Fréttablaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 4
4 23. júní 2003 MÁNUDAGUR Hefurðu áhyggjur af aukningu vopnaðra rána hérlendis? Spurning dagsins í dag: Mun Reykjavíkurlistinn lifa út kjör- tímabilið? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 36% 64% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Lögreglufréttir GALLABUXUR kr. 490 Virkir dagar frá kl. 10-18 Laugardagar frá kl. 11-16 Sunnudagar frá kl. 12-16 HÁVELLA Franskur eggjaþjófur var gómaður með há- vellu- og húsandaregg á Egilsstaðaflugvelli. Egilsstaðir: Eggjaþjófur gripinn SMYGL Franskur ferðamaður á miðj- um aldri var gripinn með 30 húsand- ar- og hávelluegg við innritun í flug til Düsseldorf frá Egilsstöðum á föstudagskvöld. Endurbættur gegnumlýsingarbún- aður var tekinn í notkun á Egilsstaða- flugvelli í vor og vegna hans fundust eggin. Áður var handfarangur aðeins gegnumlýstur og því ómögulegt að vita hvort eggjasmygl hafi verið al- gengt undanfarin misseri. Enginn gegnumlýsingarbúnaður er í notkun á millilandaferjunni Norrænu. Aðspurður sagðist Frakkinn vera í „eggjabransanum“ og vildi hann ekki gefa nánari upplýsingar um hvernig eggin ættu að nýtast. Talið er að maðurinn hafi viljað selja eggin í svokallaða andagarða í Evrópu, sem eru eins konar dýragarðar fyrir fugla að breskri hefð. ■ SKIPULAGSMÁL „Mér sýnist ekki vera valdir þarna skipulags- fræðingar með lágmarks mennt- un og starfsreynslu,“ segir Gest- ur Ólafsson, arkitekt og skipu- lagsfræðingur í Reykjavík. Hann var í forsvari fyrir einum af þeim 19 hópum arkitekta, skipulagsfræðinga og verkfræð- inga sem sóttu um að fá að vinna tillögur að framtíðar- skipulagi slipp- svæðisins við Mýrargötu í Reykjavík. Hópur Gests var ekki valinn sem einn af þeim fjórum hópum sem forvalsnefnd hefur valið til að vinna að til- lögugerðinni. Gestur kveðst undrandi á þeirri niðurstöðu, sérstaklega með tilliti til þess að hann hafi myndað sinn hóp í samstarfi við heimsþekkta aðila á sviði skipulagsfræða. „Stofan sem við erum í samstarfi við, Lichfield Planning, er með ára- tuga reynslu á þessu sviði, er heimsþekkt og hefur hlotið fjöl- margar alþjóðlegar viðurkenn- ingar,“ segir Gestur. Stofa Gests hefur m.a. sinnt skipulagsmál- um á Akureyri, Hveragerði, Garðabæ og Selfossi og sjálfur var hann formaður Skipulags- fræðingafélags Íslands. Gestur hefur skrifað borgar- ráði og farið fram á útskýringu á niðurstöðu forvalsnefndarinnar. „Ég á erfitt með að skilja þetta,“ segir hann. „Ég get þaðan af síð- ur útskýrt þetta fyrir erlendum samstarfsaðilum mínum, sem ganga til þessa verks með opnum huga og í góðri trú um að það sé farið með umsóknir af fyllstu sanngirni.“ Annar aðili sem hefur látið undrun sína í ljós á vali forvals- nefndar Reykjavíkurborgar er Guðjón Bjarnason arkitekt, en umsjón hans var hafnað þrátt fyrir að í slagtogi við hann hafi m.a. verið heimsþekktur arki- tekt, Carlos Zapata, sem meðal annars var valinn af New York- borg til að gera tillögur að endur- uppbyggingu World Trade Cent- er. „Þetta er brilljant arkitekt,“ segir Gestur um hann. Að sögn Steinunnar V. Óskars- dóttur, formanns skipulagsnefnd- ar Reykjavíkurborgar, uppfylltu þeir aðilar sem valdir voru til til- lögugerðarinnar best þau skilyrði sem forvalsnefndin lagði til grundvallar vali sínu. Vandað hafi verið til valsins, og þó svo að heimsþekktir aðilar og fólk með mikla reynslu af skipulagsfræð- um hafi verið innanborðs í öðrum hópum hafi annað skort upp á í þeim tilvikum. Hún segir skipu- lagsnefnd hafa sent út bréf til þeirra hópa sem eftir því hafa óskað, þar sem rökstuðningur nefndarinnar er tíundaður. gs@frettabladid.is Ríkislögreglustjóri: Fíkniefna- brotum fjölgar FÍKNIEFNI Alls voru framin 994 fíkniefnabrot árið 2002, eða 9,1 prósent fleiri en árið 2001. Rúm 48 prósent fíkniefnabrota komu upp í Reykjavík á síðasta ári. Í Hafnarfirði voru þau tæp 13 prósent. Hátt prósentuhlutfall í umdæmi lögreglunnar í Reykja- vík er að stórum hluta til komið vegna mála sem eiga upphaf sitt hjá sýslumanninum á Keflavíkur- flugvelli og hjá tollstjóranum í Reykjavík. Á síðasta ári var lagt hald á ríf- lega 57 kíló af hassi og tæp tvö kíló af kókaíni, sem er meira magn en áður. Í fyrra voru haldlögð rúm- lega sjö kíló af amfetamíni, örlítið minna en árið 2002, þegar hald var lagt á rúm tíu kíló. Þá voru 1.039 einstaklingar kærð- ir á síðasta ári vegna fíkniefnabrota, 917 karlar og 122 konur. ■ JEPPAR SKULLU SAMAN Tveir jeppar skullu saman við Litlu- Giljá á laugardagsmorgun. Engin meiðsl urðu á fólki en bílarnir eru mikið skemmdir eða ónýtir. JEPPI VALT Jeppi valt á Arnar- vatnsheiði um helgina. Fernt voru í bílnum og voru þau flutt til lækn- is. Bíllinn er mikið skemmdur. VIÐURKENNING „Menn hafa flotið langt á því að fá tilnefningu til Ósk- arsverðlauna og auglýsingahátíðin Cannes Lions er fyllilega sambæri- leg í auglýsingaheiminum. Af því reikna ég með því að við séum komnir á kortið,“ segir Gunnlaugur Þráinsson, framkvæmdastjóri aug- lýsingastofunnar Gott fólk. Auglýsingin „Beautiful Women“, sem stofan gerði fyrir Thule, hefur verið tilnefnd til verð- launa sem besta sjónvarpsauglýs- ingin á Cannes Lions-hátíðinni. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1991 sem íslensk auglýsing er tilnefnd til verðlauna á þessari hátíð. Þá var auglýsingin „Skemmdarverk“ frá Góðu fólki tilnefnd en hún var gerð fyrir Póst og síma. Cannes Lions-hátíðin hefur ver- ið haldin í yfir 50 ár og er stærsta hátíð sinnar tegundar í heiminum. Gunnlaugur segir íslensku auglýs- inguna hafa verið í hópi örfárra sem tilnefndar voru frá Norður- löndunum. Auglýsingin „Beautiful Women“ hefur víða hlotið athygli. Hún hef- ur verið sýnd víða í heiminum í þáttum um skemmtilegar og/eða athyglisverðar auglýsingar. Má þar nefna Tarrant on TV og í nýsjá- lenska sjónvarpinu. ■ Ungliðar R-lista flokkanna: Vilja halda samstarfinu áfram STJÓRNMÁL Formenn ungliðahreyf- inga Framsóknarflokksins, Vinstri grænna og Samfylkingar- innar, sem standa að R-listanum, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að þeir vilji að samstarfinu verði haldið áfram í lengstu lög enda hafi samstarfið „gengið vel þrátt fyrir ítrekaðar hrakspár pólitískra andstæðinga“ og Reykvíkingar hafi lýst ánægju sinni með listann með því að end- urnýja umboð hans í tvígang.■ VINSÆL AUGLÝSING Auglýsingin „Beautiful Women“ er fyrsta íslenska auglýsingin til að birtast í Shots, sem hefur að geyma úrval þeirra sjónvarpsauglýsinga sem mesta athygli vekja í heiminum á hverjum tíma. Íslensk sjónvarpsauglýsing vekur athygli: Tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna HASS Á síðasta ári var lagt hald á 57 kíló. Heimsþekktum arkitektum synjað Alþjóðlegar stjörnur á sviði arkitektúrs og skipulagningar fá ekki að spreyta sig á skipulagningu slippsvæðisins við Mýrargötu. Val forvalsnefndar á ráðgjafahópum mætir gagnrýni. GESTUR ÓLAFSSON Sendi inn umsókn í samvinnu við heims- þekkta stofu í Bretlandi, en var hafnað. STEINUNN V. ÓSKARSDÓTTIR Skipulagsnefnd hefur sent út bréf til þeirra sem þess hafa óskað með rökstuðningi við ákvörðun nefndarinnar. „Ég á erfitt með að skilja þetta. VIÐSKIPTI Kaup Baugs á leikfanga- versluninni Hamleys kunna að vera í uppnámi eftir að Tim Waterstone, stofnandi Waterstone-bókabúðanna og barnavöruverslananna Daisy & Tom, lýsti því yfir að hann væri með gagntilboð í burðarliðnum. Breska blaðið Independent greindi frá því um helgina að ítarlegar viðræður hafi átt sér stað milli Waterstone og stjórnenda Hamleys og hafði eftir heimildarmönnum sínum að mikil al- vara væri í umleitunum Waterstone. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hefur lýst yfir efasemdum sínum um að yfirlýsing Waterstone eða gagntilboð hefði mikil áhrif á væntanleg kaup Baugs á leikfanga- versluninni. Komið hefur fram að Waterstone var einn af keppinautun- um um kaup á Hamleys áður en fyr- irtækið fór í sérstakar viðræður við Baug og samþykkti tæplega sex milljarða króna yfirtökutilboð ís- lenska smásölurisans. Baugur hefur hlotið samþykki ríflega 40 prósenta hluthafa í Hamleys og hafa bresk blöð eftir fé- lögum Jóns Ásgeirs að ekki beri að taka umleitanir Waterstone alvar- lega. Hins vegar er haft eftir félög- um Waterstone að fjármögnun á yf- irtöku sé tryggð. Enn hefur þó ekki borist kauptilboð frá Waterstone í hina 260 ára gömlu verslunarkeðju Hamleys. ■ BARIST UM LEIKFANGABÚÐ Tim Waterstone, stofnandi bókabúða og barnavöruverslana, hefur lýst yfir áhuga sínum á að koma með gagntilboð í leik- fangaverslunina Hamleys, sem Baugur fal- ast eftir fyrir sex milljarða. Tilboð Baugs hefur verið samþykkt og telur fyrirtækið litla alvöru vera í yfirlýsingu Waterstone. Fleiri vilja leikfangabúðina Hamleys: Baugur mætir mótspyrnu KARLAR L U J T Mörk Stig Fylkir 6 4 0 2 11:5 12 FH 6 3 2 1 10:6 11 KR 6 3 1 2 7:8 10 ÍA 6 2 3 1 8:5 9 ÍBV 6 3 0 3 12:10 9 Þróttur 6 3 0 3 9:9 9 KA 5 2 2 1 8:6 8 Valur 6 2 0 4 8:12 6 Grindavík 6 2 0 4 7:11 6 Fram 5 0 2 3 4:12 2 Grindavík 2:1 Þróttur ÍBV 1:3 FH Valur 1:3 ÍA Fylkir 2:1 KR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.