Fréttablaðið - 22.09.2003, Qupperneq 54
Hrósið 26 22. september 2003 MÁNUDAGUR
Það sem átti að vera einnarhelgar gaman er nú að breyt-
ast í vikulegan viðburð í miðborg
Reykjavíkur. Nokkrar vinkonur,
sem lengi hafa starfað í tísku-
verslunum höfuðborgarinnar,
ákváðu að selja eitthvað af klæðn-
aði sínum sem hlaðist hafði upp á
löngum starfsferli, ekki síst
vegna þess að þær voru búnar að
eignast börn og þurftu í raun á
peningum að halda. Fyrsta útsal-
an var haldin í Ingólfsstræti 5 um
þarsíðustu helgi og leikurinn svo
endurtekinn um þessa helgi.
Vegna aðsóknar hyggjast þær
bæta enn einni helginni við. Nýjar
sölukonur bætast í hópinn og nú
síðast Hrafnhildur Hólmgeirs-
dóttir, sem var stílisti Bjarkar
Guðmundsdóttur á hljómleikaferð
hennar um Bandaríkin, Evrópu og
Japan fyrir skemmstu. Tónleika-
ferð Bjarkar stóð í þrjá og hálfan
mánuð:
„Ég hef aldrei upplifað annað
eins,“ segir Hrafnhildur um
ferðalag sitt með Björk. „En að
sjálfsögðu er ég ekki að selja föt
Bjarkar hér í Ingólfsstræti. Ég sel
bara mín eigin.“
Hægt var að gera reyfarakaup
hjá vinkonunum um helgina og
þær ætla að mæta aftur um
næstu helgi og reyna að halda
áfram útsölunni á meðan hús-
næðið er falt. Til stendur að opna
veitingastað þar áður en langt
um líður – enn einn barinn í Ing-
ólfsstræti en þeir eru þar fimm
fyrir. ■
Imbakassinn
...fá Íslendingar fyrir að ná þeim
árangri að verða loks 300 þúsund
eftir fjögur ár.
Endurvinnsla á tískufatnaði
ESJAN
Náði ekki að losa sig við
allan snjó í sumar.
Esjan ekki
snjólaus
SUMAR Esjan varð aldrei snjólaus í
sumar. Eru það vonbrigði fyrir þá
sem mátu snjóleysið sem tákn um
hlýnandi veðurfar hér á landi.
Esjan hefur orðið snjólaus að
sumri síðustu þrjú árin en nú
brást það. Snjórinn sést ekki alltaf
þar sem menn helst horfa til Esj-
unnar enda fjallið stórt og teygir
sig í allar áttir. ■
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að RÚV þýðir
ekki „rænt úr vasa“.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
FH vann KR 7-0.
Halldór J. Kristjánsson
og Sigurjón Þ. Árnason.
Þröstur Leó Gunnarsson.
ÚTSALAN
Það sem átti að vera einnar helgar gaman er að breytast í vikulega útsölu
í miðbæ Reykjavíkur.
Lausn: lárétt: 1mosi,5aka,6dá,7ka,
8mar, 9fag,10la,12sat,14auk,16ró,
17umla,19ótti.
Lóðrétt: 1makalaus,2oka,3sa,4sár, 6
dagar, 8mas,11aum,13tómi,15kló,
18at.
Lárétt: 1 jarðargróður, 5 keyra, 6 rot, 7
íþr.fél., 8 hestur, 9 námsgrein, 10 tónn,
12 hvíldi, 14 umfram, 16 kyrrð, 17
muldra, 19 uggur.
Lóðrétt: 1 dæmalaus, 2 kúga, 3 átt, 4
und, 6 tímabil sólarhringa, 8 blaður, 11
sár, 13 auði, 15 nögl, 18 saur.
1
7 8
10
14 16
2 3 4
1211
5 6
9
13
15
17 18
19
Ertu sátt
við úrslitin?
Eins og Isabel
Veðurhvellurinn sem gekk yfirlandið í fyrrinótt gaf fellibyln-
um Isabel ekkert eftir í vind-
hraða. Isabel gekk sem kunnugt
er yfir Virginíu og Norður Kar-
ólínuríki í Bandaríkjunum í síð-
ustu viku og olli verulegu tjóni og
mannskaða:
„Þó er ekki hægt að bera það
saman við þennan vind þó hraðinn
sé álíka. Orkan í Isabel á upptök
sín í 30 stiga heitum sjó sem gufar
upp. Vindurinn hér á landi í fyrri-
nótt varð hins vegar til þegar hlýtt
og kalt loft mættust í háloftunum.
Kalt loft virkar sem bensín á lægð
eins og þá var,“ segir Sigurður Þ.
Ragnarsson veðurfræðingur.
Vindhraðinn á landinu í fyrri-
nótt var um 115 kílómetrar á
klukkustund og enn meiri í mestu
hviðunum. Vindhraði sem þessi úr
norðri þýðir í raun að fótbolti sem
hent væri í loft upp á Ísafirði fyki
alla leið til Reykjavíkur á rúmum
þremur klukkustundum.
„Þetta er einn versti hvellur
sem komið hefur hér á landi lengi
og óvenjulegt að hann sé á ferð
svo snemma árs. Kemur það sér
sértaklega illa fyrir gróður sem
enn er laufgaður og tekur því vind
líkt og segl: „Ég frétti af stórum
trjám fyrir norðan sem voru lá-
rétt í rokinu og sum hreinlega
brotnuðu,“ segir Sigurður veður-
fræðingur, sem lofar því þó að
veðrið lagist þegar líður á vikuna:
„Það ætti strax að verða betra á
morgun. Svo ættum við einnig að
upplifa fyrstu úrkomulausu helg-
ina í langan tíma í þessari viku
þannig að þeir sem eiga eftir að
mála sólpall eða þvílíkt fyrir vet-
urinn ættu að vera í viðbragðs-
stöðu og nota þurrkinn.“ ■
BANDARÍKIN
Fellibylurinn Isabel setti flest úr skorðum í Virginíu og Norður-Karólínu.
Veður
■ Óveðrið sem gekk yfir landið í fyrrinótt
gaf fellibylnum Isabel ekkert eftir í vind-
hraða. Ólík upptök vindsins skipta þó
öllu þegar litið er til afleiðinga veðursins.
ÍSLAND
Í verstu hviðunum var vindurinn ekki minni hér á landi en þar sem Isabel gekk yfir vestra.
Bíllausi dagurinn er haldinn há-tíðlegur í dag víða um heim.
1003 borgir og bæir í Evrópu taka
þátt í honum, þar á meðal Reykja-
vík.
Með því að skilja bílinn eftir
heima í dag vinnst ýmislegt:
- Fólk hreyfir sig óvænt meira
en áður. Ekki aðeins ökumaðurinn
heldur einnig þeir sem venjulega
ferðast með honum.
- Bensínsparnaður sem meta
má á 300-700 krónur í dag. Gæti
orðið að einni bíóferð að kvöldi.
- Bíllinn sjálfur hvílist. Vélar
hafa gott af því að vera ekki sí-
keyrðar.
- Slit á götum minnkar um 1/365
á ársgrundvelli.
- Börnin skynja að hægt er að
komast á milli staða gangandi eða í
strætó.
- Slysahætta á vegum úti
minnkar.
- Tryggingafélögin geta lækkað
iðgjöldin af bílatryggingum.
- Súrefni í lungum eykst og
einnig í heila. Gæti leitt til nýsköp-
unar. ■
Bíllinn
heima
Lífsstíll
■ Nokkrar vinkonur selja föt sem þær
eru hættar að nota í Ingólfsstræti um
helgar. Og viðskiptavinirnir flykkjast að.
Umferð
■ Bíllausi dagurinn er í dag.
AUÐ GATA
Engir bílar í dag ef allir taka þátt.
Svona sæmilega. Við
fengum plússtig fyrir
hversu vel hann er tam-
inn, en mínusstig vegna
þess að hann er ekki
hundur!
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A