Fréttablaðið - 30.07.2003, Page 4
4 30. júlí 2003 MIÐVIKUDAGUR
Hvenær lýkur sumrinu?
Spurning dagsins í dag:
Á Árni Johnsen að fá að mæta í
brekkusönginn?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
26%
62%
Eftir verslunarmannahelgina
12%Hvaða sumri?
Fyrsta vetrardag
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Verð á nautakjöti til bænda:
Lægst í Evrópu
LANDBÚNAÐUR „Bændur eru að
hætta framleiðslu hægt og rólega
þar sem verð á nautakjöti til
bænda er allt of lágt,“ segir Snorri
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Landssambands kúabænda.
Landssamband kúabænda hef-
ur tekið saman upplýsingar um
verð á nautakjöti en í þeim kemur
fram að danskir bændur fá um
25% hærra verð fyrir ungnauta-
kjöt en íslenskir. „Þessi könnun er
staðfesting á því sem við höfum
verið að tala um undanfarin tvö
ár. Þegar við erum komin með
lægra verð en Danmörk, sem er
það land sem hvað lengst er kom-
ið í hagræðingu og framleiðslu á
nautakjöti, þá verðum við að fara
skoða málin alvarlega.“
Snorri segir sambandið vilja
vekja athygli á stöðunni en í fram-
haldinu er ætlunin að funda með
landbúnaðarráðherra. „Við mun-
um fara mjög vandlega yfir þessi
mál með ráðuneytinu þar sem við
þurfum að koma réttum skilaboð-
um til bænda. Ef það er ekki von
um neina aðkomu ríkisins þurfum
við að tilkynna bændum það, því
það tekur um tvö til þrjú ár að
hætta framleiðslu.“ ■
Hart sótt að valda-
blokk Kolkrabbans
Talið er að Kaupþing vilji komast yfir Skeljung til að selja 6 milljarða eign í öðrum félögum og
strípa félagið. Valdablokk Kolkrabbans verst ásókninni. Stríðið um Skeljung í fullum gangi.
FRÉTTASKÝRING Baráttan um Skelj-
ung er í hámarki þessa dagana.
Undanfarin misseri hefur Kaup-
þing hf. keypt grimmt í fyrirtæk-
inu og stefnt að yfirtöku. 30. júní
urðu seinustu stórtíðindi í stríðinu
um Skeljung þegar Shell Petrole-
um seldi Sjóvá-Almennum og
Burðarási tæplega 21 prósents
hlut í Skeljungi
á genginu 12.
Felur það í sér
afslátt upp á 400
milljónir króna
ef litið er til
markaðsvirðis
þegar kaupin
áttu sér stað.
Reyndar er talið
að afslátturinn
sé allt að 800
milljónum króna
sé litið til þess hversu mikið
Kaupþing var talið tilbúið til að
greiða fyrir hlutinn og komast
þannig yfir hreinan meirihluta í
félaginu.
Viðskiptaheimurinn hefur
staðið á öndinni yfir þeim hamför-
um sem þarna eiga sér stað enda
er Skeljungur hjarta þeirrar við-
skiptablokkar sem gjarnan er
kennd við Kolkrabbann. Miklar
vangaveltur eru uppi um hvort
Kaupþing sé að kaupa Skeljung
fyrir einhvern viðskiptavina
sinna. Þar er Baugur gjarnan
nefndur til sögunnar, þá ekki síst í
ljósi þess að fyrirtækið hefur lýst
áhuga á því að hasla sér völl á
eldsneytismarkaði. Þetta fæst
ekki staðfest. Heimildarmenn
Fréttablaðsins í viðskiptaheimin-
um telja reyndar allt eins víst að
Kaupþing sjái einfaldlega í því
gullið viðskiptatækifæri að kom-
ast yfir hluta af valdablokk Kol-
krabbans í því skyni að leysa hana
upp og hagnast verulega með því
að selja eignarhluti Skeljungs í
öðrum félögum. Sem dæmi um fé-
lög sem Skeljungur á hluti í eru
Eimskipafélagið, þar sem Skelj-
ungur á 5,8 prósent, Fjárfestinga-
félagið Straumur, rúm 5 prósent,
Flugleiðir, rúm 5 prósent, og Sjó-
vá-Almennar, rúm 5 prósent. Öll
þessi fyrirtæki eru hluti af valda-
blokk Kolkrabbans þótt áhrifin
séu sumstaðar ekki mikil núorðið.
Milljarðaeign
Samkvæmt ársreikningi Skelj-
ungs er verðmæti hlutabréfa
Skeljungs í öðrum félögum rúmir
5 milljarðar króna. Að teknu tilliti
til markaðsverðs umræddra fé-
laga og hækkun á verði þeirra síð-
an ársreikningurinn var gefinn út
má reikna með því að raunverð
losi 6 milljarða króna. „Þetta er
hin dulda eign Skeljungs sem
Kaupþing ásælist,“ segir heim-
ildamaðurinn. Heildarverðmæti
Skeljungs, miðað við gengi félags-
ins, er um 12 milljarðar króna.
Hlutur Kaupþings, sem er kominn
fast að 40 prósentum, er því um
4,8 milljarðar króna. Þau sjónar-
mið heyrast að Kaupþingsmenn
hafi með kaupum sínum í Skelj-
ungi séð sér leik á borði og með
því að strípa félagið geti þeir gre-
itt upp fjárfestinguna. Sömu aðil-
ar segja að það hafi engan rekstr-
arlegan tilgang fyrir Skeljung að
eiga hlut í félögum á borð við
Eimskip, Sjóvá og Flugleiðir og
eini tilgangurinn sé að halda sam-
an valdablokkinni, eða með öðrum
orðum Kolkrabbanum. Til varnar
í fylkingarbrjósti fyrir Kol-
krabbann er Benedikt Jóhannes-
son, stjórnarformaður Skeljungs,
Haukþings, Eimskips og trygg-
ingaráðgjafi Sjóvá-Almennra.
„Það myndi ekkert breytast í
rekstri Skeljungs þótt félagið
seldi hluti sína í öllum 30 félögun-
um sem fyrirtækið hefur fjárfest
í,“ segir einn heimildarmanna
Fréttablaðsins sem vill ekki láta
nafns síns getið. Sá sami bendir á
að Kaupþingsmenn undir forystu
Sigurðar Einarssonar stjórnarfor-
manns hafi örugglega gaman af
því „að kukla í Kolkrabbanum“ í
leiðinni en þeir hafi fullar við-
skiptalegar forsendur til þess að
seilast í Skeljung til þess eins að
innleysa eignir fyrirtækisins í
öðrum félögum og hagnast á
kaupunum. Þannig gæti Kaupþing
jafnvel selt líka hluta af bensín-
stöðvum félagsins og einfaldað
mjög reksturinn. Hann telur ekki
ótrúlegt að Kaupþingsmenn ætli
sér að kaupa félagið til að eiga það
í eitt til tvö ár. Sami heimildar-
maður segir að frá sjónarhóli
þeirra sem stjórna Kolkrabbanum
sé afleitt að missa Skeljung í
hendur annarra því það fyrirtæki
sé mjólkurkúin í valdablokkinni.
Vandinn sé aðeins sá að Kolkrabb-
inn búi við lausafjárskort og hafi
að auki áhyggjur af yfirvofandi
sektum vegna meints olíusamráðs
Skeljungs og sé því ólíklegur til að
yfirtaka Kaupþingshlutinn. Eim-
skip er sagt gríðarlega ofmetið
fyrirtæki í rekstri sem ekki sé
upp á marga fiska. Helst gæti Kol-
krabbinn fótað sig í Sjóvá-Al-
mennum, þriðja arminum í hnign-
andi veldi Kolkrabbans.
Valdabarátta
Á það er bent að Kolkrabbinn
hafi reynt að verja þessa valda-
blokk sína með kjafti og klóm til
þess eins að halda völdum en
ekki með hagnaðarsjónarmið að
leiðarljósi. Þær raddir heyrast
innan viðskiptalífsins að rekstur
fyrirtækja í því skyni að halda
völdum sé tímaskekkja á nýjum
tímum þar sem frelsi, gagnsæi
og afskiptaleysi stjórnvalda sé
lykilatriði. Því muni Kolkrabb-
inn eiga á hættu að lognast út af
fyrr en síðar.
rt@frettabladid.is
Aflaverðmæti:
24,7 milljarðar
SJÁVARÚTVEGUR Fyrstu fjóra mán-
uði ársins nam aflaverðmæti
skipa frá öllum miðum 24,7 millj-
örðum króna og var heildaraflinn
795 þúsund tonn, samkvæmt upp-
lýsingum frá Hagstofu Íslands.
Stærstur hluti aflans var unn-
inn á Austurlandi en þar voru 310
þúsund tonn unnin, aðallega af
uppsjávarfiski. 3,6 milljarðar
fengust fyrir afurðirnar. Á Suð-
urnesjum var hins vegar unnið
úr mestum verðmætum eða 4,8
milljörðum króna. Magn aflans
var 109 þúsund tonn, aðallega
botnfiskur. Á höfuðborgarsvæð-
inu var unnið úr 32 þúsund tonn-
um fyrir 3,3 milljarða króna. ■
SÍLDARVINNSLAN NESKAUPSTAÐ
Rólegt hefur verið yfir kolmunnaveiðum.
Kolmunni:
Rólegt á
miðunum
KOLMUNNI Rólegt hefur verið yfir
kolmunnaveiðunum síðastliðna
sólarhringa, samkvæmt upplýs-
ingum frá Síldarvinnslunni. Þó
veiðist alltaf eitthvað, en tvö
sænsk skip lönduðu síðastliðið
föstudagskvöld samtals um 900
tonnum hjá verksmiðju Síldar-
vinnslunnar á Raufarhöfn.
Þá lönduðu þrjú skip samtals
rúmlega 1800 tonnum í Neskaup-
stað á föstudagskvöld og laugar-
dagsmorgun, auk þess sem 2450
tonnum var landað á Siglufirði um
helgina og í gær. Bjarni Ólafsson
er væntanlegur til Seyðisfjarðar í
kvöld með 1300 tonn. ■
NAUT
Snorri Sigurðsson segir framboð á
nautakjöti muni dragast saman á
næstu árum verði ekkert að gert.
SKELJUNGUR
Hart er barist um yfirráð í olíufélaginu. Búist er við tíðindum á næstunni.
EIGNIR Í ÖÐRUM FÉLÖGUM
Hf. Eimskipafélag Íslands. 5,8%
Fjárfestingarfélagið Straumur. 5,7%
Flugleiðir hf. 5,1%
Guðmundur Runólfsson hf. 2,5%
Hraðfrystihús Eskifjarðar. 5%
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. 2,6%
Jarðboranir hf. 1,4%
Plastprent hf. 11%
Sjóvá Almennar hf. 5,5%
SR-mjöl hf. 1%
Tangi hf. 3%
Þorbjörn-Fiskanes hf. 2,5%
Þormóður rammi-Sæberg hf. 2,5%
Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja. 4%
Gná hf. 15,5%
Hraðfrystihús Hellissands hf. 5%
Ísfélag Vestmannaeyja 0,4%
Ístún hf. 8%
Vigri hf. 5%
Ögri hf. 5%
Ögurvík hf. 5%
HLUTDEILDARFÉLÖG
SKELJUNGS
Fjölver ehf. 33,3%
Fríkort ehf. 22,5%
Gasfélagið ehf. 33,3%
Haukþing ehf. 33,3%
Sigurplast hf. 46,6%
Sundabakki ehf. 31,7%
Tempra 23,8%
Úthafsolía ehf. 33,3%
„Það myndi
ekkert breyt-
ast í rekstri
Skeljungs þótt
félagið seldi
hluti sína í
öllum 30 fé-
lögunum.
Hátíðardagskrá
á Seyðisfirði:
Ferjuhöfnin
opnuð
OPNUN Ferjuhöfnin á Seyðisfirði
verður opnuð formlega á morgun.
Kostnaður við ferjuhöfnina
liggur nærri 600 milljónum króna.
Von er á Norrænu ásamt tveimur
skemmtiferðaskipum á opnunar-
daginn, Kristina Regina og Aka-
demik Sergey Vilitov. Háíðardag-
skrá verður frá morgni til kvölds
þar sem meðal annars verður flutt
tónlist, grillað, varðeldur tendrað-
ur og flugeldum skotið á loft. ■