Fréttablaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 30
Ha? Jahh, ég er markaðsstjórihjá Securitas, fjölskyldumað- ur, uppalinn og búsettur í Kópa- voginum,“ segir Bjarni Ingólfs- son. Líkt og mörgum vefst honum tunga um tönn spurður hreint út hver hann sé. Securitas komst í fréttir vegna neyðarhnapps sem ekki virkaði þegar rán var framið í söluturni í Kópavogi fyrir skömmu. Hnapp- urinn var ekki tengdur öryggis- kerfi söluturnsins og því tómt mál um að tala að Securitas gæti brugðist við. Bjarni á að baki fjóra mánuði í starfi en hann var áður fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins Frí- kort, sem hann fylgdi til grafar. „Öryggismálin eru mér ofarlega í huga enda ekki hægt að starfa við einhvern hlut sem þú hefur ekki áhuga á. Þetta er spennandi mála- flokkur.“ Blaðamaður rifjar upp í framhaldi af þessum orðum hetju- hlutverk öryggisvarða í ýmsum sjónvarpsþáttum, þar sem þeir verja heiðvirða borgara gegn að- steðjandi vá – rumpulýð hvers kyns. Bjarni kannast ekki við þetta úr sínu umhverfi. „Þar sem ég valsa um minn kontór fell ég illa inn í eitthvert Equalizer-hlut- verk. Starf öryggisvarða er æs- ingalaust og yfirvegað starf sem snýst um að átta sig á í tíma hvað geti brugðið út af.“ Bjarni er rekstrarhagfræðing- ur, menntaður úr Samvinnuhá- skólanum á Bifröst sem svo hét og tók svo master í Árósum í Dan- mörku. Þar kunni hann vel við sig og segir Árósa fallega og skemmtilega borg. Kona Bjarna er Inga Þórisdóttir, þjónustufull- trúi hjá Sparisjóði vélstjóra, og samanlagt eiga þau þrjú börn, Bjarni öll og Inga tvö þeirra. Bjarni gengst ófeiminn við því að vera Bliki enda bólusettur fyrir lífstíð hvað varðar brokkgengi síns liðs. Þegar hann er ekki að sinna vinnu sinni og fjölskyldu stundar hann golf og neitar, í ljósi þess hversu lélegur hann sé, að upplýsa hversu lengi hann hefur lagt stund á það sport. jakob@frettabladid.is 23. júní 2003 MÁNUDAGUR Alda Þórðardóttir, eigandiSaumalistar í Kringlunni, býð- ur viðskiptavinum sínum upp á hvers kyns fataviðgerðir og fljóta og góða þjónustu. Hún hefur þó setið uppi með mikið af þessum fatnaði í fjölda ára, eða þangað til hún hefur neyðst til gefa hann Rauða krossinum eða öðrum líkn- arfélögum. „Þetta er staðreynd,“ segir Alda, „fólk kemur með ný og nýleg föt í alls kyns viðgerðir, bux- ur í styttingu og rennilásaviðgerð- ir, en svo er þetta aldrei sótt. Það hefur komið fyrir að fólk komi eft- ir hálft ár, en ég hef það fyrir reglu að geyma allt í að minnsta kosti tvö ár áður en ég gef það. Ég vil hafa mitt á hreinu. En þetta er alveg með ólíkindum.“ Alda hefur ekki lengur pláss fyrir ósóttan fatnað í Saumalist og er með marga poka í bílskúrnum heima hjá sér. Hún vill ekki tjá sig um hversu miklu hún tapar á þess- um viðskiptum, en segist undrandi og sár. „Mér finnst þetta siðlaust,“ segir hún, „maður vinnur meira en maður þarf til að þjónusta fólk, en kannski er ekki eins illa ástatt í þjóðfélaginu og fólk vill vera láta, það er að minnsta kosti óskiljan- legt að fólk geti komið með fínar flíkur í viðgerð og gleymt þeim jafnóðum.“ ■ Sóun ■ Það hefur vakið athygli í tengslum við gjaldþrot Radíóhússins að eigendur sátu uppi með fjölda tækja sem hafði verið komið með í viðgerð, en síðan ekki sótt. Rafmagnstæki eru þó ekki það eina sem fólk kemur með í viðgerð og gleymir við svo búið. Persónan BJARNI INGÓLFSSON ■ Starfar hjá Securitas og þó öryggismál- in séu spennandi sér hann sig ekki sem einhvern „Equalizer“ sem slær skjaldborg um grandvara borgara gegn rumpulýð hvers kyns. Þetta er æsingalaust starf. Fín föt aldrei sótt GÆLUDÝR „Við höfum gengið með þessa hugmynd í nokkurn tíma því það hefur lengi vantað gælu- dýragrafreit,“ segir Guðný G. Ívarsdóttir en hún og maður henn- ar Kristján Mikkaelsson opnuðu á föstudaginn 20. júní grafreit að Hurðarbaki í Kjós. Séra Pétur Þorsteinsson, prest- ur Óháða safnaðarins, vígði garð- inn, sem er hugsaður fyrir gælu- dýr og jafnvel hross. Guðný segir að á síðasta ári hafi hún stundað nám við Háskóla Íslands og í skól- anum hafi hún unnið með við- skiptahugmyndina að garðinum. Ég kynnti mér það áður hve mörg dýr eru aflífuð á höfuðborgar- svæðinu á ári hverju, en það eru á milli 7-800 dýr. Fólk á í vanda með að jarðsetja dýrin því flestum er ekki sama hvar þau liggja,“ segir hún. Guðný nefnir einnig að hross séu velkomin í grafreitinn en sjálf á hún þrjú hefðarhross sem kom- in eru langt á þrítugsaldur. „Þau munu verða jörðuð þarna þegar þeirra tími kemur, segir hún.“ Oft eru dýr grafin í görðum manna en það er ekki á vísan að róa í þeim efnum því fólk flytur sig um set og á þá erfitt með að vitja leiðanna. Margir hafa því lengi beðið grafreits eins og á Hurðarbaki. Þeir sem vilja jarðsetja dýrið sitt að Hurðarbaki geta einfald- lega haft samband við Guðnýju, sem býr á næstu jörð, í Flekkudal. Kostnaðurinn við að jarðsetja dýrið er frá 5-7 þúsund krónum og segist Guðný stefna að því að selja einnig kistur og krossa. „Við munum leggja áherslu á að halda garðinum fallegum og í rækt og umfram allt vel hirtum. Til okkar er um það bil 40 mínúta akstur en Hurðarbak er beint á móti Reyni- völlum í Kjós, sunnan við Laxá.“ ■ DÝRIN FÁ NÚ AÐ LIGGJA Í FRIÐI Í SÍNUM EIGIN GARÐI Í Kjósinni hefur verið vígður grafreitur fyrir dýrin, allt frá smádýrum til hrossa. Markaðsstjóri öryggisvarðanna ALDA ÞÓRÐARDÓTTIR Alda situr uppi með ósóttan fatnað til fjölda ára og finnst það siðleysi að fólk komi með föt í viðgerð, en sæki hann síð- an aldrei. Dýrakirkjugarður ■ Gæludýraeigendur hafa lengi beðið þess að fá reit fyrir dýrin sín. Nú er sú bið á enda því tekinn hefur verið í notk- un grafreitur að Hurðarbaki í Kjós. Til eilífðar að Hurðarbaki BJARNI INGÓLFSSON Markaðsstjóri Securitas gengst fús- lega við því að vera Bliki, búið sé að bólusetja sig fyrir lífstíð gegn því að skammast sín sökum brokkgengis síns liðs. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ / VI LH EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.