Fréttablaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 23. júní 2003
■ ÁLFABYGGÐ
Við höfum verið með ferðir umálfabyggðir Hafnarfjarðar í
nokkur ár undir leiðsögn Erlu Stef-
ánsdóttur sjáanda,“ segir Jón Hall-
dór Jónasson, ferðamálafulltrúi
Hafnarfjarðar.
Farið verður í ferðina með rútu
í kvöld frá Upplýsingamiðstöð
Hafnarfjarðar. „Erla fer með fólk-
ið út á völdum stöðum, þar verða
æfingar gerðar að hennar hætti og
umhverfið skoðað.“ Að sögn Jóns
Halldórs eru engar tvær ferðir
með Erlu eins. „Það má segja að
ferðirnar fari eftir því hverju and-
inn blæs henni í brjóst en hún sér
alveg um skipulagninguna á þeim,
stjórnar þeim og stýrir. Hún heim-
sækir stundum blómálfa og aðrar
verur í gróðrinum, ræðir um óska-
steina og hvetur fólk til að tengjast
náttúrunni.“
Jón Halldór trúir blaðamanni
fyrir því að upphaflega hafi hann
verið í hópi þeirra vantrúuðu en við-
urkennir að eftir að hafa unnið náið
með Erlu bæði í kynningarmálum
og öðru, eigi hann sífellt erfiðara
með að trúa ekki sýnum hennar.
Að sögn Jóns Halldórs eru ferð-
irnar farnar nokkurn veginn til há-
tíðabrigða. „Við höfum ákveðið að
hafa þessar ferðir aðeins einu
sinni á ári og er Jónsmessan tilval-
inn hátíðardagur enda að sögn
Erlu sá tími sem óskasteinar eru
hvað kröftugastir.“
Hafnarfjarðarbær gefur einnig
út á dögunum nýtt og endurbætt
álfakort. „Upplagið var búið hjá
okkur þannig að við ákváðum að
láta prenta meira. Síðar kom í ljós
að kortið var horfið úr prentverk-
smiðjunni og eina skýringin sem
okkur dettur í hug er að álfarnir
hafi gripið þar inn í. Í kjölfarið
ákváðum við að endurgera krotið
og uppfæra það með nýjum
manna- og álfabústöðum. En kort-
ið inniheldur teikningar af um-
hverfinu eins og Erla sér það.“
Farið verður í ferðina í kvöld
klukkan 22.30 frá Upplýsingamið-
stöð Hafnarfjarðar til þeirra staða
sem mestan kraft gefa og sólstöð-
um fagnað.
vbe@frettabladid.is
ÁLFARNIR HENNAR ERLU
Boðið verður upp á álfaskoðunarferð í
Hafnarfirði í dag í tilefni af Jónsmessu.
Blómálfar og óskasteinar