Fréttablaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 23. júní 2003 17 Handlyftarar Dalvegur 6-8 · 201 Kópavogur · Sími 535 3500 · Fax 535 3519 haraldur@kraftvelar.is · www.kraftvelar.is Lyftigeta 2,3 tonn Sterkbyggðir og öruggir Standard Quicklift kr kr 48.515,- 55.966,- m/vsk m/vsk Tryggvi Jónsson, forstjóriHeklu, segir að alltaf séu ein- hverjar tískusveiflur í gangi í bílakaupum. Þegar vel ári aukist sala á jeppum og öðrum dýrum bílum í hlutfalli við bætt efna- hagsástand. Salan gengur vel, að hans mati, um þessar mundir: „Aukningin hefur kannski verið meiri í dýrari bílum en líka á ódýrari bílum, en þó ekki ódýr- asta,“ segir hann. „Það er meiri bílasala í heild.“ Tryggvi segir það orðið mjög algengt að fólk eigi tvo bíla, gjarn- an einn stóran bíl og síðan til dæmis Golf, Polo eða Skoda. Tveir jeppar séu hins vegar undantekn- ing: „Það er oft einn vandaður fjölskyldubíll og einn skutlubíll, lítill bíll fyrir börnin,“ segir hann og bætir við að það sé alls ekki al- gengt að fólk eigi fleiri en tvo bíla. Hann segir konur og karla ólík þegar komi að bílavali: „Kon- ur eru jafn hrifnar af dýrum bíl- um og karlar en þær vilja hafa þá sportlegri og línulegri. Karlpen- ingurinn sækir meira í stóru bíl- ana.“ ■ Vefur Bílgreina- sambandisns: Reikna bílverð Á vef Bílgreinasambandsins,www.bgs.is, má reikna út gangverð á notuðum bílum. Miðað er við upplýsingar um viðmiðun- arverð bílaumboðanna. Viðmiðunarverð er reiknað út frá forsendum þess umboðs sem flytur inn viðkomandi tegund bif- reiðar. Verðið er reiknað út frá aldri bifreiðar, akstri og afskrift- um. Viðmiðunarverð er að sjálf- sögðu aðeins til viðmiðunar því verð einstakra bifreiða getur ver- ið bæði hærra og lægra, allt eftir ástandi bifreiðarinnar. ■ Ég keypti fyrsta fornbílinn árið1966, gamlan Ford ‘36, sem Kristján Sveinsson augnlæknir átti,“ segir Einar Gíslason, allsherj- ar bíladellukarl að eigin sögn. „Það hefur sennilega verið upphafið að fornbílaáhuganum þó ég hafi reynd- ar haft áhuga á bílum alla tíð. Pabbi var bifvélavirki svo trúlega er þetta í genunum. En ég fékk sem sagt fornbíladellu í ofanálag við að reka stórt bílafyrirtæki,“ segir Einar. Einar er virkur meðlimur í Forn- bílaklúbbnum og getur ekki nóg- samlega lofað félagsskapinn. „Þarna er ekki gerður neinn manna- munur og enginn að þykjast vera meiri en hann er. Svo sameinar menn náttúrlega áhuginn á gömlum bílum. Þetta gengur fyrst og fremst út á það að eiga fornbíl,“ segir hann og á sjálfur sex stykki. Hann segir allan gang á því hvort menn kaupi sér tilbúinn fornbíl hér á landi eða sæki þá hálfónýta til útlanda og geri upp sjálfir. „Það er gríðarlegt framboð í út- landinu, en mönnum virðist þykja betra að kaupa þá hálfónýta í út- löndum og gera þá upp. Við erum að vona að það breytist. En auðvitað er það hluti af skemmtuninni að gera bílana upp.“ Uppáhaldsbíll Einars í augna- blikinu er Buick ‘66 sem hann ekur alltaf á sumrin. „‘66-módelin höfða mjög til mín, það er svo ótrúlega margt í þessum bílum sem er það sama og í bílum í dag,“ segir hann, og vill jafnvel meina að þróunin hafi ekki orðið svo gríðarleg síðan. Núna er Einar að gera upp Buick Roadmaster ‘49 sem hann keypti frá Kansas. „Hann er „undir“ núna og hinir sitja á hakanum á meðan. Næst verður það svo annað hvort Desoto ‘48 eða Chevrolet ‘59, þeir eru svona á „sporinu“. ■ BÍLAR ERU MENGUNARVALDUR Pústskynjarar eru þess vegna mjög mikil- vægir því ef þeir eru rétt stilltir og virkir mengar bílinn minna. Pústskynjar- ar of dýrir? Brögð hafa verið að því að fólkkvarti undan verðlagningu á öryggisbúnaði bíla á borð við pústskynjara. Jónas Þór Stein- arsson hjá Bílgreinasambandinu segist ekki geta sagt nákvæm- lega til um hvernig sá búnaður er tollflokkaður, en segir mikið af öryggisbúnaði í bíla með sér- stöku vörugjaldi og þar af leið- andi tiltölulega dýran. „Það má vel vera að fólk veigri sér við að endurnýja slík kerfi vegna þess hversu dýr þau eru, sem er nátt- úrlega afleitt. Pústskynjarar eru til dæmis mjög mikilvægir því ef búnaðurinn er í lagi mengar bíl- inn minna og eyðir þar að auki minna,“ segir Jónas. ■ TRYGGVI JÓNSSON Forstjóri Heklu segir það algengt að fólk eigi tvo bíla. Spáð í bílamarkaðinn: Konur vilja sportlega og línulega bíla FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T EINAR GÍSLASON Viðurkennir aðspurður að það sé svolítið „kúl“ að rjúki úr dekkjunum. En það er hins veg- ar ekki hentugt í spyrnunni, það fer svo mikil orka í spólið, segir Einar. Enginn mannamunur í Fornbílaklúbbnum Einar Gíslason er bíladellukarl sem á sex fornbíla. Uppáhaldið, í bili að minnsta kosti, er Buick ‘66, en Desoto-inn og Chevrolettinn verða gerðir upp í sumar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.