Fréttablaðið - 05.10.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 05.10.2003, Blaðsíða 6
VARNARMÁL Guðjón Arnar Krist- jánsson, formaður Frjálslynda flokksins, telur að íslensk stjórn- völd þurfi að hefja undirbúning að áætlunum til þess að taka yfir starfsemi og viðhald Keflavíkur- flugvallar. Hann telur víst að Bandaríkjamenn muni ekki hafa áhuga á að viðhalda varnarvið- búnaði hér á landi til langframa þótt vilyrði hafi fengist frá æðstu ráða- mönnum í Was- hington um að áformum um breytingar á vellinum yrði frestað um sinn. „Ég held að staðan í þessu máli sé sú að við Í s l e n d i n g a r þurfum ekki að gera ráð fyrir því til lang- frama að Banda- ríkjamenn hafi mikinn áhuga á að vera með her hér á landi. Þeirra áherslur í varnar- og öryggismál- um í veröldinni hafa verið að fær- ast yfir á önnur svæði í heiminum en Norður-Evrópu þar sem menn eru að horfa á samruna þjóða eins og í gegnum Evrópusambandið,“ segir Guðjón Arnar. Hann telur mikilvægt að tryggt verði að á Íslandi verði viðhaldið útbúnaði sem gerir Bandaríkjamönnum eða Atlants- hafsbandalaginu kleift að nýta sér þá aðstöðu með mjög skömm- um fyrirvara. „Það er auðvitað okkar hagur að viðhalda stöðinni og það getum við gert með samn- ingum við Atlantshafsbandalagið um að það greiði hlut af kostnað- inum en við sjáum um að halda þessari stöð við þannig að hér megi koma inn með varnarlið með tiltölulega skömmum fyrir- vara ef slíkar aðstæður skapast,“ segir Guðjón. Guðjón bendir á að þótt ekki þurfi að vera nauðsynlegt að við- halda herliði á Keflavíkurflugvelli þjóni völlurinn samt sem áður mikilvægu hernaðarlegu hlut- verki auk þess sem hann þjóni sem neyðarflugvöllur fyrir vélar sem fljúga yfir Atlantshafið. Hann segir að þessi staða vallarins ætti að duga til þess að hægt yrði að komast að samkomulagi við aðrar þjóðir Atlantshafsbandalagsins um kostnaðarþátttöku við rekstur og viðhald vallarins. thkjart@frettabladid.is 6 5. október 2003 SUNNUDAGURVeistusvarið? 1Hann er fyrrverandi utanríkisráð-herra Breta og langar að heimsækja Ísland. Hvað heitir maðurinn? 2Hvað heitir væntanlegur nýr stjórnar-formaður Eimskipafélags Íslands? 3Hvaða kvikmynd hefur hlotið flestartilnefningar til Edduverðlaunanna í ár? Svörin eru á bls. 22 Deilurnar um Nóbelsskáldið: Davíð spurður um Gljúfrastein BÓKMENNTIR „Það er eðlilegt að Davíð segi frá því sem hefur gerst í þessu máli. Hér er ekki bara um eigur almennings að ræða heldur minningu eins helsta listamanns þjóðarinnar,“ segir Mörður Árnason, alþingismaður Samfylkingar. Mörður leggur skriflega fyrir- spurn fyrir Davíð Oddsson for- sætisráðherra um stöðu mála á Gljúfrasteini. Spurningarnar eru til komnar vegna deilna um ritun ævisögu Halldórs Laxness. Spurningar Marðar eru í fjórum liðum: 1. Hvað líður stofnun safns um Halldór Laxness á Gljúfrasteini? Hvernig verður háttað samstarfi þess og væntanlegs fræðaseturs á vegum Mosfells- bæjar? 2. Hvernig hef- ur umsjón með eigninni á Gljúfrasteini ver- ið háttað frá af- hendingunni 21. apríl 2002? 3. Hefur hús- eignin verið nýtt með einhverjum hætti á vegum forsætisráðuneytisins frá apríl 2002 eða öðrum verið heimiluð af- not af henni? 4. Hver varðveitir bókasafn Halldórs Laxness, handrit hans og minnisbækur sem Auður Laxness gaf íslenska rík- inu? Hvernig er háttað umsjón þeirra, flokkun og skráningu? F r é t t a b l a ð i ð hefur í tvígang spurt forsætis- ráðuneytið, með tilvísun til upplýs- ingalaga, um þá samninga sem eru að baki þess að Vala Káradóttir var ráðin til að vinna að skráningu bókasafns skáldsins á Gljúfrasteini. Ráðu- neytið hefur enn ekki svarað. ■ Íslendingar annist rekstur vallarins Á BRUNASTAÐTalið er að eldurinn hafi kviknað út frá raf-magni.Heilsuverndarstöð: Eldur við Barónsstíg LÖGREGLUMÁL Eldur kviknaði á fyrstu hæð Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur við Barónsstíg um tíuleytið í gærmorgun. Ekki var um að ræða mikinn eld heldur hafði kviknað í hurð og hurða- karmi sem staðsett er norðanmeg- in í húsinu. Mikill reykur barst um bygg- inguna og urðu læknanemar á fjórðu hæð reyksins vart. Létu þeir slökkvilið vita sem kom fljót- lega á staðinn og slökkti eldinn. Að sögn lögreglu er talið að kvikn- að hafi í út frá rafmagni. ■ Vegklæðningarverkefni: Stærra en fyrri verk SAMGÖNGUR Héraðsverk ehf. á Eg- ilsstöðum hefur lokið við að klæða Fljótsdalsheiðar- og Kárahnjúka- veg en verkið er hið stærsta sinn- ar tegundar hér á landi. Tvöfalt slitlag var lagt á alls 58,5 kíló- metra langan vegarkafla, sem er tvöfalt meira en áður hefur verið lagt á samfelldan vegarkafla hér- lendis. Verkið hófst 11. júlí síðast- liðinn og hefur staðið sleitulaust síðan. Þar með lýkur þeim verkefn- um sem Héraðsverk vinnur fyrir Impregilo en Björn Sveinsson, fráfarandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði ekki loku fyr- ir það skotið að Héraðsverk tæki þátt í öðrum verkefnum síðar. ■ Nýr formaður Ungra jafnaðarmanna: Kosinn með yfirburðum STJÓRNMÁL Andrés Jónsson hlaut yfirburðastuðning í embætti for- manns Ungra jafnaðarmanna á Landsþingi félagsins sem haldið er í Reykjavík. Andrés, sem er fyrir formaður Ungra jafnaðarmanna í Reykja- vík, hlaut 298 atkvæði gegn 139 atkvæðum Margrétar Gauju Magnúsdóttur, fráfarandi ritara stjórnar Ungra jafnaðarmanna. Fjórir kjörseðlar voru auðir eða ógildir. Landsþingsstarf hélt áfram um helgina í Kvennaskólanum í Reykjavík. Ágúst Ólafur Ágústsson al- þingismaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs í embætti formanns en hann hafði gegnt embættinu frá árinu 2001. ■ 2.OOO DAUÐSFÖLL Dauðsföll í Englandi og Wales þegar hitabylgj- an geisaði í ágúst voru um það bil 2.000 fleiri en á sama tíma í fyrra. Heilbrigðisyfirvöld segjast ekki hafa rannsakað það hversu mörg dauðsföll megi með beinum hætti rekja til hitabylgjunnar. GRÓF UPP HRAÐAHINDRUN Bresk- ur karlmaður var dæmdur til að greiða sem svarar rúmum 33.000 íslenskum krónum í sekt fyrir að grafa upp hraðahindrun skammt frá heimili sínu í Oxford. Maðurinn hélt því fram að hann hefði ekki getað sofið vikum saman vegna há- vaðans sem skapaðist þegar stórir flutningabílar ækju yfir hindrun- ina. Ákvað hann því að eyðileggja hraðahindrunina með aðstoð vél- knúinnar gröfu. HÁSKÓLANEMAR 600 fleiri í fjórum skólum en gert var ráð fyrir á fjárlögum. Háskólanemar: Greitt fyrir 600 til við- bótar FJÁRAUKALÖG Farið er fram á 300 milljóna króna aukaframlag í fjáraukalögum til að standa straum af kennslukostnaði í há- skólum. Háskólanemar eru 600 fleiri þetta árið en gert var ráð fyrir í fjárlögum sem samþykkt voru í lok síðasta árs. Gert var ráð fyrir að þeir yrðu 8.867 talsins en raun- in er að þeir urðu 9.467 talsins, sjö prósentum fleiri en spárnar gengu út á. Auk þeirra 300 milljóna króna sem farið er fram á í fjáraukalög- um verður 83,8 milljóna króna heimild af fjárlögum nýtt til að greiða kostnað við fleiri nema. ■ ■ Evrópa MÖRÐUR Vill upplýsingar um safn Laxness. DAVÍÐ Spurður um Gljúfrastein. GUÐJÓN ARNAR KRISTJÁNSSON Telur víst að Bandaríkjamenn muni ekki vilja hafa herlið hér til langframa en mikilvægt sé að viðhalda vellinum svo hann geti nýst fyrir her ef hætta skapast. Formaður Frjálslyndra telur að Íslendingar eigi að taka við rekstri her- flugvallarins í Keflavík. Hann segir að viðhalda eigi vellinum þannig að hægt sé að nýta hann með skömmum fyrirvara ef hætta skapist. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M ■ Írak STJÓRNARSKRÁ EFTIR HÁLFT ÁR Stjórnvöld í Bandaríkjunum telja ekki ómögulegt að stjórnarskrá Íraka geti verið komin í gagnið eftir um hálft ár, að sögn Colins Powells utanríkisráðherra. Powell telur tímabært fyrir Íraka að kjósa sér ríkisstjórn í kjölfar stjórnarskrárinnar. NÝR GJALDMIÐILL Seðlabanki Íraks tók í gær í notkun nýjan gjaldmiðil. Er nýi gjaldmiðillinn jafngildur þeim gamla, en prent- aðir hafa verið nýir peningaseðl- ar. Eru nýju seðlarnir án mynda af fyrrum forseta landsins, Saddam Hussein, sem áður prýddi seðlana. CHIRAC ÓSÁTTUR Jacques Chirac Frakklandsforseti er ósáttur við hugmyndir Bandaríkjamanna um að koma forræði ríkisins smátt og smátt til bráðabirgðastjórnar í Bagdad, þar sem engar tímasetn- ingar séu gefnar út um hvenær Írakar fái fullt sjálfstæði. „Það er auðvitað okk- ar hagur að viðhalda stöð- inni og það getum við gert með samningum við Atlants- hafsbanda- lagið.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.