Fréttablaðið - 23.06.2003, Síða 14
23. júní 2003 MÁNUDAGUR
Mánudaga
til Föstudaga
Laugardaga kl: 12:00 til 16:00
Opnunartími í sumar:
Sími: 514-4407
kl: 13:00 til 18:00
TENNIS Margir bíða með eftirvænt-
ingu eftir breska Wimbledon-mót-
inu í tennis sem hefst þann 23.
júní og stendur til 6. júlí en mótið
er jafnan eitt hið sterkasta í tenn-
isheiminum.
Serena Williams snýr aftur til
að verja titil sinn frá síðasta ári
og veðbankar gefa henni góðar
líkur á að endurtaka leikinn nú.
Sömu sögu er að segja um Lleyton
Hewitt frá Ástralíu sem leiðir
heimslistann, en hann hefur leikið
frábærlega í allan vetur og er
vanur þeim aðstæðum sem
Wimbledon býður upp á.
Helstu keppinautar hans eru
venju samkvæmt hinn síungi
Andre Agassi og Spánverjinn
Juan Carlos Ferrero. Bretar von-
ast einnig til að Tim Henman tak-
ist loks að spila til úrslita en því
hefur hann aldrei náð á löngum
ferli sínum.
Kim Clijsters og Venus Willi-
ams eru taldar líklegar til að veita
Serenu einhverja keppni en aðrar
þykja ekki líklegar til að leggja
hana að velli.
Talsvert er um forföll í keppn-
inni og er þar helst að telja Pete
Sampras, sjöfaldan sigurvegara
Wimbledon, en hann dró sig úr
keppni í maí. Önnur stjarna sem
situr hjá í þetta sinn er Anna
Kournikova hin rússneska, sem
frægari er fyrir útlit sitt en góðan
leik, en hún varð fyrir meiðslum í
baki fyrir skömmu. ■
FÓTBOLTI „Það er bara allt liðið sem
er að leggja upp mörkin,“ sagði
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leik-
maður ÍBV og markahæsti maður
Landsbankadeildar, „Bjarni Geir,
Bjarnólfur, Atli og Tryggvi
Bjarna búinn að senda tvisvar á
mig í hornum.“
Gunnar hefur skorað sjö mörk
í sex leikjum í Landsbankadeild-
inni. „Ég set það alltaf sem mark-
mið að bæta sig frá síðasta ári. Ég
skoraði ellefu mörk í fyrra og ég
ætla að reyna að bæta það í ár en
ég tek bara einn leik fyrir í einu.“
Mörkin sem Gunnar skorar eru
fjölbreytt. „Þetta hefur alltaf ver-
ið svona hjá mér. Ég get skorað
alls konar mörk.“
Fjórir leikmenn eiga marka-
metið í efstu deild. Pétur Péturs-
son (ÍA) skoraði 19 mörk árið
1978, Guðmundur Torfason
(Fram) jafnaði metið átta árum
síðar, Þórður Guðjónsson (ÍA)
bættist í hópinn árið 1993 og
Tryggvi Guðmundsson (ÍBV) árið
1997. Enginn þeirra skoraði jafn
mörg mörk og Gunnar í fyrstu sex
leikjunum. Guðmundur skoraði
sex mörk í fyrstu sex leikjum sín-
um á metárinu, Tryggvi og Þórður
skoruðu fimm og Pétur þrjú. ■
ANNA KOURNIKOVA
Tekur ekki þátt í Wimbledon-tennismótinu
sökum meiðsla.
Breska Wimbledon-mótið í tennis:
Serena og Lleyton
sigurstranglegust
GUNNAR
Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur skorað sjö mörk í fimm leikjum í Lands-
bankadeildinni.
Landsbankadeild karla:
Markametið
í hættu?
Pétur Pétursson 1978
Leikur Gegn h/ú Mörk
1 Þróttur ú
2 Breiðablik h
3 KA h
4 FH ú
5 Fram h
6 Víkingur ú
7 Keflavík h
8 ÍBV ú
9 Valur h
10 Þróttur h
11 Breiðablik ú
12 KA ú
13 FH h
14 Fram ú
15 Víkingur h
16 Keflavík ú
17 ÍBV h
18 Valur ú
5 heima / 14 úti
19 af 47 mörkum ÍA
Guðmundur Torfason 1986
Leikur Gegn h/ú Mörk
1 ÍA h
2 Þór h
3 Keflavík h
4 Valur ú
5 Breiðablik ú
6 FH ú
7 ÍBV h
8 Víðir ú
9 KR h
10 ÍA ú
11 Þór ú
12 Breiðablik h
13 Keflavík ú
14 Valur h
15 FH h
16 ÍBV ú
17 Víðir h
18 KR ú
10 heima / 9 úti
19 af 39 mörkum Fram
Þórður Guðjónsson 1993
Leikur Gegn h/ú Mörk
1 FH ú
2 KR h
3 Þór ú
4 Fram ú
5 Víkingur h
6 Fylkir ú
7 ÍBV h
8 Keflavík ú
9 Valur h
10 FH h
11 KR ú
12 Þór h
13 Fram h
14 Víkingur h
15 Fylkir h
16 ÍBV h
17 Keflavík h
18 Valur ú
13 heima / 6 úti
19 af 62 mörkum ÍA
Tryggvi Guðmundsson 1997
Leikur Gegn h/ú Mörk
1 ÍA h
2 Fram ú
3 Stjarnan h
4 Grindavík ú
5 Valur ú
6 KR h
7 Skallagrímur h
8 Keflavík ú
9 ÍA ú
10 Fram h
11 Leiftur h
12 Stjarnan ú
13 Grindavík h
14 Skallagrímur ú
15 Valur h
16 KR ú
17 Keflavík h
18 Leiftur ú
15 heima / 4 úti
19 af 44 mörkum ÍBV
Gunnar H. Þorvaldsson 2003
Leikur Gegn h/ú Mörk
1 KA h
2 Valur ú
3 Fylkir h
4 Grindavík ú
5 Fram h
6 FH h
5 heima / 2 úti
7 af 12 mörkum ÍBV