Fréttablaðið - 08.10.2003, Síða 16
16 8. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Andlát
Það var fyrir 36 árum að bóli-vískur skæruliðahópur undir
stjórn marxísku uppreisnarhetj-
unnar Che Guevara var sigraður
af sérsveitum bólivíska hersins.
Che Guevara særðist í átökunum
og var tekinn til fanga. Daginn
eftir, 9. október 1967, var hann
tekinn af lífi.
Che fæddist í Argentínu og
taldi sig mann aðgerða og því
væri hann fæddur til að fá fólk í
lið með sér og bylta við kerfinu.
Hlutverk hans í kúbversku upp-
reisninni, 1956-1959, hafði mikil
áhrif og hann hvatti Fídel Castró
áfram í að ýta úr hlaði byltingar-
kenndum hugmyndum sínum sem
voru sagðar and-amerískar. Og
eftir að sigurinn var unninn og
Castró orðinn ótvíræður leiðtogi
Kúbu reyndi Che Guevara að sitja
í hinum ýmsu ráðherrastólum en
varð fljótt eirðarlaus. Hann unni
sér ekki í friðsælli Kúbu og lét sig
hverfa af landi brott 1965. Faldi
sig í Kongó í eitt ár og kom sér í
þjálfun sem hann nýtti sér þegar
hann dúkkaði upp í Bólivíu með
her skæruliða með sér.
Síðan Che Guevara dó, fyrir 36
árum, hefur hann verið dýrkaður
sem hetja af ungu fólki um víða
veröld. ■
Hallfríður Jónsdóttir, frá Undralandi,
lést föstudaginn 3. október.
Þórhallur Árnason, Veðramóti, lést
laugardaginn 4. október.
Sigríður Stefánsdóttir, Geithálsi, Vest-
mannaeyjum, lést föstudaginn 3. októ-
ber.
Björg Ólöf Helgadóttir lést sunnudag-
inn 5. október.
■ Afmæli
Albína Thordarson arkitekt, 64 ára.
Helgi Tómasson ballettdansari, 61 árs.
Jónas Garðarson, formaður Sjómanna-
félagsins, 48 ára.
Bryndís Hlöðversdóttir alþingismaður,
43 ára.
Við erum að efna í síðustu sögu-veisluna á Njáluslóðum nú um
helgina,“ segir Arthúr Björgvin
Bollason, sem undanfarin þrjú ár
hefur séð um Sögusetrið á Hvols-
velli, stýrt Njálugleði og verið leið-
sögumaður í Njáluferðum.
„Nú er komið að endalokum. Ég
er að flytja til Þýskalands í vetur
og verð þar næstu árin.“
Í Þýskalandi hefur Arthúr
Björgvin verið ráðinn til þess að
sjá um, ásamt þýskum meðrit-
stjóra, heildarútgáfu á Íslendinga-
sögunum fyrir útgáfufyrirtæki í
Hamborg. Ætlunin er að frumþýða
nánast allar sögurnar og væntan-
lega taka ritstjórarnir tveir að sér
að þýða eina þeirra sjálfir.
„Ég vildi helst að það yrði
Njála, en meðritstjóri minn er eitt-
hvað hikandi við það. Hann vill
láta Eyrbyggju eða einhverja aðra
af þessum smærri sögum duga.“
Arthúr Björgvin ætti þó að
þekkja Njálu betur en aðrar Ís-
lendingasögur sökum víðtækrar
reynslu sinnar af Njáluslóðum
undanfarin þrjú ár.
Undanfarinn ár hefur áhugi
Þjóðverja á íslenskum bókmennt-
um vaxið mjög. Þýðingar á íslensk-
um nútímabókmenntum hafa verið
gefnar út hver á eftir annarri og
nú er röðin sem sagt komin að
fornbókmenntunum.
Síðasta söguveislan verður ann-
að kvöld klukkan sjö með söng-
skemmtun Njálusönghópsins.
Arthúr segist engu að síður reiðu-
búinn til að fara með hópa í Njálu-
ferðir eitthvað fram á haustið. ■
Tímamót
ARTHÚR BJÖRGVIN
■ Síðasta söguveislan á Njáluslóðum
verður annað kvöld. Arthúr Björgvin er
að hverfa af landi brott.
Vill þýða Njálu á þýsku
Dagurinn í dag er eins og hverannar vinnudagur og ég veit
lítið hvað hann ber í skauti sér,
segir Karl Thorberg Birgisson
framkvæmdastjóri Samfylking-
arinnar.
Á laugardagskvöldið er hann
hins vegar nokkuð meðvitaður
um hvað hann ætlast fyrir, því þá
býður hann til veislu og fagnar
fertugsafmæli sínu með vinum og
vandamönnum. „Ég hef kynnst
svo mörgu skemmtilegu fólki á
þessum fjörutíu árum að mér er
lífsins ómögulegt að hafa uppi á
því öllu og hef því vafalaust
gleymt að bjóða einhverjum sem
ég vildi gjarnan sjá. Það eru því
allir vinir mínir sem vilja vel-
komnir í veitingasal BSÍ á Um-
ferðarmiðstöðinni klukkan níu á
laugardagskvöldið,“ segir hann
og hefur gefið Helga Hjörvar
veislustjóra þau fyrirmæli að
ræður séu bannaðar, en þess í
stað verði boðið upp á svolítið af
lifandi tónlist.
Fyrir utan undirbúning afmæl-
isfagnaðar er nóg að stússast hjá
Karli. Fyrir dyrum stendur lands-
fundur Samfylkingarinnar eftir
þrjár vikur sem hann skipuleggur
ásamt öðrum. „Ég er einnig að
undirbúa útvarpsþætti en sá
fyrsti verður fluttur í næstu viku.
Það er spurningaleikur sem ég
var með í fyrra og fjallar um orð
og íslensku,“ segir hann og aftek-
ur með öllu að þeir hafi verið of
þungir. „En ég játa að það helgast
alfarið af hverjir eru gestir mínir
í þættinum hvernig hann heppn-
ast.“
Fyrir nokkrum árum hvarf
Karl á brott úr höfuðborginni og
flutti um tíma austur á firði. „Það
var alveg yndislegur tími og ég
hef oft hótað því að fara þangað
aftur,“ segir hann hlæjandi og
viðurkennir að það hafi verið
kona sem dró hann til borgarinn-
ar aftur. „Hún heitir Katrín Ösp
Bjarnadóttir og ég hefði líklega
ekki komið fyrir neinn nema
hana,“ segir Karl Th. Birgisson
sem notar frítíma sinn til að
bregða sér með henni úr skarkala
borgarinnar og skreppa eftir gæs
í matinn. ■
Afmæli
KARL TH. BIRGISSON
■ Hann hélt síðast upp á afmælisdag
sinn þegar hann var þrítugur og bauð til
sín vinum og ættingjum. Hann ætlar að
endurtaka leikinn nú og fagna í veitinga-
sal BSÍ á Umferðarmiðstöðinni.
MATT DAMON
Óskabarnið og leikstirnirð Matt Damon er
33 ára í dag.
8. október
■ Þetta gerðist
1871 Stóribruninn í Chicago hefst. 17
450 byggingar eyðileggjast og um 250
manns deyja. 90 þúsund heimilislausir.
1895 Argentíski forsetinn Juan Dom-
ingo Perón fæðist.
1918 Alvin York drepur 25 og fangar
132 Þjóðverja. Síðar lék Gary Cooper
hann í kvikmyndinni Sergeant York.
1935 Ozzie og Harriet giftast.
1941 Leiðtogi svartra í Ameríku, Jesse
Jackson, fæðist.
1952 Flugslys við Harrow í Bretlandi.
85 deyja.
1957 Jerry Lee Lewis tekur upp Great
Balls Of Fire.
1964 Oh, Pretty Woman með Roy Or-
bison er á toppi bandaríska listans.
CHE GUEVARA
Var handtekinn á þessum degi fyrir 36
árum og myrtur daginn eftir.
CHE GUEVARA
■ Á þessum degi fyrir 36 árum var upp-
reisnarseggurinn og kommúnistinn Che
Guevara handtekinn. Hann hefur heillað
ungt fólk um allan heim og var góðvinur
Castró.
8. október
1967
Ræður bannaðar
en nóg af tónlist
ARTHÚR BJÖRGVIN SÝNIR FORSETA NJÁLUSÝNINGUNA.
Arthúr Björgvin Bollason er á leiðinni til Þýskalands til að gefa út Íslendingasögurnar eftir
að hafa séð um uppákomur á Njáluslóðum undanfarin þrjú ár.
KARL TH. BIRGISSON
Hann hefur nóg að starfa þessa dagana, undirbýr afmæli, landsfund Samfylkingarinnar og vinnur að útvarpsþáttum.
Che Guevara handtekinn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A