Fréttablaðið - 08.10.2003, Síða 15
15MIÐVIKUDAGUR 8. október 2003
Höfum fengið til landsins fullan gám af frábæru
7mm smelluparketi. Ekkert lím, ekkert vesen.
Einstakt tækifæri til að gera góð kaup!
Stærsti
sýningarsalur
með gólfefnum
á landinu
Fullur gámur af
plastparketi
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
7
.0
0
6
Beyki HlynurEik Kirsuber-ljóst Kirsuber-dökkt
Aðeins
kr. 990,- p
r. m2 Aðe
ins
kr. 990,- p
r. m2 Aðe
ins
kr. 1.190,-
pr. m
2 Aðeins
kr. 1.190,-
pr. m
2 Aðeins
kr. 1.190,-
pr. m
2
Frítt svampundirlag fylgir með!Án undirlags
Út af í fyrstu
beygju
Geir H. Haarde fjármálararáð-herra mælti fyrir fjárlaga-
frumvarpinu á föstudag og maður
var auðvitað spenntur að sjá
hvernig þeir myndu efna skatta-
lækkunarloforð sín frá því í vor.
En, það er um skattalækkanirnar í
fjárlagafrumvarpinu eins og gjör-
eyðingarvopnin í Írak; það finnst
ekkert. Ekki nóg með það, það eru
í frumvarpinu skattahækkanir!
Þannig er hækkun á þungaskatti
og bensíngjöldum upp á milljarð,
lækkun vaxtabóta upp á 600 millj-
ónir, sérstaki tekjuskatturinn er
lögfestur aftur, að vísu 80 milljón
krónum lægri en í ár, en samt 1.400
milljónum krónum hærri en Sjálf-
stæðisflokkurinn lofaði. Persónu-
afsláttur fylgir ekki launavísitölu
og eykur skattbyrði þess vegna um
hálfan annan milljarð króna.
Í viðtali við Kastljós í vor sagði
Davíð Oddsson fráfarandi forsæt-
isráðherra, m.a.: „Ég sé það fyrir
mér þannig að það verði ákveðið
strax á haustþingi, strax á haust-
þingi þessa árs, að festa í lög alla
þessa skattalækkun og tilkynna á
hvaða dagsetningum nákvæmlega
hún kemur til framkvæmda þan-
nig að menn hafi það fyrir framan
sig og það þurfi ekkert að vera að
tauta um það allt kjörtímabilið ja
jú við ætlum að fara að efna þetta
og við ætlum að fara að efna hitt -
það liggur bara fyrir strax á haust-
þingi allar dagsetningar sem þess-
ar skattalækkanir eiga að skila sér
til fólksins í landinu.“
Fögur fyrirheit
Og þannig efnir Davíð Oddsson
orð sín að einu frumvörpin sem
flutt verða á þessu haustþingi
verða um skattahækkanir. Það er
auðvitað ekki frétt að Davíð plati
kjósendur svona. Hitt er dapur-
legra að sjá hina nýju þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, s.s. Birgi Ár-
mannsson, Bjarna Benediktsson,
Guðlaug Þór Þórðarson og Sigurð
Kára Kristjánsson gleyma fyrir-
heitum sínum úr kosningunum og
láta það verða sitt fyrsta verk að
standa að lagafrumvörpum um
skattahækkanir, sem með lækkun
vaxtabótanna beinast sérstaklega
að ungu fjölskyldufólki sem er að
koma sér upp þaki yfir höfuðið.
Gegn þeirra eigin kynslóð sem að
stórum hluta hefur lent í vítahring
jaðarskattanna. Það vinnur mikið
því útgjöld þess eru há, en með
skerðingu vaxtabóta og endurupp-
töku sérstaks tekjuskatts er verið
að auka vanda þessa hóps en ekki
leysa. Út af í fyrstu beygju, er hár-
rétt lýsing hjá forsætisráðherra
þegar horft er til fyrstu aðgerða
hinna ungu þingmanna Sjálfstæð-
isflokksins á þingi. ■
Mér þóttu heldur sérkennilegarsendingarnar hingað norður
yfir læk í grein Gunnars I. Birgis-
sonar hér í blaðinu á dögunum, en
þar fjallar hann m.a. um byggingu
ráðstefnu- og tónlistarhússins í mið-
borginni og þátttöku ríkisins í
henni. Um bygginguna gildir samn-
ingur milli ríkis og borgar og við af-
greiðslu fjárlaga fyrir þetta ár var
samþykkt að fjármálaráðherra
hefði heimild til að „stofna félag um
rekstur tónlistar- og ráðstefnuhúss í
Reykjavík á grundvelli samnings
við Reykjavíkurborg og greiða
nauðsynlegan kostnað vegna þess“.
Þessu greiddi Gunnar sjálfur at-
kvæði við afgreiðslu fjárlaganna 6.
desember sl.
Sá misskilningur er á ferðinni
hjá Gunnari að Reykjavíkurborg
hafi lánað Austurhöfn TR 150 millj-
ónir króna til skattalegs hagræðis
fyrir borgarsjóð. Þetta er ekki raun-
in. Um er að ræða lánsheimild sem
er veitt til að tryggja að skortur á
framlagi af hálfu borgarinnar stan-
di framgangi verksins ekki fyrir
þrifum og verður hún einungis nýtt
eftir því sem undirbúningi fram-
kvæmda miðar. Enn er óvíst hvern-
ig fjármögnun byggingarinnar
verður háttað, en Austurhöfn TR er
einkahlutafélag í eigu ríkis og borg-
ar. Ef borgin hefði lagt út féð sem
framlag til félagsins og það ekki
verið með útgjöld til samræmis við
framlagið, hefði það þurft að greiða
tekjuskatt af ónýttu borgarfram-
lagi. Það eru hinar skattalegu
ástæður lánsheimildarinnar og var
málum svona háttað að höfðu sam-
ráði við Ríkisendurskoðun.
Óheppilegur samanburður
Fleira nefnir Gunnar, hann
kvartar m.a. yfir verðinu á þjónustu
Orkuveitu Reykjavíkur, sem þó er
ein sú ódýrasta á Íslandi. Til dæmis
má nefna að verð á heitu vatni frá
Orkuveitunni var 7% hærra miðað
við byggingarvísitölu árið 1992 en
það er nú og verð á rafmagni árið
1992 var 21% hærra en í dag. Sam-
anburður Gunnars á Orkuveitu
Reykjavíkur við Hitaveitu Seltjarn-
arness finnst mér ekki sérlega
heppilegur, þar sem Seltirningar
hafa þann háttinn á, að dæla ómeð-
höndluðum heitum sjó til íbúa sem
sjálfir hafa varmaskipta í húsum
sínum. Varmaskiptana þarf að end-
urnýja á um tíu ára fresti, þannig að
þegar upp er staðið, er hitunar-
kostnaðurinn svipaður, þó vissulega
sé vatnstonnið ódýrara á Nesinu.
Ég vænti þess að í Gunnari I.
Birgissyni eigum við Reykvíkingar
og landsmenn allir öflugan
málsvara tónlistar- og ráðstefnu-
húss í Reykjavík og ég vona að það
hús rísi sem fyrst. ■
Umræðan
HELGI HJÖRVAR
ALÞINGISMAÐUR
■
skrifar um fjárlaga-
frumvarpið
Andsvar
ÞÓRÓLFUR
ÁRNASON
BORGARSTJÓRI
■
skrifar um byggingu
ráðstefnu- og tónlist-
arhúss í miðborginni
Undarleg skeyti um tónlistarhús og fleira
Umræða