Fréttablaðið - 08.10.2003, Page 18
nám o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur námi
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: nam@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Hin fræðilega stærðfræði semkennd er í skólum nýtist ekki
alltaf vel í tæknivæddu samfélagi nú-
tímans. „Fólk á að kunna að nota þau
tæki sem eru á boðstólum hverju sinni.
Það er þekking,“ segir Ellert Ólafsson
,verkfræðingur og höfundur bókarinn-
ar Stærðfræðinám með nútíma tækni.
Í bókinni er kennt að nota stærðfræði-
forrit og Netið til að læra stærðfræði
og leysa þrautir sem áður voru óleys-
anlegar.
Til þessa hafa forrit á við Maple
nær eingöngu verið notuð í háskól-
um og við vinnu sérfræðinga en
Ellert telur að tæknin eigi fullt er-
indi á öllum stigum skólakerfis-
ins og að hún geti orðið til þess að
glæða áhuga almennings á
stærðfræðinni.
„Þetta er alveg ný aðferð
við að leysa stærðfræðileg
vandamál og er hægt að nota
hana frá grunnskóla til háskóla. Hún er
ein af mörgum aðferðum
sem verður eflaust not-
uð miklu meira í skóla-
starfinu í framtíðinni.
Fyrir allt of marga er
stærðfræði innihaldslaus
og gagnslaus. En þessi að-
ferð gjörbreytir því.“■
TÖLVUTÆKNIN NÝTT
Ný aðferð við að leysa stærðfræði-
leg vandamál, segir höfundurinn.
Ný stærðfræðibók:
Nútímatækni notuð í stærðfræði
Nám í Waldorf-uppeldisfræði erfyrir alla sem unna göfugri og
listrænni aðferðafræði í uppeldi og
kennslu,“ segir Lilja Oddsdóttir, leik-
skólakennari á Waldorf-leikskólan-
um, en í janúar á næsta ári hefst nýtt
nám sem byggir á heimspeki Rudolfs
Steiners.
Í Reykjavík starfar einn skóli og
tveir leikskólar sem fylgja Waldorf-
stefnunni. Þá er Waldorf-skóli og
leikskóli í Lækjarbotnum.
„Við byggjum á alhliða þekkingu á
manninum og þrískiptingunni: lík-
ami, andi og sál,“ segir Lilja. „Í leik-
skólunum er mikil áhersla lögð á
hrynjandi. Börnin læra líka í gegnum
vinnu með hendurnar en samkvæmt
kenningum Waldorfs er handverk
þjálfun hugans. Litið er á barnið sem
afl sem á að fá að blómstra, vaxa og
þroskast í hlýju umhverfi og á eigin
forsendum. Mikil áhersla er á upplif-
un í gegnum skynfæri, mýkt og feg-
urð. Við reynum að næra barnið í
gegnum fallegt umhverfi og styðja
tilfinningalegan þroska. Við leggjum
til dæmis mikið upp úr samhyggð og
tillitssemi. Tölvur og snemmlærdóm-
ur eru hins vegar ekki okkar leið.“
Þetta er í fyrsta skiptið sem hægt
er að stunda nám í þessari stefnu hér
á landi en lítil áhersla hefur verið
lögð á hana í Kennaraháskólanum.
„Þetta er mjög falleg stefna til að ala
barnið sitt upp eftir og ég held að hún
eigi framtíðina fyrir sér,“ segir Lilja
en þrátt fyrir að fyrsti Waldorf-skól-
inn hafi verið stofnaður árið 1919 í
Þýskalandi eru aðeins um tíu ár síðan
fyrsti skólinn af þessu tagi var stofn-
aður hér á landi. Því eru ekki margir
sem þekkja hugmyndafræðina vel.
„Við viljum gjarnan að fleiri mennt-
ist í þessu þannig að við fáum aukinn
kraft til að byggja upp Waldorf-skól-
ana og opna fleiri leikskóla,“ segir
Lilja.
Sólstafir, sem reka Waldorf-skól-
ana í Reykjavík, skipuleggja námið
ásamt Sigrúnu Harðardóttur, ráð-
gjafa og kennara við Rudolf Steiner
háskólann í Danmörku. Námið hefst í
janúar 2004 og lýkur í júní 2007 en
væntanlega verður hægt að taka
staka kúrsa. Kennt verður eina helgi
í mánuði og tvö kvöld. Hægt er að
biðja um frekari upplýsingar á net-
fanginu: sigrun.sh@get2net.dk ■
Nám í Waldorf-uppeldisstefnunni:
Fyrir unnendur list-
rænnar aðferðafræði
LILJA ODDSDÓTTIR
Telur að Waldorf-stefnan eigi
framtíðina fyrir sér.
ÞRJÁTÍU KONUR PRÓFESSORAR Fjöldi
kvenna í embætti prófessora tvöfald-
aðist á árunum 2000-2002. Þær voru
fimmtán árið 2000 en voru 30 árið
2002 samkvæmt upplýsingum Hag-
stofunnar. 158 karlar eru prófessorar.
Alls voru 2.531 manns í 1.679 stöðugildum í íslenskum
háskólum í mars 2002. Karlar voru fjölmennari í stöð-
um aðjúnkta og stundakennara. Konur voru mun fjöl-
mennari í stöðum sem tengjast skrifstofustörfum og
slíku. Þar er hlutur kvenna 75% á móti 25% hlut karla.
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR Í 96 ÞÚSUND EINTÖKUM – 515 7500
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M