Fréttablaðið - 30.07.2003, Page 16

Fréttablaðið - 30.07.2003, Page 16
18 30. júlí 2003 FIMMTUDAGUR Íkjölfar ákvörðunar Reykjavík-urborgar um að hætta stuðn- ingi við tónlistarnema á fram- haldsstigi sem lögheimili eiga í öðrum sveitarfélögum sam- þykkti Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að synja bæri þessum nemendum um styrk til áframhaldandi náms í Reykjavík. Þessi ákvörðun var tekin á grundvelli þess að lög kvæðu á um að ríkið greiddi fyr- ir alla menntun á framhalds- skólastigi. Í skjóli hennar hefur Seltjarnarnesbær nú neitað að greiða fyrir tónlistarnám þeirra einstaklinga á Seltjarnarnesi sem eru orðnir sextán ára og stunda tónlistarnám í öðru sveit- arfélagi. Annars flokks nám? Synjunin nær eingöngu til tón- listarnáms á framhaldsstigi og eins og gefur að skilja kemur hún niður á þeim einstaklingum sem lengst eru komnir í námi. Með þessu er sveitarfélagið í raun að leggja stein í götu þess Seltirn- ings sem vill verða atvinnutónlist- armaður, þar sem í sveitarfélag- inu er eingöngu boðið upp á tón- listarnám á grunn- og miðstigi. Þar sem sveitarfélagið sýnir sig með þessu móti að vera ekki einu sinni tilbúið til að sinna þeim lág- marksskyldum sem fylgja því að mennta fólk til þessara starfa má í raun segja að það sé þversagnar- kennt að bæjarlistamaður Sel- tjarnarness sé valinn á hverju ári eða tónlistarhátíðir haldnar á veg- um sveitarfélagsins. Skilnings- leysi á gildi tónlistarmenntunar virðist ríkja og látið er eins og sú menntun sé annars flokks. Menntun fyrir alla Engum myndi detta í hug að senda bréf heim til allra fram- haldsskólanema á einhverju svæði og tilkynna þeim að þeir fengju ekki að halda áfram að stunda sitt nám. Synjun Seltjarn- arnessbæjar má auðveldlega líkja við þetta. Fólk fer í framhalds- skóla til að undirbúa sig undir frekara bóknám, eins og fólk stundar nám á framhaldsstigum tónlistarskóla meðal annars til að undirbúa sig undir frekara nám í greininni. Ólíðandi staða Ákvörðun Reykjavíkurborgar um að hætta að styrkja nemendur • Baðinnréttingar • Eldhúsinnréttingar • Fataskápar Borgartúni 29 • sími: 562 5005 • www.herognu-innrettingar.is Stu ttu r a fgr eið slu tím i ! Saman í útilegu! Bergþóra Valsdóttir framkvæmdastjóri SAMFOK og Guðrún Arna Gylfadóttir verk- efnastjóri ÍTR, báðar meðlimir í SAMAN- hópnum Nú nálgast óðum ein stærstaferðahelgi ársins, verslunar- mannahelgin. Framundan er síð- asti sumarleyfismánuðurinn áður en skólar hefjast að nýju. Framundan er aragrúi tækifæra fyrir okkur foreldra að verja dýrmætum tíma með því dýr- mætasta í lífinu, börnunum okk- ar. Tækifæri til að fara í útilegu eða á útihátíð, saman! Tækifæri til að horfa á sólarlagið saman, tína ber á Þingvöllum saman, búa til mat saman, spjalla saman, vera saman. SAMAN-hópurinn er sam- starfshópur um forvarnir sem stuðla að velferð barna. Í hópn- um er fólk sem vinnur með og fyrir börn og unglinga, jafnt frjáls félagasamtök svo og opin- berir aðilar. Tengist sú vinna einkum forvörnum, uppeldi, menntun og meðferðar- og ráð- gjafarúrræðum. Meginmarkmið- ið með starfi hópsins er að vinna saman að því að styðja og styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu. Í sumar hefur SAMAN-hópur- inn lagt áherslu á gildi samveru- stunda fjölskyldunnar. Rann- sóknir hafa sýnt að samvera barna og foreldra dregur veru- lega úr líkum á því að börn leiðist út í neyslu vímuefna. Þetta er staðreynd sem við foreldrar ætt- um að hafa í huga þegar við tök- um ákvarðanir um hvar og hvernig við ætlum að verja helg- inni framundan. Við getum valið að verja tímanum saman og safna góðum minningum. Við berum ábyrgð á börnunum okkar í a.m.k. 18 ár. Það er sá tími sem við höfum til að undirbúa þau til að axla ábyrgð á eigin lífi, hamingju og velferð. Tími okkar er takmörkuð auðlind, verum meðvituð um hvernig við nýtum hann. ■ Skipulagsmál í landi Vatnsendaog þar í kring hafa valdið mikl- um deilum í Kópavogi á undan- förnum árum. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks hafa farið þar fram með offorsi og nokkrum yfirgangi. Hátíðleg loforð um samráð og umfang byggðar virðast hafa lítið gildi. Deiliskipulag á Hörðuvalla- svæðinu í Kópavogi var sam- þykkt í bæjarráði 24. júlí sl. Svæðið sem um ræðir er á milli Sala- og Vatnsendahverfis. Á svæðinu er gert ráð fyrir 1064 íbúðum í einbýli og fjölbýli og er íbúafjöldi áætlaður rúmlega 2.800. Ekki er tekið tillit til at- hugasemda og tillagna í umræðu um málið í bæjarráði og greiddi ég atkvæði gegn skipulagstillög- unni. Á auglýsingatímanum bár- ust einnig fjölmargar athuga- semdir frá íbúum, hestamönnum og fleirum, ekki var heldur tekið neitt tillit til þeirra. Er það því miður í samræmi við venjulegt vinnulag meirihlutans í skipu- lagsmálum. Í kosningabaráttu segja þeir hvað sem er Fyrir sveitarstjórnarkosning- arnar vorið 2002, lögðu Sjálf- stæðis- og Framsóknarmenn mikla áherslu á að ekki yrði skipulagt meira en 5.000 manna byggð á norðursvæði Vatnsenda. Nú ári seinna eru þessi loforð svikin eins og ekkert sé. Sam- þykkt bæjarráðs gerir ráð fyrir umtalsvert fleiri íbúðum og þétt- ari byggð. Auk þess eru í burðar- liðnum hugmyndir um mikil há- hýsi á þessu svæði; þrjú tuttugu hæða hús með 100 íbúðum hvert. Af einhverjum ástæðum eru þær hugmyndir ekki kynntar núna þó verið sé að samþykkja breytt skipulag svæðisins. Það er ekki einungis verið að skipuleggja meiri byggð en lofað hafði verið. Staðfestu skipulagi á norðursvæðinu þar sem bygging- arframkvæmdir eru þegar hafnar er verið að breyta og fjölga þar íbúðum verulega. Er hér um klárt brot á loforði sem formaður skipu- lagsnefndar gaf íbúum á Vatns- endasvæðinu. Hvað sögðu þeir þá? Í prófkjörsbaráttunni fyrir kosningar og í kosningunum 2002 sagði Gunnsteinn Sigurðsson, nú- verandi formaður skipulagsnefnd- ar, að taka þyrfti upp önnur vinnu- brögð í skipulagsmálum. Hann gagnrýndi m.a. félaga sína í Sjálf- stæðisflokknum fyrir skort á sam- ráði. Nú er komið í ljós að formað- ur skipulagsnefndar viðhefur hin hefðbundnu vinnubrögð meirihlut- ans. Annað hvort ræður hann engu eða litlu í meirihlutanum og þorir ekki að standa á sínu, eða fór með tómar blekkingar í kosningunum vorið 2002. Hvorugt er sérstaklega stórmannlegt. Dapurlegur lærdómur Með staðfestingu á skipulagi á Hörðuvallasvæðinu áréttar meiri- hlutinn nokkur atriði með sterk- um hætti: Að athugasemdir íbúa og annara skipta litlu máli. Orð og yfirlýsingar eru létt í vasa meiri- hlutans. Byggja verður hærra, þéttar og meira en áður hefur ver- ið talað um. Þetta eru þeir aug- ljósu lærdómar sem íbúar bæjar- ins draga af vinnubrögðum meiri- hlutans í skipulagsmálum í bæn- um. Auðvitað á að gera þá eðlilegu kröfu að bæjarfulltrúar standi við það sem þeir lofa hvort sem það er í kosningabaráttu eða annars staðar og þeir hafi hagsmuni bæj- arins og íbúa hans ávallt að leiðar- ljósi. ■ Orð og efndir! Þjóðmál FLOSI EIRÍKSSON ■ oddviti Samfylk- ingarinnar í Kópavogi, skrifar um skipulags- mál í Kópavogi Sauður í sauðargæru Fyrir nokkrum vikum sendi Sam-band ungra sjálfstæðismanna frá sér ályktun þar sem gagnrýndar voru hugmyndir Framsóknarflokks- ins um 90% húsnæðislán. Málefna- lega fram sett og ekkert við því að gera annað en að svara á sama hátt sem og Samband ungra framsóknar- manna gerði í annari ályktun. Í kjöl- farið sáu ýmsir kverúlantar sér leik og hófu að blanda sér í umræðuna, helst án þess að geta nafns líkt og í Staksteinum Morgunblaðsins þann 5. júlí, þar sem einhver ónefndur starfsmaður blaðsins fer mikinn í umfjöllun sinni, snýr út úr og setur staðreyndir á haus. Í sömu gryfju féll vefsíða sem kallast andriki.is. Þar virðist andleysi ritstjórnarmeð- lima hafa verið algert þann 8. júlí og þeir því hnotið um það sama og Morgunblaðið. Slett fram fullyrð- ingum um húsnæðishugmyndir framsóknarmanna, líklega án þess að kynna sér þær á nokkurn hátt. Í ljósi þessa tel ég rétt að fara aðeins yfir nokkur atriði. Hvað er að? Sá veruleiki sem blasir við ungu fólki sem er að hefja búskap, er allt annað en freistandi. Sumir eru heppnir að eiga foreldra sem búa í rúmgóðu húsnæði og reyna því að hanga í foreldrahúsum eins lengi og kostur er. Aðrir eru ekki eins heppnir með heimilisaðstæður og þurfa því að flytja að heiman mun fyrr. Við tekur leigumarkaðurinn, fæstir luma á útborgun í íbúð. Leigumarkaðurinn hefur sannar- lega sína galla. Hann er ótraustur. Þeir sem á honum eru geta átt það yfir höfði sér að þurfa flytja sig á milli íbúða með tilheyrandi óþæg- indum. Þá er hann dýr. Þeir sem ekki hafa laun yfir meðallagi geta lent í basli með að standa skil af leigunni og endað fastir í nokkurs konar vítahring leigumarkaðarins. Fyrir þennan fjölmenna hóp er 90% lánið kærkomin lausn, þar sem mun lægri fjárhæð þarf til að komast í eigið húsnæði og því þarf minna til að komast af leigumarkaðinum sem heldur mörgum í hálfgerðri fá- tækragildru. Úlfur, úlfur! Heyrst hafa áhyggjur af því að framkvæmdin muni setja ríkið og heimilin á hausinn, auk bagalegra áhrifa á fjármálamarkaðinn. Sam- kvæmt þeim sérfræðingum sem út- fært hafa hugmyndirnar um 90% lánin er sá ótti að mestu ástæðulaus. Vissulega kunni að verða nokkur aukning í veltu á markaðinum en ekki verður um sprengingu að ræða þar sem breytingin verður innleidd í nokkrum fyrirfram ákveðnum skrefum út kjörtímabilið sem ætti að milda verulega eftirspurn- arbylgjuna og koma þannig í veg fyrir óeðlilega hækkun á húsnæðis- verði. Þá gera tillögurnar ráð fyrir að stækka þurfi íslenska skulda- bréfaflokka til að gera þá gjald- genga á erlendum mörkuðum. Þetta mundi auðvelda aðgengi erlendra fjárfesta að íslenskum markaði sem að miklu leyti ætti að geta komið til móts við neikvæð áhrif sem breyt- ingin kynni að hafa á vaxtastig. Þá hefur verið bent á að skuldsetning heimilanna muni ekki aukast svo mjög, heldur verði að miklu leyti um tilfærslu á skuldum að ræða, frá bönkum og til Íbúðarlánasjóðs. Þetta muni enn frekar draga úr ætl- uðum neikvæðum áhrifum. Við eða bankinn? Ætti ríkið nokkuð að vera að stússast í þessu? Framsóknarmenn eru hlynntir því að nýta kosti mark- aðarins en þó alltaf á þann hátt að manngildi sé ofar auðgildi. Það er ein af grundvallarhugmyndum flokksins að hver og einn hafi sama rétt til grundvallarlífskjara óháð uppruna, heilsu og efnahag. Við telj- um að það að hafa þak yfir höfuðið séu ein af grundvallarlífskjörum hvers manns og það er stefna okkar að menn standi við sama borð við að koma sér þaki yfir höfuðið. Við telj- um það best tryggt með umsjón rík- isstofnunar sem hlýðir stefnumótun kjörinna fulltrúa og er ekki rekin með gróðavonina eina að markmiði. Það væri andstætt hugmyndum framsóknarmanna ef fjársterkir að- ilar fengju betri lánskjör til húsnæð- iskaupa en aðrir líkt og gerist á al- menna bankamarkaðinum. Það er annars athyglisverð stúd- ía hversvegna frjálshyggju strák- arnir eru á móti slíku framfaramáli, sem eykur erlenda fjárfestingu í landinu og kostar ríkisjóð ekki krónu, því Íbúðarlánasjóður stendur undir sér hjálparlaust. Sjá þeir sig knúna til að tala máli viðskiptabank- anna sem allur almenningur er orð- inn hundleiður á vegna þess hve það kostar mikið að fara yfir á debet- kortinu? Eða er þetta sama blinda trúin á málstaðinn og riðið hefur flestum öðrum öfgastefnum að fullu? Það er erfitt að segja. Ég hef hinsvegar fulla trú á að þeir eigi eft- ir að nýta sér 90% lánin rétt eins og þeir taka feðraorlofið sem þeir voru andsnúnir á sínum tíma. Þeir eiga eftir að átta sig á að hugmyndirnar eru ekki úlfur í sauðargæru. ■ ■ Bréf til blaðsins Þjóðmál HAUKUR LOGI KARLSSON ■ formaður SUF skrifar um hækkun húsnæðislána Þjóðmál ANNA TRYGGVA- DÓTTIR, ■ tónlistarnemi, skrifar um tónlistar- nám sem enginn vill greiða fyrir. Tónlistarnemar málaðir út í horn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.