Fréttablaðið - 02.10.2003, Blaðsíða 38
Egill á Stöð 2
Hrósið 38 2. október 2003 FIMMTUDAGUR
Ásta Guðbjartsdóttir og Sus-anne Torpe vinna nú að því að
þýða metsölubókina The Da Vinci
Code fyrir bókaútgáfuna Bjart.
Ásta þýðir á íslensku en Susanne á
dönsku:
„Við gerum ráð fyrir að fyrsta
prentun í Danmörku verði 10 þús-
und eintök en hér heima prentum
við ekki nema 2.500 eintök,“ segir
Snæbjörn Arngrímsson bókaút-
gefandi, sem treður nýjar slóðir í
útgáfumálum með því að gefa út
bók í tveimur löndum samtímis.
The Da Vinci Code eftir banda-
ríska rithöfundinn Dan Brown er
einhver mesta metsölubók síðari
tíma og hefur þegar selst í 2,5
milljónum eintaka í Bandaríkjun-
um. Útgáfa Bjarts á bókinni í Dan-
mörku er í raun kynningarátak
fyrir Evrópumarkað:
„Ætli galdur þessarar bókar
felist ekki í samblandi af spennu
og sagnfræði og lesendum finnst
þetta skemmtilegt,“ segir Snæ-
björn. „Dan Brown var alls
óþekktur höfundur en markaðs-
setning bókarinnar í Bandaríkjun-
um var frumleg og gekk vel og
svo spurðist hún bara vel út. Það
má ætla að Dan Brown eigi erindi
við Evrópubúa því fyrri bók hans,
Angels & Demons, var á metsölu-
listum í Þýskalandi á meðan hún
seldist alls ekki neitt í Bandaríkj-
unum. Hún er hins vegar farin að
seljast núna, 3-4 árum eftir að hún
kom út.“ ■
Metsölubók
THE DA VINCI CODE
■ einhver mesta metsölubók
síðari tíma í bandaríkjunum er
væntanleg í íslenskri og danskri
þýðingu hjá bókaútgáfunni Bjarti.
Imbakassinn
...fær Sigurður G. Tómasson í Út-
varpi Sögu fyrir viðtal við Braga
Kristjónsson í Bókavörðunni. Þar
fór saman sjaldgæf blanda af
fyndni og fróðleik.
Tvær að þýða Da Vinci Code
HEMMI GUNN
Á Landspítalanum – vinir hans vona hið
besta.
Hemmi
Gunn fékk
hjartaáfall
ÁFALL Hinn landsþekkti sjónvarps-
maður Hermann Gunnarsson
liggur nú á bráðadeild Landspítal-
ans eftir alvarlegt hjartaáfall. Er
Hemma haldið sofandi í öndunar-
vél. Hemmi féll niður á heimili
systur sinnar og fékk strax fyrstu
hjálp:
„Ástand hans er stöðugt og við
vinir hans vonum hið besta,“ seg-
ir Halldór Einarsson, fram-
kvæmdastjóri í Henson og gamall
og traustur vinur Hemma. ■
Samningaviðræður eru í gangium að Egill Helgason komi til
starfa á Stöð 2 með þátt sinn Silf-
ur Egils. Þátturinn var sem kunn-
ugt er sleginn af á Skjá Einum
þar sem hann hafði verið á dag-
skrá í fimm ár. Í staðinn bauð
Skjár Einn upp á nýjan þátt með
Sigmundi Erni Rúnarssyni:
„Ég lít ekki svo á að það sem ég
var að gera sé á nokkurn hátt orð-
ið úrelt,“ segir Egill, sem vill þó
ekki tjá sig frekar um samninga-
viðræðurnar við Stöð 2 þar sem
þær eru á viðkvæmu stigi. Ef af
verður er ljóst að Silfur Egils
verði hvalreki á fjörur Stöðvar 2
en sjónvarpsstöðvarnar bítast nú
hart um áhorfendur á vetrardag-
skrá sinni, ekki síst eftir tilkomu
nýs áskriftarsjónvarps Íslenska
sjónvarpsfélagsins, Skjás 2.
Egill á ekki von á því að mikl-
ar breytingar, ef þá nokkrar,
verði gerðar á þætti sínum þegar
hann hefur göngu sína á Stöð 2:
„Þetta er allt tilbúið og þarf svo
sem ekki nema að kveikja á
rafmagninu,“ segir hann. „Ann-
ars er ég upptekinn við annað
þessa dagana. Sonur minn var að
byrja á leikskóla og það er eins
og verið sé að rífa úr manni
hjartað. Nú erum við feðgar að
ganga í gegnum aðlögunartíma
hér,“ segir Egill á leikskólanum –
á leið á Stöð 2. ■
Lárétt: 1 mýrarsund, 5 upphaf, 6 sex, 7
ekki, 8 heiðinn guð, 9 uppistaða, 10 á
fæti, 12 á flík, 14 slæm, 16 leggst undir
árar, 17 slór, 19 kvendýr.
Lóðrétt: 1 lítill sopi, 2 kyrri, 3 bardagi, 4
ungviði, 6 væntir, 8 væl, 11 fiska, 13 ala,
15 þrír eins, 18 svik.
Kokkteilkofi
Gúnda
Hver rækallinn! Ég kemst
ennþá ekki yfir það hvað
hann var SVAKALEGA ná-
lægt því að komast alla leið!
1
6
7 8
14 15
17 18
16
19
2 3
1311
9
1210
4
5
Lausn. Lárétt:1drag,5rót,6vi,7ei,8
goð,9lón,10tá,12laf, 14ill,16ræ,17
lall,19læða.
Lóðrétt: 1dreitill,2rói,3at,4kið,6
vonar, 8gól,11ála,13fæða,15lll,18
læ.
Sjónvarp
EGILL HELGASON
■ er á leið á Stöð 2. Segir nóg eftir í
sjálfum sér og Silfrinu sem sé alls ekki
gengið sér til húðar.
EGILL HELGASON
Á milli þess sem hann stendur í samn-
ingaviðræðum við Stöð 2 er hann í aðlög-
unarferli með son sinn á leikskóla. Segir
eins og verið sé að rífa úr sér hjartað að
horfa á eftir barninu á leikskóla.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
SÍÐASTA KVÖLDMÁLTÍÐIN
Málverk Leonardo da Vinci kemur mjög við
sögu í metsölubókinni. Í bókinni kemur
fram að lærisveinninn sem situr Jesú á
hægri hönd sé í raun María Magdalena,
ástkona og barnsmóðir Jesú – leyndarmál
sem kirkjan vill hafa út af fyrir sig.
SUSANNE TORPE
Snarar The Da Vinci Code yfir á dönsku.