Fréttablaðið - 08.10.2003, Qupperneq 13
Fréttir október 2003
Göngudeild Reykjavík -
Síðumúla 3-5
Viðtalsþjónusta er í boði alla virka daga
frá kl. 09:00 til 17:00. Þessa þjónustu geta
allir nýtt sér bæði þeir sem vita að þeir
eiga við áfengis eða vímuefnavanda að
stríða og einnig aðstandendur þeirra.
Pantið tíma í síma 5307600
Kynningarfundir
Kynningarfundir SÁÁ í Síðumúla 3-5 eru á
fimmtud. kl. 18:00. Kynningin stendur yfir
í 45 mín. og síðan eru leyfðar fyrirspurnir í
stundarfjórðung.
Batanámskeið
Helgarnámskeið um bata og ófullkominn
bata. Á námskeiðinu er fjallað um ýmsar
takmarkanir eða hindranir sem
alkóhólistinn getur mætt fyrstu mánuðina
í batanum. Hentar einnig vel fyrir þá sem
eru að reyna að hressa sig við eftir áföll
eða lægðir. Næsta batanámskeið verður
04. - 05. okt.
Fjölskyldunámskeið
4 vikna námskeið eða helgarnám- skeið.
Á námskeiðinu er leitast við að auka
þekkingu þátttakenda á vímuef-
nasjúkdómnum einkennum hans, hvernig
hann birtist og hvaða áhrif hann hefur á
alla þá sem búa í návígi við hann. Næsta
helgar-námskeið verður 01.-02. nóvember
en 4 vikna námskeið hefst 27. okt.
Miðvikudagsfyrirlestrar
Alla miðvikudaga eru fyrirlestrar í gön-
gudeild og eru þeir öllum opnir. Þeir hef-
jast kl. 17:00 og er aðgangseyrir 650,- kr.
Göngudeild Vogi - Stórhöfða
Foreldrahópur
Stuðningur fyrir foreldra ungra vímuef-
naneytenda. Hópurinn er jafnt fyrir forel-
dra sem eiga börn sem eru í meðferð eða
hafa lokið henni og þá foreldra sem eru
að leita sér upplýsinga vegna gruns um
neyslu. Hópurinn hittist á sunnud. kl.
15:30 á Vogi.
Spilafíklar
Spilafíklum og aðstandendum þeirra er
boðið uppá fræðsluerindi, viðtöl og hóp-
starf. Eftir þörfum er boðið
uppá meðferð við spilafíkn sem er
um helgar. Meðferðin fer fram með
fræðsluerindum, viðtölum og hópfundum.
G.A. fundur er í göngudeild alla fimmtuda-
ga kl. 20:30. Næsta spilafíklanámskeið
verður 17. - 18. október.
Göngudeild Akureyri
Glerárgötu 20
Opið alla virka daga frá 09:00- 17:00.
Lokað í hádeginu.
Mánudagsfyrirlestar
06. okt.: Kynningarfundur kl. 20:00
13. okt.: Fyrirlestur kl. 18:30
27. okt.: Fyrirlestur kl. 18:30
Allar nánari upplýsingar og tímapantanir,
skráning á fyrirlestra og námskeið hjá
SÁÁ svo og skráning nýrra félaga eru í
síma 5307600
Fyrirlestrar og námskeið júní - júlí 2003
Skrifstofa SÁÁ, Ármúla 18, 108 Reykjavík * Sími: 5307600; fax: 5307602; netfang: saa@saa.is
Vogur, Stórhöfða 45, 112 Reykjavík * Sími: 5307600; fax: 5676615; netfang: vogur@saa.is
Útgáfustjóri: Gunnar Kvaran, kvaran@saa.is * Vefur: www.saa.is (c) Copyright 2003 S.Á.Á.
Fréttabréf Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann Ábm. Gunnar Kvaran
Á Sjúkarhúsinu Vogi eru nú 75% einstaklinga 24
ára og yngri, stórneytendur kannabisefna. Frá
1993-2003 hefur þetta hlutfall vaxið úr u.þ.b. 25%
í 75 %. Yfir 40% þeirra sem eru 24 ára og yngri á
Vogi, eru amfetamínfíklar og 10% sprauta sig
reglulega. Fjöldi þessara einstaklinga er slíkur að
augljóst er að vímuefnaneysla unglinga og ung-
menna á Íslandi er aðal heilsufarsvandi þessa
aldurshóps.
Á sama tíma og þessar staðreyndir blasa við hver-
jum þeim sem kannast við að vera læs og skrifan-
di virðist sem fjölmiðlar á Íslandi hafi oft meiri
áhuga á að ganga erinda fólks sem vill leyfa sölu og
neyslu kannabisefna, frekar en að fjalla um stöðu
ungmenna á Íslandi , vímuefnaneyslu þeirra og
aðal heilsufarsvanda. Aldrei hafa jafn margir leitað
sér meðferðar vegna kannabisneyslu og undan-
farin þrjú til fjögur ár og fólk skyldi hafa í huga að
engin gerir sér leik að því að fara í meðferð vegna
vímuefnaneyslu.
Það er hassvíman sem leggur
ungt fólk inn á sjúkrahús í dag.
Það er hassvíman sem gerir ungt
fólk félagslega óvikt og sljóvgar
þar til skólaganga verður að engu
og hefur þannig neikvæð áhrif á
líf þeirra, langt inn í framtíðina.
Fullyrðingar í fjölmiðlum um að
neysla kannabisefna sé skaðlaus
eru jafn ábyrgðarlausar og áróður og auglýsingar
tóbaksframleiðenda.
87% landsmanna andsnúin
lögleiðingu kannabisefna
Alls eru 87% landsmanna andvíg því að neysla
hass verði leyfð á Íslandi, ef marka má niðurstöður
nýrrar könnunar. Sömuleiðis telja 79% svarenda að
neysla kannabisefna myndi aukast ef notkun þeir-
ra yrði leyfð hér á landi.
Apótekaralakkrís og apótekarahass
Hjartsláttur samtakanna
Dagatal félagsstarfs
í október
01. okt. - Kjarnakonur
02. okt. - Bridge
08. okt. - Afmælisfundur
09. okt. - Heiðursmenn/Bridge
10. okt. - Árshátíð
15. okt. - Kjarnakonur
16. okt. - Bridge/Kjarnakonur
22. okt. - Kjarnakonur
23. okt. - Heiðursmenn/Bridge
25. okt. - Félagsvist/Dans
28. okt. - Dans
29. okt. - Dans/Kjarnakonur
30. okt. - Bridge
Árshátíð SÁÁ á Hótel Sögu,
föstudaginn 10. október 2003
Húsið opnar kl. 19:00
Borðhald hefst kl. 20:00
Matseðill
Engifer og basillegið bleikju carpaccio
Sterkkryddaðar grísalundir með
Beiconkartöfluköku og dijonrjómasósu
Perufrauð Belle Helene
Kaffi
Veislustjóri:
Páll Magnússon
Ljúfir tónar:
Reynir Jónasson og Simon Kuran
Skemmtiatriði:
Fjöllistahópurinn H.E.Y skemmtir
með gríni gleði og söng.
Karl Ágúst Úlfsson og Örn Árnason
fara á kostum í nýrri skemmtidagskrá er
hefur göngu sína á Hótel Sögu í október.
Dans til kl. 02:00
Hljómsveitin Saga Class
Verð aðgöngumiða: Kr. 5.900,00,-
Afmælisfundur SÁÁ
verður haldinn í Háskólabíó
miðvikudaginn 8. október 2003
og hefst hann kl. 19:30
Vandað verður til dagskrár
og munu eftirtalir listamenn og hljómsveitir
skemmta gestum á fundinum:
Bubbi Morthens
KK og Magnús Eiríksson
Einar Ágúst og Gunnar Óla
Hljómar frá Keflavík
Kynnir verður Örn Árnason, leikari
Allir velkomnir
og aðgangur ókeypis!