Fréttablaðið - 30.07.2003, Page 31

Fréttablaðið - 30.07.2003, Page 31
31MIÐVIKUDAGUR 30. júlí 2003 LEIKSTJÓRI AÐ STÖRFUM Friðrik Þór Friðriksson leikstýrir sínu fólki í góðvirðinu í miðborg Reykjavíkur á dögunum. Vökult auga fylgist með flestu og leikstjórastólarnir gerast vart betri í Hollywood. Ef þeir eru þá til þar þessarar gerðar. Þetta er nýr kafli í íslenskrifjarskiptasögu,“ segir Eggert Skúlason, fyrrum fréttamaður á Stöð 2, sem vinnur nú að því að netvæða hinar dreifðu byggðir landsins. Fyrirtæki Eggerts, eMax, býður upp á tengingu við netið í gegnum örbylgju sem gef- ur sítengingu stóru símafyrir- tækjanna ekkert eftir í gæðum og er alls ótengd þeim. Nú síðast var kerfi Eggerts og félaga komið upp í Skorradal og stendur þar sumar- húsaeigendum til boða: „Þetta er lausn sem hentar litl- um sveitarfélögum sem annars myndu aldrei fá sítenginguna hjá stóru símafyrirtækjunum. Þegar þjónustu þeirra sleppir komum við á hvítum hesti og björgum málunum. Við erum þegar á Stokkseyri, Selfossi, í Borgarnesi og næst er það Akureyri,“ segir Eggert sem býður þjónustuna með stofngjaldi á 39.900 krónur og síðan 4.500 krónur á mánuði. „Við gætum netvætt hinar dreifðu byggðir landsins á þremur til fjór- um mánuðum; öll þau svæði sem falla ekki undir framkvæmdaá- ætlun stóru símafyrirtækjanna.“ Spurningunni um hvort þarna sé þriðji risinn að fæðast á síma- markaðnum, svarar Eggert með tveimur orðum; stutt en snaggara- lega: „No comment“. ■ Fjarskipti EGGERT SKÚLASON ■ fyrrum fréttamaður er í forsvari fyrir fyrirtæki sem býðst til að netvæða hina dreifðu byggðir landsins framhjá stóru símafyrirtækjunum. Eggert í Netheimum EGGERT SKÚLASON Boðar kaflaskipti í fjarskiptasögu þjóðarinnar. FRÉTTAB LAÐ IÐ /ALD A LÓ A FRÉTTAB LAÐ IÐ /ALD A LÓ A

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.