Fréttablaðið - 23.06.2003, Page 6
RANNSÓKN Lovísa Ólafsdóttir iðju-
þjálfi fór nýverið veiðitúr með
togaranum Árbaki EA í þeim til-
gangi að rannsaka svefnvenjur
sjómanna og áhrif þeirra á heilsu-
far og öryggi. Ferðin er liður í
viðamikilli rannsókn á vegum
samgönguráðuneytisins á 130 sjó-
mönnum á sex togurum sem hófst
fyrir ári síðan og lýkur í haust.
„Sjómenn eru mjög vanræktir
og sofa lítið og illa. Þeir vinna í
sex tíma vaktakerfi og sofa að
jafnaði í þrjá til fjóra tíma aðra
frívaktina og tvo tíma hina. Þeir
liggja á lélegum dýnum sem henta
engan veginn til sjós og ná ekki
fullum svefni,“ segir Lovísa.
Að sögn Lovísu hefur slæmur
svefn sjómanna mikil áhrif á and-
legt og líkamlegt ástand þeirra og
gerir þá viðkvæmari fyrir slys-
um. „Líffræðilegur þáttur sem
tengist svefninum er einn helsti
orsakahluti slysa. Lélegur svefn
sljóvgar viðbrögð manna og skipt-
ir sköpum um heilbrigði og holl-
ustu.“
Slæmur svefn og vaktavinna
valda því að efnaskipti hægja á
sér og hormónastarfsemin breyt-
ist. Rannsóknir hafa sýnt að offita
er algeng meðal sjómanna og
kveðst Lovísa rannsaka tengsl
milli svefntruflana og offitu, en
aðrar aðstæður sjómennskunnar
hafa þar áhrif. „Auk þess er mikil
einhæfni í vinnu á togara í dag og
hún er ein tegund hreyfingarleys-
is. Svo tekur það jafnvel 20
klukkutíma að sigla á miðin og úti
á sjó eru miklu minni möguleikar
á því að stunda hreyfingu en í
landi.“
Eftir að hafa rannsakað að-
stæður og líðan sjómanna segir
Lovísa stöðu þeirra ekki öfunds-
verða. Hins vegar lætur hún vel af
andanum um borð í Árbaki. Hún
þakkar stjórnendum um borð í
skipinu að líðan mannskapsins sé
jafn góð og raun ber vitni. „Stjórn-
endurnir eru hæfir og eru ekki að
öskra á menn. Þeir hafa tilfinn-
ingagreind og vita að maður getur
stýrt streitu upp á við með erfið-
um samskiptum,“ segir hún.
Lovísa hefur fengið tilboð frá
fyrirtæki í Reykjavík um að vinna
við þróun á sérhannaðri dýnu fyr-
ir sjómenn, svo bæta megi svefn
þeirra. Hún vill að yfirstandandi
rannsókn verði notuð sjómönnum
til heilla. „Svefninn hefur gífurleg
áhrif á heilsufar og öryggi um
borð í skipum og það er ljóst að
sjómenn fá ekki nauðsynlega
hvíld.“
jtr@frettabladid.is
6 23. júní 2003 MÁNUDAGUR
■ Lottó
Veistusvarið?
1Tjón varð vegna flóða í mikilli rign-ingu í síðustu viku. Holræsakerfi
Reykjavíkur hafði ekki undan vatnsmagn-
inu. Hvað heitir gatnamálastjórinn?
2Evrópukeppni landsliða var haldinum helgina. Vala Flosadóttir keppti í
tveimur íþróttagreinum. Hvaða greinar
voru það?
3Pamela Anderson var að slíta trúlof-un við þekktan rokkara. Hvað heitir
hann?
Svörin eru á bls. 31
HVALVEIÐAR „Það er vissulega
áfangi fyrir Ísland að við tökum
núna þátt í fundum Alþjóðahval-
veiðiráðsins án þess að nein til-
raun sé gerð til þess að draga í efa
að við séum aðilar að ráðinu,“ seg-
ir Stefán Ásmundsson, fulltrúi Ís-
lands á fundi Alþjóðahvalveiði-
ráðsins, aðspurður um hans mat á
helstu tíðindunum fyrir Íslend-
inga að afloknum fundinum.
Að öðru leyti segir Stefán fund-
inn ekki hafa farið á þann veg sem
Íslendingar hafi helst vonað.
Hann nefnir Berlínarfrumkvæð-
ið, sem festir ráðið enn frekar í
sessi sem friðunarráð, í því sam-
bandi. „Við lítum náttúrlega svo á
að verndun hvalastofna sé mikil-
væg,“ segir Stefán. „En verndun-
in á að vera hluti af nýtingunni.
Það er það samhengi sem raun-
verulega er verið að skera á.“
Stefán segir skiptar skoðanir
hafa verið innan Vísindanefndar-
innar um flest atriði í vísindaáætl-
un Íslendinga, en þó hafi það ver-
ið jákvætt að nefndarmenn voru
sammála um það að vísindaveiðar
á hrefnu myndu ekki hafa slæm
áhrif á hrefnustofninn.
Varðandi hið pólitíska landslag
að afloknum fundinum segir Stef-
án fundinn hafa breytt litlu „Það
skipti svo sem ekki lykilmáli að fá
staðfestingu á því að þjóðir eins
og Ástralía séu á móti hvalveið-
um,“ segir Stefán. „Það vissum
við fyrir fram.“ ■
GRIKKLAND, AP Leiðtogar aðildar-
landa Evrópusambandsins tóku
varfærnislega á móti drögum að
nýrri stjórnarskrá á fundi sam-
bandsins á Grikklandi. Þegar hafa
þó verið gerðar athugasemdir við
nokkur lykilatriði, meðal annars
fyrirhugaðar takmarkanir á neit-
unarvaldi þjóða.
Valery Giscard d’Estaing, fyrr-
um Frakklandsforseti, afhenti
leiðtogunum eintök af stjórnar-
skránni. D’Estaing, sem er í for-
sæti nefndarinnar sem stendur á
bak við uppkastið, hefur farið
fram á það að reynt verði að kom-
ast hjá því að gera verulegar
breytingar á textanum.
Ríkisstjórnir landanna munu
fara ofan í saumana á innihaldi
stjórnarskrárinnar á næstu mán-
uðum. Búist er við fjörlegum um-
ræðum þegar uppkastið verður
tekið fyrir á ráðstefnu ríkis-
stjórna Evrópusambandslanda í
október næstkomandi. Stjórnar-
skráin mun ekki öðlast gildi fyrr
en öll aðildarlöndin hafa sam-
þykkt hana.
Á leiðtogafundinum í gríska
smábænum Porto Carras er
einnig fyrirhugað að ræða inn-
flytjendamál, öryggismál, stöð-
una í Írak og samband Evr-
ópusambandsins við Bandaríkin
og löndin á Balkanskaga. ■
BROSMILDIR LEIÐTOGAR
Leiðtogar 25 núverandi og tilvonandi aðildarlanda Evrópusambandsins eru nú staddir í
smábænum Porto Carras á Grikklandi til þess að ræða framtíð sambandsins.
Leiðtogafundur Evrópusambandsins á Grikklandi:
Nýrri stjórnarskrá tekið með fyrirvara
SVEFNTRUFLANIR TIL SJÓS
Lovísa Ólafsdóttir fór túr með togaranum Árbaki EA í tengslum við rannsókn á svefnvenj-
um sjómanna. Hún segir sjómenn ekki fá fullgildan svefn, sem leiðir til minna öryggis og
aukinnar streitu.
Sjómenn sofa illa
Sjómenn hafa lélegt líkamlegt og andlegt úthald og fá slitróttan svefn,
samkvæmt rannsókn sem Lovísa Ólafsdóttir iðjuþjálfi vinnur að um
svefnvenjur til sjós. Hún segir sjómenn hafa verið vanrækta og vill að
rannsóknin verði notuð til að bæta aðbúnað þeirra.
MÓTMÆLI VIÐ HVALVEIÐUM
Það liggur fyrir íslenskum stjórnvöldum að
taka ákvörðun um vísindaveiðar og leggja
þá m.a. mat á vægi mótmæla við slíkum
áformum.
Stefán Ásmundsson að afloknum fundi í Hvalveiðiráðinu:
Ekki í samræmi við helstu vonir
Lagarfljótsormurinn:
Nýir eigendur
SIGLINGAR Siglingar Ormsins á
Lagarfljótinu hefjast um næstu
mánaðarmót. Gengið hefur verið
frá kaupum á bátnum og eru nýir
eigendur Aðalsteinn Valdimars-
son, Alfreð Rafnsson og Hákon
Aðalsteinsson. Aðalsteinn segir
bagalegt að ekki hafi verið hægt
að skrifa undir samninga fyrr en á
föstudag. Langt sé liðið á vertíð-
ina. Þrátt fyrir það séu menn
bjartsýnir.
„Þær breytingar verða á áætl-
un bátsins að einungis verður lagt
upp frá Atlavík og farið í styttri
ferðir. Við erum opnir fyrir öllum
tillögum og ætlum ekki að negla
niður ferðir bátsins við fastar
áætlanir.“ ■
Sprenging í olíuleiðslu:
Skemmdar-
verk trufla
framleiðslu
ÍRAK Sprenging varð í olíuleiðslu í
grennd við bæinn Hit í Írak seint
á laugardaginn. Mikill eldur gaus
upp í leiðslunni um 140 kílómetra
norðvestur af Bagdad en leiðslan
liggur til höfuðborgarinnar.
Bandaríkjamenn segjast ekki
vita hvað olli sprengingunni en
láta það fylgja sögunni að hún hafi
ekki orðið neinum úr þeirra röð-
um að fjörtjóni.
Talið er víst að sprengingin
verði rakin til skemmdarverka en
olíuiðnaðurinn í Írak hefur verið
skotspónn skemmdarverkamanna
að undanförnu. ■
Tryggingastofnun:
Aukinn lyfja-
kostnaður
ALMANNATRYGGINGAR Útgjöld
sjúkratrygginga að meðtöldum
vistgjöldum til stofnana hækkuðu
um 8,5% í fyrra, eða úr 15,3 millj-
örðum króna á árinu 2001 í 17,2
milljarða 2002.
Samkvæmt upplýsingum frá
Tryggingastofnun ríkisins eru út-
gjöld sjúkratrygginga um 27% af
útgjöldum til heilbrigðismála.
Þyngst vega greiðslur vegna lyfja
en þær voru 5,4 milljarðar króna á
árinu 2002 eða um 32% af heildar-
útgjöldum sjúkratrygginga.
Næststærsti útgjaldaflokkurinn
er greiðslur fyrir hjúkrunarvist-
un á stofnunum fyrir aldraða og
sjúka, rúmar 4 milljarðar króna í
fyrra. ■
Forstjóri Samherja:
Ísland ekki
leiðandi afl
EVRÓPUBANDALAGIÐ „Ég hef ekki trú
á því að Ísland verði neitt leiðandi
afl í sjávarútvegi innan ESB,“ segir
Þorsteinn Már
Baldvinsson, for-
stjóri Samherja,
aðspurður um
skýrslu Alþjóða-
málas tofnunar
um sjávarútvegs-
stefnu ESB, þar
sem leitt er að því
líkum að Norð-
menn og Ísland
geti í krafti
stærðar sinnar í
sjávarútvegi knú-
ið fram breyting-
ar á sjávarútvegs-
stefnu sambandsins. Þorsteinn seg-
ist þó ætla að líta á skýrsluna áður
en hann fjölyrði um málið. Hann
segist opinn fyrir öllum nýjum rök-
semdum varðandi tengsl Íslands
við Evrópusambandið. ■
ÞREFALDUR LOTTÓ Enginn var
með allar lottótölurnar réttar á
laugardagskvöld og verður fyrsti
vinningur, sem nam rúmum 6,2
milljónum króna, því þrefaldur
næst. Einn var með fjórar tölur
auk bónustölu og fær 303 þúsund
krónur að launum. Lottótölurnar
voru 5, 15, 29, 33 og 37 og bón-
ustalan var 1.
ÞORSTEINN MÁR
BALDVINSSON
Hefur ekki trú á því
að Ísland verði
leiðandi afl í sjávar-
útvegi innan ESB.