Fréttablaðið - 08.10.2003, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 8. október 2003
Þrjátíu ár eru liðin síðankennsla hófst í hjúkrunar-
fræði í háskólastigi og var þess
minnst með hátíðardagskrá í Há-
skóla Íslands á fimmtudag..
Erla Kolbrún Svavarsdóttir
deildarforstjóri segir feikilegar
breytingar hafa orðið á námi
hjúkrunarfræðinga á þessum
árum „Eðli menntunarinnar hefur
breyst og til að mynda bjóðum við
nú upp á meistaranám og diplom-
anám er hefjast í haust. Aðsókn
hefur aldrei verið meiri í námið
og nýnemar eru 245 samanborið
við 24 fyrir 30 árum og þar af eru
22 karlmenn,“ segir Erla Kolbrún.
„Starfsvettvangur hjúkrunar-
fræðinga hefur einnig breyst
mjög á þessum tíma og starfa þeir
nú við fjölbreyttari störf en áður,
þar sem sérþekking þeirra nýtur
sín.“ Erla Kolbrún bendir á að
fáar heilbrigðisstéttir hafi eins
mikla reynslu og sérþekkingu á
sviði stjórnunar. „Þekking hjúkr-
unarfræðinga er að verða mjög
eftirsóknarverð innan heilbrigðis-
kerfisins. Heilbrigðismálin hafa
þróast út í að verða sértækari og
flóknari eftir því sem árin hafa
liðið og eftirsókn efir hjúkrunar-
fræðingum er að verða meiri,“
segir hún.
Erla Kolbrún segir að samfara
aukinni þekkingu geri þjóðfélagið
meiri kröfur. Aðstandendur sjúk-
linga vilji fá upplýsingar um gang
sjúkdóma og þeirra væntingum
geti hjúkrunarfræðinga mun bet-
ur mætt en fyrr,“ segir Erla Kol-
brún sem sjálf útskrifaðist frá
Háskóla Íslands árið 1987 og með
doktorsgráðu frá Madison í
Wisconsin árið 1997. „Það vakti
alltaf mikinn áhuga hjá mér að
fara út í fræðistörf og rannsóknir
en það er ein leið til hafa áhrif
þróun klínískrar hjúkrunar og
leggja þannig mitt af mörkum. Ég
fór því til Bandaríkjanna fljótlega
eftir útskrift og bjó þar sjö ár og
tók við starfi hér við Háskóla Ís-
lands.“
Eiginmaður Erlu Kolbrúnar er
Gunnar Svavarsson verkfræðing-
ur hjá Línuhönnun og eiga þau
tvær dætur sem enn eru í for-
eldrahúsum, þær Guðrún Mist og
Melkorku. ■
Tímamót
HJÚKRUN
■ Þrjátíu ár eru síðan nám í hjúkrun
hófst í Háskóla Íslands. Miklar breytingar
hafa orðið á eðli námsins á þeim árum og
það hefur þróast í takt við tíðarandann.
Fleiri karlmenn í hjúkrun
TÓMAS BOLLI HAFÞÓRSSON
Hann segir orkuátak 2003 standa út mán-
uðinn en tilgangurinn er að stemma stigu
við offituvanda íslenskra barna.
??? Hver?
Verkefnastjóri Orkuátaks 2003.
??? Hvar?
Ég er alinn upp í Reykjavík, aðallega í
Hólunum.
??? Hvaðan?
Í þessum töluðu orðum er ég staddur í
Latabæjarbílnum á leiðinni í Búnaðar-
bankann.
??? Hvað?
Orkuátak er skemmtilegt átaka fyrir
krakka á öllum aldri. Tilgangurinn er að
fá þau til að hugsa um holt mataræði
og hreyfingu.
??? Hvernig?
Með því að gera skemmtilega orkubók
sem við sendum öllum krökkum sem
fædd eru frá 1997 til 1999.
??? Hvers vegna?
Vega þess að þess að það stefnir allt í
að offita sé að vera eitt helsta heilsu-
vandamálið á Íslandi. Okkar markmið er
að leggja okkar af mörkum í fyrirbyggj-
andi aðgerðum. Nú þegar eru íslensk
börn önnur þyngstu börn í heiminum á
eftir bandarískum börnum samkvæmt
upplýsingum frá Landlæknisembættinu.
??? Hvenær?
Það hófst 1 október og stendur út mán-
uðinn.
■ Persónan ■ Nýjar bækur
RAFSÓL
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Sími:
553 5600
ENDURNÝJUN
OG VIÐHALD
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
2
6
6
.0
0
2
NÝTT ÚTIBÚ
Búnaðarbankinn í Árbæ opnar í dag nýtt
útibú að Hraunbæ 117 og í tilefni dagsins
verður gestum og viðskiptavinum bankans
boðið kaffi og meðlæti. Bankinn bryddar
upp á nýjung á sviði fasteignaviðskipta og
verður fasteignaþjónusta til húsa í hinu
nýja útibúi. Á myndinni eru starfsfólk og
yfirmenn hins nýja útibús.
JPV útgáfa hefursent frá sér
þriðju bókina um
Artemis Fowl sem
ber heitið Artemis
Fowl - Læsti tening-
urinn. Guðni Kol-
beinsson þýddi bók-
ina eins og þær fyrri
sem notið hafa mik-
illa vinsælda hér á landi sem er-
lendis.
Auk þess hefur JPV sent frá sérMaður að nafni Dave sem er
lokabindi sögu Dave Pelzers sem
hófst með bókinni
Hann var kallaður
„þetta“. Sigrún
Árnadóttir þýddi
bókina en Dave
Pelzer er mjög
óvenjulegur maður
eins og lesendur
fyrri bóka vita. Í
æsku var hann
beittur miskunnarlausu ofbeldi af
þeim sem síst skyldi, drykkfelldri
og helsjúkri móður sinni, síðan
þvældist hann inn og út af fóstur-
heimilum, vanmetinn, niðurlægð-
ur og einmana. En þrátt fyrir ólýs-
anlegar hörmungar var hann alla
tíð staðráðinn í að þrauka og
skapa sér sess í lífinu. ■
ERLA KOLBRÚN SVAVARSDÓTTIR
Hjúkrunarnám hefur breyst mjög á þeim
árum sem liðin eru síðan námið færðist í
Háskólann.
OPIÐ KL 11.00-22.00
Föstudag og Laugardag frá 10.00-18.00
Kaffihúsið við stíginn