Fréttablaðið - 08.10.2003, Síða 6
6 8. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Evrópa
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.25 -0.61%
Sterlingspund 127.65 -0.07%
Dönsk króna 12.09 1.01%
Evra 89.78 1.02%
Gengisvístala krónu 126,28 0,09%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 262
Velta 5.035 milljónir
ICEX-15 1.832 0,2%
Mestu viðskiptin
Kaldbakur hf. 502.502.750
Íslandsbanki hf. 301.228.504
Landsbanki Íslands hf. 94.225.989
Mesta hækkun
Landsbanki Íslands hf. 1,83%
Flugleiðir hf. 1,77%
Vátryggingafélag Íslands hf. 1,61%
Mesta lækkun
Síldarvinnslan hf. -4,76%
Landssími Íslands hf. -3,33%
Þorbjörn Fiskanes hf. -2,17%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.641,8 0,5%
Nasdaq* 1.904,9 0,6%
FTSE 4.272,0 0,0%
DAX 3.355,8 -1,4%
NK50 1.368,3 -0,4%
S&P* 1.038,2 0,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Bandaríkjamönnum gengur illa að fáályktunartillögu um Írak samþykkta í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Hvað
heitir utanríkisráðherra Bandaríkjanna?
2Hver hefur verið skipaður fram-kvæmdastjóri Jafnréttisstofu?
3Hvað lið leika til úrslita á heims-meistaramóti kvenna í knattspyrnu?
Svörin eru á bls. 30
Stöðumælasektir verða lækkaðar um 37%:
Verða 950 kr. í stað 1500
BORGIN Svokölluð aukastöðugjöld,
eða stöðumælasektir, lækka úr
1.500 krónum í 950. Þetta var sam-
þykkt á fundi samgöngunefndar
Reykjavíkurborgar í gær. Allir
fulltrúar í nefndinni greiddu til-
lögunni atkvæði en tillögu sjálf-
stæðismanna um að stöðugjöld
yrðu lækkuð í 750 krónur var
hafnað. Þá var ákveðið á fundin-
um að fella úr gildi hámarkstíma
sem hægt er að greiða fyrir í
stöðumæla.
Kjartan Magnússon, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í nefndinni,
segir að lækkunin sé löngu orðin
tímabær. „Við höfum alltaf talið
að þetta væri mjög slæmt fyrir
miðbæinn. Kaupmenn og verslun-
armenn í miðbænum hafa verið
sammála okkur í því. Við höfum
hvað eftir annað lagt fram tillögur
um að lækka þessi aukastöðu-
gjöld. En R-listinn hefur ekki
sinnt því fyrr en nú,“ segir Kjart-
an.
Tillaga Sjálfstæðismanna um
að afnema stöðumælagjöld á laug-
ardögum var felld en Kjartan seg-
ir það mjög miður því miðbærinn
standi höllum fæti í samkeppni
við t.d. Kringluna og Smáralind
sem bjóða viðskiptavinum upp á
endurgjaldslaus bílastæði. ■
Schwarzenegger
sigurstranglegastur
Ríkisstjórakosningunum í Kaliforníu lauk í nótt. Kannanir bentu til þess
að Davis yrði vikið úr embætti og Schwarzenegger kjörinn í hans stað.
131 var í framboði og kosta kosningarnar ríkið um 5 milljarða króna.
KALIFORNÍA, AP Kjósendur í Kali-
forníu í Bandaríkjunum gengu að
kjörborðinu í gær og tóku ákvörð-
un um hver verður ríkisstjóri
næstu þrjú árin. Fyrst svöruðu
kjósendur því hvort víkja eigi
Gray Davis, núverandi ríkisstjóra,
úr embætti og ef svarið við þeirri
spurningu var já, hver ætti að taka
við.
Gray Davis hef-
ur setið á stóli ríkis-
stjóra í Kaliforníu
frá árinu 1999 og
var endurkjörinn í
fyrra. Flest bendir
til að honum verði
vikið úr embætti á grundvelli um-
deildra laga sem kveða á um að
kosið skuli á ný ef 12% kosninga-
bærra manna skrifa undir beiðni
þar að lútandi. Auðkýfingurinn
Darrell Issa, öldungadeildarþing-
maður Repúblikana, stóð fyrir
undirskriftasöfnun til þess að
knýja fram kosningar en Issa
sagði Davis ekki hafa brugðist við
gríðarlegum efnahagsvanda Kali-
forníu. Fjárlagahallinn nemur 8
milljörðum dollara eða 610 millj-
örðum króna, atvinnuleysi er við-
varandi og skólakerfið í rúst.
Varlega áætlað kosta kosning-
arnar ríkið um 66 milljónir dollara
eða rúma fimm milljarða króna.
Lagaákvæðið umdeilda um end-
urkosningar, er í gildi í 18 ríkjum
Bandaríkjanna. Því var síðast beitt
árið 1921 þegar Lynn Frazer, ríkis-
stjóra Norður Dakóta, var vikið úr
embætti með sama hætti.
Kjörstaðir opnuðu um hádegis-
bil í gær en kosningu lauk um þrjú
síðastliðna nótt. Kjörsókn var
nokkuð góð í flestum sýslum en
tæplega 15,4 milljónir manna voru
á kjörskrá í Kaliforníu.
Alls voru frambjóðendur 131,
fjórir drógu framboð sitt til baka á
lokasprettinum. Frambjóðendur
þurftu að greiða 3.500 dollara eða
tæpar 270.000 krónur þegar þeir
skiluðu inn framboði sínu og legg-
ja fram undirskriftir 65 meðmæl-
enda eða skila inn undirskriftum
10.000 meðmælenda í stað pen-
ingagreiðslu.
Fáist ekki afgerandi niðurstaða
í dag, hafa kjörstjórnir frest til 5.
nóvember til að telja atkvæði en
úrslit verður að tilkynna fyrir 15.
nóvember.
Skoðanakannanir síðustu daga
benda til þess að kjósendur vilji
Davis burt og Schwarzenegger í
stól ríkisstjóra í hans stað.
the@frettabladid.is
Skaðabótamál gegn
tóbaksfyrirtæki:
Ekkja vill 60
milljónir
BRETLAND, AP Réttað var í fyrsta
skaðabótamálinu gegn tóbaks-
fyrirtæki í Bretlandi í gær.
Ekkjan Margaret McTear
hefur höfðað 60 milljóna króna
skaðabótamál gegn tóbaksfyrir-
tækinu Imperial Tobacco. Telur
hún að fyrirtækið hafi ekki var-
að eiginmann sinn, sem lést úr
lungnakrabbameini fyrir tíu
árum þá 48 ára gamall, við hætt-
unni af sígarettureykingum.
Talið er að niðurstaða dóms-
ins muni ákvarða hvort fleiri
svipuð mál verði höfðuð í fram-
tíðinni. ■
FYRIR UTAN RÉTTARSALINN
Konur bíða eftir að komast inn í réttar-
salinn í Teheran. Fyrir ofan þær er stór
mynd af Ayatollah Ali Khamenei.
Ljósmyndari í Teheran:
Barinn
til bana
ÍRAN, AP Ríkissaksóknari í Teheran
í Íran segir íranskan njósnara
hafa barið blaðaljósmyndara til
bana í sumar meðan á yfirheyrsl-
um stóð. Réttað var í málinu í gær.
Hinn ákærði, Mohammad Reza
Aghdam Ahmadi, segist saklaus
af morðinu á Zahra Kazemi. Ljós-
myndarinn, sem var 54 ára gömul
kona sem hefur bæði íranskan og
kanadískan ríkisborgararétt, lést
eftir að hafa hlotið alvarleg höfuð-
meiðsl. Hún var handtekinn þegar
hún var að mynda mótmæli stúd-
enta fyrir utan fangelsi í Teheran.
Eftir hantökuna var hún yfir-
heyrð í 77 klukkustundir. ■
INNBROT Í REYKJAVÍK Brotist var
inn í íbúð í Árbæjarhverfi í fyrr-
inótt. Þjófurinn lét greipar sópa
og hafði á brott með sér hljóm-
flutningstæki, örbylgjuofn, ryk-
sugu, skálar o.fl. Málið er í rann-
sókn. Þá var brotist inn í bíl í
gærmorgun og einum bíl stolið úr
miðbænum.
ENGIN TÍMAMÖRK
Nú þarf ekki að hlaupa í stöðumæli á
klukkutímafresti.
GRIKKIR OPNI LANDAMÆRIN
Sameinuðu þjóðirnar hafa beðið
Grikki að opna landamæri sín fyr-
ir þeim sem óska eftir hæli.
Grikkir samþykktu aðeins 1,1% af
öllum umsóknum um hæli í fyrra,
samanborið við 23% árið 2001.
■ Lögreglufréttir
ENGA ÞUKLARA Í RÍKISSTJÓRASTÓLINN
Ásakanir um kvensemi Schwarzeneggers og kynferðislegt áreiti gagnvart fjölda kvenna
reyndust kvikmyndastjörnunni erfiðar á síðustu metrum kosningabaráttunnar. Kannanir í
gærkvöld bentu þó til þess að hann færi með sigur af hólmi í ríkisstjórakosningunum í
Kaliforníu.
■
Lagaákvæðið
umdeilda um
endurkosning-
ar, er í gildi í 18
ríkjum Banda-
ríkjanna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T