Fréttablaðið - 05.10.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 05.10.2003, Blaðsíða 14
14 5. október 2003 SUNNUDAGUR Vet rar sól 24. 930kr.. Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Fyrstir koma - fyrstir fá! Alicante Beint leigu- flug me› Icelandair í allan vetur! Sumarhúsa- eigendur og a›rir farflegar til Spánar! Tilbo› 5. og 19. nóv. í 2 vikur: Flug fram og til baka með flugvallarsköttum. Tilvali› tækifæri til a› stytta veturinn. Eddan leitaði eftir fjárstuðningiokkar en þar sem við sáum okkur ekki hag í því að styðja við Edduna eina og sér fórum við út í umræður um að stækka Eddu- konseptið í sameiningu og þannig er þessi kvikmyndahátíð Eddunn- ar til komin,“ segir Björn Sigurðs- son, forstöðumaður Kvikmynda- deildar Skífunnar. Gullmolarnir hlaðast upp „Við áttum óvenju mikið af góðum myndum fyrirliggjandi og gerum fastlega ráð fyrir að ein- hverjar myndir á hátíðinni haldi áfram í almennum sýningum að henni lokinni. Þarna erum við sér- staklega að horfa til Hero, sem við höfum fjárfest talsvert í, meðal annars með textun, Dogville eftir Lars Von Trier og Elephant eftir Gus Van Sant. Það má segja að við séum að prufukeyra þessar mynd- ir á hátíðinni en þær munu þó klárlega halda áfram. Rétt eins og Bowling for Columbine og 28 Days Later sem gengu mjög vel á kvikmyndahátíð hjá okkur í vor og héldu svo áfram í bíó við mikl- ar vinsældir.“ Björn segir að hátíðarmyndirn- ar hafi safnast upp þar sem Skífan hafi haldið að sér höndum vegna óvissu um hvort Kvikmyndahátíð í Reykjavík yrði haldin í haust. „Það hefur verið erfitt að fá það á hreint hvort sú hátíð verði haldin en ég er farinn að hallast að því að ekkert verði af henni, í það minnsta ekki í því formi sem hún hefur verið undanfarin ár, þannig að það var alveg tímabært að gera eitthvað.“ Hátíðirnar slá í gegn Björn segir að kvikmyndahá- tíðir séu alltaf að sækja í sig veðr- ið. „Við fengum gríðarlega góða aðsókn á 101 Kvikmyndadagana í vor og ég veit ekki betur en Bresku kvikmyndagarnir hjá keppinautum okkar hafi heppnast feikilega vel. Þá vorum við með spænska kvikmyndahátíð í byrjun árs sem gekk vonum framar þannig að kvikmyndahátíðirnar hafa alveg sannað sig. Þessu er líka mjög oft þannig farið að við erum með athyglisverðar myndir sem standa ekki undir sér einar og sér og þá eru svona hátíðir al- veg fullkominn vettvangur til að koma þeim á framfæri. Það hefur helst staðið kvik- myndahátíðum fyrir þrifum að þær standa svo stutt að fólk má hafa sig allt við ætli það sér að ná öllu því helsta. Þetta hefur þó ver- ið að breytast á síðustu misserum og Björn segir að í því ljósi hafi verið ákveðið að hafa Kvikmynda- hátíð Eddunnar í lengri kantinum. „Hátíðirnar hafa yfirleitt staðið í tíu daga eða svo, þannig að þær ná í besta falli aðeins yfir tvær helg- ar. Þá hefur það líka sýnt sig að aðsóknin á hátíðarmyndir dettur oft niður þegar hátíðinni lýkur formlega þó þær haldi áfram í kvikmyndahúsum. Við ákváðum því bara að lengja hátíðina í annan endann.“ Myndir koma og fara Björn lætur þess þó getið að það sé allur gangur á því hversu lengi einstakar myndir verði sýndar og þannig þarf Skífan til dæmis að skila dönsku myndinni Stealing Rembrandt eftir helgina þannig að það verður keyrt á henni í upphafi og þeir sem hyggj- ast sjá hana ættu því ekki að láta hana mæta afgangi. „Myndirnar eru þannig að koma og fara á með- an á hátíðinni stendur og músík- prógrammið Mirrorball sem sýnt er í tengslum við Iceland Airwa- ves einungis á dagskrá í lok hátíð- arinnar dagana 16.-19. október. Mirrorball var fyrst sýnt á Kvik- myndahátíðinni í Edinborg 1996 og hefur síðan vaxið í vinsældum og virðingu en það var Mirrorball sem sýndi fyrst myndbönd og kvikmyndir frá Spike Jonze, Michel Gondry, Jonathan Glazer, Jonas Akerlund og Roman Coppola.“ thorarinn@frettabladid.is Vegur bardagahetjunnar Jet Lihefur farið vaxandi á Vestur- löndum á síðustu árum en hann hefur verið að gera það gott í myndum eins og Lethal Weapon 4, Romeo Must Die, Kiss of the Dragon og The One. Ying xiong eða Hero var gerð á síðasta ári og íslenskir aðdáendur kappans hafa beðið hennar með nokkurri eftirvæntingu. Mörgum þykir það sjálfsagt skjóta skökku við að myndin skuli frumsýnd á kvikmyndahátíð en myndir Li hafa ekki beinlínis þótt vera jað- arfyrirbæri hingað til. Hero er að vísu listrænni en gengur og gerist með myndir kappans og var meðal annars til- nefnd til Óskarsverðlaunanna og Golden Globe-verðlaunanna sem besta erlenda myndin 2003. Þá vann hún til verðlauna fyrir leik- stjórn á Kvikmyndahátíðinni í Berlín og sópaði til sín verðlaun- um á Kvikmyndahátíðinni í Hong Kong, fyrir bestu listrænu leik- stjórn, búninga, kvikmyndatöku, útfærslu spennuatriða, tónlist, hljóð og brellur. Hero var einnig tilnefnd til verðlauna fyrir leik- stjórn, leikkonu í aðalhlutverki, sem besta mynd, fyrir klippingu, handrit, lag og leikkonu í auka- hlutverki. Hero gerist í Kína til forna. Landið skiptist þá í sjö konungs- dæmi og Qin, konungi norðurkon- ungdæmisins, stafar stöðug hætta af leigumorðingjum. Hann hræð- ist mest leigumorðingjana „Brotið Sverð“, „Fljúgandi Snjó“ og „Him- in“. Dag einn kemur til hans her- foringi sem heldur því fram að hann hafi drepið alla þrjá óvini konungsins og segir ótrúlega sög- una af því hvernig hann sigraði „Himin“ í einvígi og notaði ást „Brotins Sverðs“ og „Fljúgandi Snjós“ gegn þeim. ■ Elephant greinir frá því hvaðaáhrif skotárás í bandarískum skóla hefur á líf nokkurra ung- menna og byggir á harmleiknum í Columbine árið 1999 þegar tveir drengir mættu með alvæpni í skólann og létu byssukúlum rigna yfir samnemendur sína og kenn- ara. Þetta er sami harmleikurinn og liggur að baki heimildarmynd- arinnar Bowling for Columbine eftir Michael Moore, sem var sýnd í Cannes í fyrra og hlaut Óskarsverðlaun sem besta heim- ildarmyndin fyrr á þessu ári. Gus Van Sant skaut Lars Von Trier ref fyrir rass í Cannes í vor og vann Gullpálmann. Van Sant hlaut einnig verðlaun sem besti leikstjórinn en hann er fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem fær Gullpálmann síðan Quentin Tar- antino kom, sá og sigraði með Pulp Fiction árið 1994. Þegar Van Sant tók við verð- laununum sagðist hann vera búin að reyna að koma myndunum sín- um til Cannes árum saman og sagðist telja það bæði kraftaverk og heppni að hann hafi unnið. Viðfangsefni hans er við- kvæmt og líkt og Michael Moore hefur hann verið sakaður um and- amerískan áróður. Hann þvertek- ur hins vegar fyrir það og segir hana einfaldlega gerða frá sínu sjónarhorni sem Bandaríkjamað- ur. Elephant hefur ekki síst vakið athygli fyrir þær sakir að einung- is þrír atvinnuleikarar koma við sögu í henni en að öðru leyti setti leikstjórinn allt sitt traust á ósköp venjulega skólakrakka. ■ Það kom mörgum á óvart aðDogville eftir Lars Von Trier skyldi ekki hreppa Gullpálmann í Cannes. Trier varð að lúta í lægra haldi fyrir Gus Van Sant en verð- launamynd hans, Elephant, er einnig sýnd á Kvikyndahátíð Edd- unnar. Dogville skartar úrvalsliði leikara með Nicole Kidman í broddi fylkingar en henni til halds og trausts eru gamla þokkagyðjan Lauren Bacall, Paul Bettany, James Caan, Ben Gazzara og John Hurt. Kidman leikur hina gullfallegu Grace, sem endar í hinum ein- manalega smábæ Dogville í Klettafjöllum á flótta sínum und- an glæpagengi. Bæjarbúar fallast á að skjóta yfir hana skjólshúsi gegn því að hún vinni fyrir þá en góðvildin snýst upp í andhverfu sína þegar glæpaklíkan herðir leitina. Þá vilja Dogvillebúar fá meira fyrir sinn snúð og Grace er nauðgað, hún pyntuð og niður- lægð. Hún býr hins vegar yfir hættulegu leyndarmáli sem gæti orðið til þess að bæjarbúar sjái hressilega eftir því að hafa brotið á henni. ■ MYNDIR Á KVIKMYNDA- HÁTÍÐ EDDUNNAR: HERO / YING XIONG (2002) Leikstjóri: Yimou Zhang Aðalhlutverk: Jet Li, Tony Leung Chiu Wai ELEPHANT (2003) Leikstjóri: Gus Van Sant Aðalhlutverk: Alex Frost, Eric Deulen DOGVILLE (2003) Leikstjóri: Lars Von Trier Aðalhlutverk: Nicole Kidman, Harriett Andersson, Lauren Bacall DIRTY PRETTY THINGS Leikstjóri: Stephen Frears Aðalhlutverk: Audrey Tatou, Sergi López BLUE CAR (2002) Leikstjóri: Karen Moncrieff Aðalhlutverk: David Strathairn, Agnes Bruckner, Margaret Colin CARANDIRU (2003) Leikstjóri: Hector Babenco Aðalhlutverk: Luiz Carlos Vasconcelos, Milhem Cortaz, Milton Concalvez THE FOG OF WAR (2003) Leikstjóri: Errol Morris Heimildarmynd um Robert McNamara, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í stjórn Kennedys og Johnsons, sem varð forstjóri Heimsbankans. YOUNG ADAM (2003) Leikstjóri: David Mackenzie Aðalhlutverk: Ewan McGregor, Tilda Swinton, Peter Mullan HOME ROOM (2002) Leikstjóri: Paul F. Ryan Aðalhlutverk: Busy Phillips, Erika Christensen, Victor Garber STEALING REMBRANDT (2003) Leikstjóri: Jannik Johansen Aðalhlutverk: Nikolaj Coster - Waldau, Nicolas Bro, Lars Brygmann THIRTEEN (2003) Leikstjóri: Catherine Hardwick Aðalhlutverk: Evan Rachel Wood, Nikki Reed, Holly Hunter SÍÐASTA KYNSLÓÐIN: BOÐORÐIN 10 Leikstjóri: Bragi Þór Hinriksson Aðalhlutverk: Hafsteinn Gunnar Haf- steinsson, Bára Ösp Kristgeirsdóttir MIRRORBALL Sýnt í tengslum við Iceland Airwaves. Tónlistarmyndbönd, auglýsingar & stuttmyndir. Úrval síðustu 12 mánaða, 3 mismunandi prógrömm. LARS VON TRIER Dogville, nýjasta mynd þess sérlundaða danska leikstjóra, verður sýnd á Kvik- myndahátíð Eddunnar og mun örugglega halda áfram á almennum sýningum að henni lokinni enda Daninn eftirsóttur hér- lendis þó hann sé að sama skapi afar um- deildur. Sérvitur Dani og kínverskur slagsmálahundur Kvikmyndahátíð Eddunnar hófst á föstudag og stendur til 19. október. Þar kennir ýmissa grasa en bíó- unnendur hafa líklega beðið einna spenntastir eftir Dogville eftir Lars Von Trier, Elephant eftir Gus Van Sant og Hero með bardagahetjunni Jet Li. Dogville: Kidman fer í hundana NICOLE KIDMAN Fékk að kynnast því á eftirminnilegan hátt að það er síður en svo heiglum hent að vinna með hinum sérlundaða Lars Von Trier. Hero: Ástir og átök í Kína Elephant: Columbine með augum Sant GUS VAN SANT Hlaut Gullpálmann í Cannes í vor fyrir Elephant. JET LI Leikur nafnlausa hetju í Hero, sem er án efa listrænasta mynd slags- málahetjunnar til þessa.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.