Fréttablaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 13
13MÁNUDAGUR 23. júní 2003
hvað?hvar?hvenær?
20 21 22 23 24 25 26
JÚNÍ
Mánudagur
16.30 RÚV
Fótboltakvöld (e).
16.50 RÚV
Helgarsportið (e).
18.15 Sýn
Íslensku mörkin (e).
18.45 Sýn
Álfukeppni FIFA. Bein útsending frá leik í
B-riðli.
20.00 KR-völlur
KR og ÍBV, efstu lið Landsbankadeildar
kvenna, mætast.
20.00 Kaplakrikavöllur
FH leikur gegn sameiginlegu liði Þróttar
og Hauka í Landsbankadeild kvenna.
21.00 Sýn
Álfukeppni FIFA. Útsending frá leik í B-
riðli.
22.50 Skjár 1
Mótor - Sumarsport. Þáttur um bílaí-
þróttir.
23.00 Sýn
Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta-
viðburði heima og erlendis.
23.30 Sýn
Gillette-sportpakkinn. Íþróttir um allan
heim.
FÓTBOLTI Englendingurinn Lee
Sharpe leikur ekki meira með
Grindvíkingum á þessu tímabili.
Hann meiddist í leik gegn ung-
mennaliði Keflavíkinga í 32 liða
úrslitum VISA-bikarkeppninnar
og gat ekki tekið þátt í leikjunum
gegn FH og Þrótti í Landsbanka-
deildinni.
Sharpe er meiddur í aftan-
verðu læri og munu meiðslin vera
svipaðs eðlis og meiðslin sem
hann glímdi við á meðan hann var
á mála hjá Leeds United.
Sharpe gekk til liðs við Grind-
víkinga í vetur en náði aðeins að
leika fjóra leiki félagsins í deild-
inni, einn í deildabikarnum og
þrjá leiki í Canela-bikarkeppninni
á Spáni í byrjun apríl. Sharpe er
þegar farinn af landi brott. ■
FÓTBOLTI Fyrsti leikur Fram undir
stjórn nýs þjálfara, Steinars Guð-
geirssonar, endaði með 5-0 tapi fé-
lagsins gegn ÍBV á útivelli. Er
þetta lakasta byrjun hjá liðinu
undir þjálfara sem tekur við á
miðju tímabili.
„Það hringja engar aðvörunar-
bjöllur eftir þennan leik,“ sagði
Finnur Thorlacius, formaður
rekstrarfélags Fram. „Þessi leik-
ur var í járnum fram að fyrsta
marki og eftir það varð hálfgert
niðurbrot í liðinu. Þá var tekin
ákveðin áhætta með því að auka
sóknarþungann sem ekki gekk
upp.“
Finnur segir að Steinar hafi
orðið fyrir valinu sem næsti þjálf-
ari vegna reynslu hans og metnað-
ar. „Markmið okkar í dag miðað
við ástandið er að halda okkur
uppi og allt annað en það er plús.
Það eru margar umferðir eftir
ennþá og engin örvænting komin í
hópinn. Andinn í liðinu er mjög
góður þrátt fyrir allt saman og
það ríkir mikil sátt um ráðningu
Steinars þrátt fyrir að margir hafi
orðið hissa á að hann yrði fyrir
valinu. Ég treysti Steinari full-
komlega til verksins, hann er
samviskusamur og metnaðarfull-
ur maður og hann þekkir vel til
liðsins. Það er alltaf áhætta í því
að fá nýjan mann til verksins á
miðju tímabili og þá verður hann
að þekkja til liðsins.“ ■
FRAMARAR
Höfðu litlu að fagna á Hásteinsvelli í Eyjum.
Árangur Fram í Landsbankadeildinni dapur:
Markmiðið að halda okkur uppi
SHARPE
Lee Sharpe lék aðeins fjóra leiki með
Grindavík í Landsbankadeildinni.
Landsbankadeild karla:
Lee Sharpe farinn
Evrópukeppni landsliða:
Konurnar
sjöttu, karl-
arnir sjöundu
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Kvennalið Ís-
lands var í sjötta sæti B-riðils 2.
deildar Evrópukeppni landsliða í
frjálsum íþróttum. Karlaliðið
varð í sjöunda sæti.
Vala Flosadóttir og Vigdís Guð-
jónsdóttir náðu bestum árangri ís-
lensku keppendanna. Vala stökk
4,20 í stangarstökki og sigraði en
Vigdís kastaði spjóti 50,05 metra
og varð þriðja.
Svisslendingar sigruðu bæði í
keppni karla og kvenna og flytjast
upp í 1. deild ásamt austurrísku
körlunum og lettnesku konunum
sem urðu í öðru sæti. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
V
IL
H
EL
M
VALA
Vala Flosadóttir sigraði í stangarstökki í
Evrópukeppninni.