Fréttablaðið - 02.10.2003, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 02.10.2003, Blaðsíða 25
Í úthverfi Kaupmannahafnar ernotalegt gistiheimili sem er rekið af íslenskum mæðgum. Þær heita Halldóra Jóna Jónsdóttir og Dögg Jóhannsdóttir og hafa þær lagt áherslu á notalega og barna- væna stemningu. „Það hefur al- veg slegið í gegn. Við erum til dæmis með leiktæki í garðinum og þar er mjög notalegt að sitja á kvöldin þegar gott er veður.“ Gistiheimilið, sem er rekið allt árið, er aðallega sótt heim af Ís- lendingum. „Það hafa verið mjög margir Akureyringar hér undan- farið, sem er skemmtilegt. Svo erum við með gesti sem koma aft- ur og aftur.“ Gestirnir sjá sjálfir um að kaupa sér morgunmat og það er eldhús á gistiheimilinu ef fólk vill elda sér mat. „Það er mjög þægi- legt, það er bæði bakarí og búð í næsta nágrenni.“ Gistiheimilið er í tæplega tíu mínútna fjarlægð frá aðaljárn- brautarstöðinni í Kaupmannahöfn og 14 kílómetra frá Kastrup. Her- bergi fyrir tvo kostar 400 danskar krónur. Ef fjórir fullorðnir eru saman í herbergi kostar það 170 krónur á manninn. Börn yngri en þriggja ára fá fría gistingu og þau sem eru yngri en tólf ára greiða 75 krónur. Sjónvarp og vídeó eru á öllum herbergjum. ■ Jeppaferð: Á Sprengi- sandi Fjögurra daga ferð Jeppa-deildar Útivistar norður fyr- ir Hofsjökul og um Vonarskarð hefst í kvöld. Þátttakendur ferð- ast á eigin jeppum undir leið- sögn fararstjóra Útivistar. Farið verður inn á Hveravelli og gist þar í nótt. Gist verður í Lauga- felli annað kvöld. Á laugar- daginn verður ekið eftir Sprengisandi að Fjórðungsvatni og áfram austur Gæsavatnaleið. Gist er í skála Ferðafélags Ís- lands í Nýjadal undir rótum Tungnafellsjökuls. Ferðin mið- ast við breytta jeppa. ■ Það er Quito í Ekvador. Ég hefkomið þangað oft og mér þykir borgin alveg geggjuð,“ segir Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlis- fræðingur um uppáhaldsborgina sína. Að sögn Ara Trausta er Quito gömul borg frá þeim tíma þegar Spánverjar settust þar að. Hún er höfuðborg Ekvador og þar búa um 1,8 milljónir manna. Borgin, sem liggur í 2.800 metra hæð yfir sjáv- armáli, er jafnframt á heimsminja- skrá Sameinuðu þjóðanna. „Borgin er suður-amerísk, sem segir heilmikið. Þetta er borg and- stæðnanna,“ segir Ari Trausti. „Gamla borgin er mjög vel varð- veitt og alveg geysilega sjarmer- andi. Það er líka pínulítill Parísar- bragur á borginni. Ákveðin hverfi þarna eru eins og hverfi í París með k a f f i h ú s u m og galleríum, sem er mjög skemmtilegt.“ Ari hefur komið fjórum sinnum til Quito og ætlar að fara þang- að í fimmta sinn um ára- mótin þegar hann ætlar að klífa þrjú hæstu fjöll Ekvador ef allt gengur að óskum. ■ 25FIMMTUDAGUR 2. október 2003 ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON Ætlar að fara í fimmta sinn til Quito um ára- mótin. Uppáhaldsborgin: Quito í Ekvador SVEFNHERBERGI Sjö svefnherbergi eru á gistiheimilinu, tveggja til fjögurra manna. Gistiheimili Halldóru: Barnavænt í Kaupmannahöfn GISTIHEIMILIÐ Er í Hvidovre, sem er í útjaðri Kaupmannahafnar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.