og hef
skrifað tölvuvert af pistlum þar –
meðal annars um fjölmiðla. En ég
hef enga beina reynslu aðra af
þeim sem slíkum.“
Andri gerir sér fulla grein fyr-
ir því að útvarpsráð sé umdeilt
fyrirbæri en hann telur mikil-
vægt að styrkja sjálfstæði Ríkis-
útvarpsins.
Persóna Fréttablaðsins er
Reykvíkingur í húð og hár. Móðir
hans er Guðbjörg Sigurðardóttir,
sem starfar hjá forsætisráðuneyt-
inu. Fósturfaðir hans er Skúli
Kristjánsson og kynfaðir er Óttar
Guðmundsson. Áhugamál Andra
eru einkum faglegs eðlis, lög-
fræði, skriftir og pólitík, þó ekki
sé á dagskrá hjá honum að leita
pólitísks frama á næstunni. Hann
tók þó þátt í stúdentapólitíkinni og
var um hríð oddviti Vöku í Stúd-
entaráði og er núverandi stjórnar-
formaður Félagsstofnunar stúd-
enta. ■
Persónan
ANDRI
ÓTTARSSON
■ Tók nýlega sæti í Útvarpsráði og er 3.
maður Sjálfstæðisflokks í ráðinu. Hann er
lögmaður auk þess sem hann er stjórnar-
formaður Félagsstofnunar stúdenta og
skrifar reglulega snarpa pistla á deigl-
an.com
Lögmaður í Útvarpsráð
ANDRI ÓTTARSSON
Hann les ógrynni og er alæta á bókmenntir.
Að öðru leyti eru áhugamál hans einkum
faglegs eðlis: lögfræði, skriftir og pólitík.
Fjallað um
meinta falsara
SVAVARS-VERK?
Olía á striga – 66 x 76 sm. Skúli Mogen-
sen athafnamaður keypti þetta verk í
Kunsthallen fyrir 40 þúsund danskar.
Það er ekki langt síðan íbúarRaufarhafnar og Þórshafnar
kvörtuðu undan því að útsending-
ar Ríkisútvarpsins og Sjónvarps
næðust ekki nema með herkjum
eða alls ekki. Þetta varð til þess
að Guðný
Hrund Karls-
dóttir sveitar-
stjóri skrifaði
Tómasi Inga
Olrich
menntamála-
ráðherra og
fór þess á leit
að hann beitti
sér fyrir um-
bótum á út-
sendingum eða því að Raufar-
hafnarbúar fengju afnotagjöld
sín felld niður. Kristján Möller
tók málið upp á Alþingi síðasta
haust og óskaði eftir jólasveini
sem gæfi íbúunum betri útsend-
ingu í jólagjöf svo þeir þyrftu
ekki að eyða jólunum úti í bíl
hlustandi á útvarpsútsendingar
sem menn næðu ekki nema með
því að keyra út fyrir bæinn. Jóla-
sveinninn
kann að hafa
verið lengi á
ferðinni en nú
er svo komið
að Ríkisút-
varpið hefur
sett upp senda
og stórbætt
gæði útsend-
ingarinnar í
Þórshöfn og
Raufarhöfn. Sumir hafa reyndar
á orði að bættu útsendingarnar
hafi rétt svo komið tímanlega til
að íbúar Raufarhafnar gætu
fylgst með fréttum útvarps og
sjónvarps af slæmum tíðindum í
atvinnumálum sínum.
Fréttiraf fólki
■ Leiðrétting
Þrátt fyrir breytingar á útvarpsráði mun ráðið
eftirleiðis sem áður flækjast fyrir eðilegri og
frjálsri fjölmiðlun í landinu.
Hrósið
Hrósið fær Lúðvík Geirsson,bæjarstjóri í Hafnarfirði,
fyrir að baka afmælistertu handa
bæjarbúum í tilefni 95 ára af-
mælis bæjarins.