Fréttablaðið - 22.09.2003, Qupperneq 2
2 22. september 2003 MÁNUDAGUR
„Hún gæti gert það! Það veltur á hver-
su auðvelt er að koma heim aftur.“
Dr. Þóroddur Bjarnason hefur kannað hvar ung-
lingarnir okkar vilja búa. Samkvæmt þeim vilja
flestir búa erlendis.
Spurningdagsins
Þóroddur, mun útþráin drepa okkur?
Vandamál leyst á
kostnað hluthafa
ATHAFNALÍF Vilhjálmur Bjarnason,
fjárfestir og aðjúnkt við Háskóla
Íslands, óttast að hagsmunir
smærri hluthafa í Eimskipi verði
fyrir borð bornir í þeim miklu
hræringum sem átt hafa sér stað
varðandi eignarhald á félaginu í
síðustu viku. Vilhjálmur segir það
orka tvímælis að tveir stórir hlut-
hafar, Straumur og Sjóvá-Al-
mennar, hafi fengið tækifæri til
að losa um eignarhlut sinn í félag-
inu á meðan aðrir hluthafar hafi
ekki haft möguleika á því sama.
Hann segir að breytingar á eigna-
safni Eimskips geri það að verk-
um að félagið sé í dag ekki sama
félag og fjárfestar hafi keypt í.
Vilhjálmur minnir á að í úr-
skurði Fjármálaeftirlitsins við
kaup Samsonar ehf. á Landsbank-
anum hafi sérstaklega verið tekið
fram að fallist hafi verið á að
Samson væri hæfur aðili til að
fara með ráðandi eignarhluti í
bankanum að því tilskildu „að
tryggt [yrði] að eignarhlutur Sam-
son í Landsbanka Íslands hf.
skap[aði] Samson ekki annan
ávinning en þann sem [fælist] í
ávinningi hluthafa af heilbrigðum
og arðsömum rekstri bankans.“ Í
úrskurði Fjármálaeftirlitsins kom
einnig fram að samþykktum Sam-
sonar ehf. hefði verið breytt á
þann veg að eini tilgangur félags-
ins væri eignarhald á hlutabréf-
um í Landsbanka Íslands. Vil-
hjálmur telur að viðskipti Samson
International og samstarf félags-
ins við Landsbankann stríði gegn
úrskurði Fjármálaeftirlitsins. Vil-
hjálmur telur að samskiptavanda-
mál Íslandsbanka og Landsbank-
ans vegna eignarhalds á Straumi
séu leyst á kostnað hluthafa í Eim-
skipi og sé að setja þar allt á haus.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, segir að
Fjármálaeftirlitið fylgist með
málinu. „Við erum í þeirri stöðu
að hafa eftirlit með Landsbankan-
um og því sem hann gerir. Jafn-
framt höfum við eftirlit með virk-
um eigendum í Landsbankanum
og það eftirlit beinist auðvitað að
því að standa vörð um heilbrigðan
og traustan rekstur Landsbank-
ans. Báðum þessum verkefnum er
sinnt með reglubundnu eftirliti og
það er liður í því að fylgjast með
þessu máli,“ segir Páll Gunnar.
thkjart@frettabladid.is
Jóhannes Jónsson segir húsleit lögreglunnar hafa verið Baugi dýrkeypta:
Tólf milljarðar á ári töpuðust með Arcadia
VIÐSKIPTI Jóhannes Jónsson, einn að-
aleigenda Baugs, segir félagið hafa
orðið af sem svarar til tíu til tólf
milljarða króna á ári vegna þess að
kaup á stórum eignarhlut í Arcadia-
verslunarkeðjunni bresku fóru út
um þúfur. Þetta kom fram í þættin-
um Maður á mann á Skjá Einum í
gærkvöldi.
Baugur hugðist kaupa hlut í
Arcadia í samvinnu við viðskipta-
jöfurinn Philip Green. Húsleit ríkis-
lögreglustjóra hjá Baugi á við-
kvæmu augnabliki í þeim viðræð-
um urðu til þess að Green sleit sam-
starfinu við Baug.
„Þetta var gríðarlega dýrt vegna
þess að það voru miklir möguleikar
sem fóru í súginn við þessa innrás.
Hún var hárnákvæmt tímasett.
Philip Green, sem hefur tjáð sig um
hvað þarna var á ferðinni, eignaðist
þennan eignarhlut sem fór í upp-
nám þarna við þessa innrás. Hann
telur að það sé um að ræða tíu til
tólf milljarða á ári sem við hefðum
nánast orðið áskrifendur að ef við
hefðum haldið á spöðunum þarna
eins og hann hefði gert,“ sagði Jó-
hannes í þættinum.
Aðspurður um ástæðu fyrir
áhuga efnahagsbrotadeildar ríkis-
lögreglustjóra á Baugi sagði Jó-
hannes vel þjálfaðra smalahunda
oft fara offari í von um bita hjá hús-
bónda sínum. ■
EDMUND STOIBER
Kristilegir demókratar, flokkur Edmund
Stoiber, fóru með sigur af hólmi í kosning-
unum í Bæjaralandi.
Kosningar í Bæjaralandi:
Schröder
beið afhroð
ÞÝSKALAND, AP Sósíaldemókrata-
flokkur Gerhards Schröders,
kanslara Þýskalands, beið mikið
afhroð í kosningum til héraðs-
þings í Bæjaralandi. Kristilegir
demókratar fóru með sigur af
hólmi en samkvæmt útgöngu-
spám fengu þeir yfir 60% at-
kvæða.
Fylgi Sósíaldemókrataflokks-
ins féll um meira en tíu prósentu-
stig frá síðustu kosningum. Er
fylgistapið rakið til vaxandi at-
vinnuleysis í landinu og óánægju
landsmanna með róttækar efna-
hagsumbætur Schröders.
Úrslit kosninganna eru mikill
sigur fyrir Edmund Stoiber, for-
sætisráðherra Bæjaralands, sem
var kanslaraefni Kristilegra
demókrata í síðustu þingkosning-
um. ■
Úrslit í Lottó 5/38:
Tveir með
allar tölur
VINNINGSTÖLUR Tveir aðilar skiptu
með sér Lottópottinum um helg-
ina. Fengu báðir 3,2 milljónir
króna í sinn hlut en heildarupp-
hæð vinninga var 8,8 milljónir.
Tveir voru einnig með fjórar
tölur réttar í Jókernum og fengu
þeir báðir hundrað þúsund krónur
í vasann. Heildarupphæð vinn-
inga í honum voru 448 þúsund
krónur. ■
TUNGLIÐ ÍÓ
Eitt af tunglum Júpíters á mynd sem
tekinn var af könnunargeimfarinu Galíleó.
Geimfarið Galíleó:
Brann í
lofthjúpnum
VÍSINDI Geimfarið Galíleó lauk
áralangri ferð sinni um himin-
geiminn þegar því var stýrt inn í
lofthjúp plánetunnar Júpíters síð-
degis í gær.
Geimfarið var sent af stað árið
1989 til að rannsaka Júpíter. Þær
ómetanlegu upplýsingar sem
Galíleó aflaði voru sendar til jarð-
ar með útvarpsbylgjum.
Yfirmenn NASA ákváðu að láta
geimfarið brenna upp í lofthjúpi
Júpíters til þess að koma í veg
fyrir að það rækist á eitt af tungl-
um plánetunnar. Hugsanlegt var
talið að örverur frá jörðinni væru
um borð í Galíleó og hefðu þær
getað eyðilagt fyrirhugaðar til-
raunir vísindamanna til að leita að
lífi á tunglunum. ■
ANDVÍGIR
Norðmenn sveiflast í afstöðu til
ESB.
Ný skoðanakönnun:
Andvígir
aðild að ESB
NOREGUR Meirihluti Norðmanna er
andvígur inngöngu landsins í Evr-
ópusambandið, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun sem birt var í
Dagbladet.
Um 38% aðspurðra sögðust
myndu greiða atkvæði gegn aðild
að sambandinu ef kosið yrði um
það nú en 37% eru fylgjandi aðild.
Fjórðungur landsmanna er
óákveðinn. Í skoðanakönnun sem
gerð var í ágúst var meirihluti að-
spurðra hlynntur inngöngu Nor-
egs í Evrópusambandið og aðeins
33% sögðust myndu hafna aðild. ■
Lyf við Alzheimer-sjúkdómi innan tíu ára:
Hindranir eru enn miklar
LÆKNISFRÆÐI Í frétt í sænska Afton-
bladet í gær er haft eftir sérfræð-
ingum við Karolínska sjúkrahúsið
að rannsóknir gefi vonir um að
innan tíu ára verði hægt að bólu-
setja við Alzheimer-sjúkdómi.
Haft er eftir prófessor Bengt
E. Winbland að innan fárra ára
verði komin á markað lyf sem
hefti framgang sjúkdómsins.
Hann upplýsti að fyrir nokkru
hafi verið kynntar í Banda-
ríkjunum rannsóknir sem bendi
til að sambland donepezil, sem
lengi hefur verið notað gegn sjúk-
dómnum, og nýs lyfs, memantíns,
virki vel á sjúkdóminn.
Jón Snædal, sérfræðingur í
öldrunarsjúkdómum, segir það
talsverða bjartsýni að ætla að
lækning verði fundin við
Alzheimer-sjúkdómi innan svo
skamms tíma. „Rannsóknir eru
enn á því stigi að verið er að skoða
þetta í dýrum. Vissulega eru for-
sendur til að þetta gæti orðið að
veruleika en hindranir eru miklar.
En það er alveg rétt að ef allt
gengur upp verður þetta komið
innan tíu ára,“ segir hann. ■
LOTTÓTÖLURNAR:
6 20 25 28 30
Bónustala: 31
JÓKERINN:
3 0 5 7 1
JÓHANNES JÓNSSON
„Það voru miklir möguleikar sem fóru í súginn við þessa innrás. Hún var hárnákvæmt
tímasett,“ sagði Jóhannes Jónsson í sjónvarpsþætti í gærkvöld um húsleit ríkislögreglu-
stjóra hjá Baugi.
VILHJÁLMUR BJARNASON
Segir að Eimskip sé ekki lengur sama félag og fjárfestar hafi keypt í.
Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við HÍ, óttast að hagsmunir smærri hlut-
hafa í Eimskipi séu fyrir borð bornir. Hann telur að Eimskip sé ekki
sama félag í dag og fjárfestar hafi keypt í.
BÓLUSETNING OG LYF
Alzheimer-sjúkdómur leggst einkum á
eldra fólk. Ef allt gengur upp verður komið
lyf við sjúkdómnum innan tíu ára.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
■ Lögreglufréttir
FANNST Í FJÖRU Bátur var hætt
kominn í höfninni á Hvamms-
tanga. Losnaði hann frá bryggj-
unni og rak upp í varnagarð. Mik-
ill sjógangur gerði björgunar-
sveitarmönnum erfitt fyrir og
tók talsverðan tíma að koma
böndum á bátinn.
Kannabisefni fundust:
Fernt í
varðhaldi
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Ísafirði
fann 90 grömm af kannabisefnum
í bifreið sem stöðvuð var við
venjubundið eftirlit. Tveir menn,
20 og 24 ára, og ein 16 ára gömul
stúlka voru í bílnum og voru þau
yfirheyrð og gistu fangageymslur
í framhaldi af því.
Ungmennin viðurkenndu
neyslu á hluta efnisins en vegna
magnsins grunar lögreglu að ætl-
unin hafi verið að selja efnið á
Ísafirði. Annar piltur, eigandi bíls-
ins, var einnig handtekinn á Ísa-
firði vegna gruns um að eiga aðild
að málinu. ■