Fréttablaðið - 08.10.2003, Side 24

Fréttablaðið - 08.10.2003, Side 24
FÓTBOLTI Rio Ferdinand, varnar- maðurinn snjalli hjá Manchester United, mun ekki leika með Eng- lendingum gegn Tyrkjum í und- ankeppni Evrópumótsins á laug- ardag. Ferdinand mætti ekki í lyfjapróf í september eins og leik- menn liðsins eru skyldugir til og á að mæta í yfirheyrslu hjá Enska knattspyrnusambandinu á mánu- dag. Ferdinand er sagður hafa gleymt lyfjaprófinu þar sem hann var að flytja en í yfirlýsingu sem Manchester United sendi frá sér segir að leikmaðurinn hafi geng- ist undir próf 36 tímum síðar og staðist. Samkvæmt lyfjareglum Alþjóðaknattspyrnusambandsins dugir það ekki til og telst hann hafa brotið reglur með því að mæta ekki. Stjórn Manchester United íhugar að höfða mál á hendur Enska knattspyrnusambandsins og hefur hótað að banna leik- mönnum sínum að leika með landsliðinu. Paul Scholes, Nicky Butt, Gary og Phil Neville mættu þó allir á landsliðsæfingu í gær en Sven-Göran Eriksson landsliðs- þjálfari kynnti hópinn í gær. Fjór- ir leikmenn koma frá Manchester United og Chelsea, þrír frá Liver- pool og tveir úr Arsenal og Leeds.■ 24 8. október 2003 MIÐVIKUDAGUR SEGLUM ÞÖNDUM Tveir seglbrettakappar nýttu sér storminn og sigldu seglum þöndum í Þýskalandi. Seglbretti FÓTBOLTI Rúnar Kristinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, verður að öllum líkindum með þegar Ísland og Þýskaland mæt- ast í undankeppni Evrópumóts- ins í knattspyrnu í Hamborg á laugardaginn kemur. „Ég reikna með að því að geta leikið gegn Þjóðverjum en er samt ekki alveg viss. Þetta er allt að koma og ég get farið á æf- ingu á fimmtudaginn,“ segir Rúnar, sem meiddist í leik með Lokeren um helgina og um tíma var óttast að hann gæti ekki leik- ið með gegn Þýskalandi. „Ég fékk spark í hnéð og það bólgn- aði allt upp. En nú er bólgan að hjaðna og ég er að ná fyrri styrk.“ Rúnar hefur verið í meðferð hjá sjúkraþjálfurum Lokeren og er væntanlegur til Hamborgar í dag. Þar munu sjúkraþjálfara ís- lenska liðsins líta á hann og þá kemur í ljós hvort hann verður leikfær. Þjóðverjaleikurinn leggst vel í Rúnar enda gríðarlega mikil- vægur leikur fyrir Íslendinga. „Það er samt ákveðin pressa á Þjóðverja og þeir ætla sér að vinna leikinn. Við erum ákveðnir í að standa okkur en það er erfitt að sigra Þjóðverja á heimavelli. Við reynum allt sem við getum,“ segir Rúnar. Landsliðsmaðurinn snjalli segir gífurlegan missi í Lárusi Orra Sigurðssyni og Heiðari Helgusyni sem eru frá vegna meiðsla og sömu sögu sé að segja af Jóhannesi Karli Guð- jónssyni sem tekur út leikbann. „Þeir byrjuðu allir inn á í síðasta leik og stóðu sig vel. En við þurf- um að finna einhverja lausn á því og ég er ekki í vafa um að þjálfararnir geri það. Það eru aðrir leikmenn sem geta leyst þessar stöður,“ segir Rúnar. Logi Ólafsson og Ásgeir Sig- urvinsson völdu tuttugu manna landsliðshóp fyrir leikinn sem er ívið stærri en venjulega. Ástæð- an er sú að nokkrir leikmenn eru tæpir vegna meiðsla, þeir Her- mann Hreiðarsson og Pétur Hafliði Marteinsson. Hjálmar Jónsson, leikmaður Gautaborg- ar, kemur aftur inn í hópinn en hann á fimm landsleiki að baki. Ríkharður Daðason er sömuleið- is kominn í hópinn að nýju eftir talsvert hlé sem og Bjarni Guð- jónsson sem hefur staðið sig ágætlega með Bochum í þýsku úrvalsdeildinni. ■ hvað?hvar?hvenær? 5 6 7 8 9 10 11 OKTÓBER Miðvikudagur LEIKIR 17.30 Fylkir/ÍR mætir KA/Þór í 16-liða úrslitum SS-bikar kvenna í Austur- bergi. 19.15 FH-stúlkur fá Val í heimsókn í Kaplakrika í 16-liða úrslitum SS- bikar kvenna. 19.15 Grótta/KR fær Víking í heim- sókn í 16-liða úrslitum kvenna í handbolta. 19.15 Njarðvík fær í ÍS í heimsókn í opnunarleik 1. deildar kvenna í körfuknattleik. 20.00 ÍR fær KR í heimsókn í Selja- skóla í 1. deild kvenna í körfuknattleik. 20.00 Grannaslagur þegar HK og Breiðablik eigast við í suður riðli Remax-deildar karla. 20.00 Íslandsmeistarar Hauka taka á móti Selfoss að Ásvöllum í suður- riðli Remax-deildar karla. SJÓNVARP 17.30 Fjallað er um helstu íþrótta- viðburði heima og erlendis í Olís- sporti á Sýn. 18.00 Ítarleg umfjöllun um íslenskar akstursíþróttir í Mótorsporti á Sýn. Umsjónarmaður er Birgir Þór Bragason. 18.30 Heimsfótbolti West World á Sýn. 19.00 Sýnt frá golfmóti í Evrópu á Sýn. 22.00 Fjallað er um helstu íþróttavið- burði heima og erlendis í Olís- sporti á Sýn. 22.20 Sýnt verður úr leikjum kvöldsins í Handboltakvöldi á RÚV. 16-liða úrslit SS-bikar kvenna: Valur sækir FH heim HANBOLTI Þrír leikir fara fram í 16-liða úrslitum SS-bikarkeppni kvenna í dag. Í Kaplakrika fá FH-stúlkur Val í heimsókn. Hlíð- arendastúlkurnar eru enn sem komið er ósigraðar í deildinni og lögðu meðal annars FH að velli í siðustu umferð. Á Seltjarnarnesi fær Grótta/KR Víking í heimsókn. Leikirnir hefjast báðir klukkan 19.15. Sameinað lið Fylkis og ÍR fær sameinað lið KA og Þórs í heim- sókn. Leikurinn, sem átti upp- haflega að fara fram í Fylkishús- inu, hefst í Austurbergi klukkan 17.30. ■ FÓTBOLTI Sjónvarpsrisinn BSkyB hefur selt 10% hlut sinn í enska úrvalsdeildarliðinu Manchester United og ýtt þar með frekar und- ir þær sögusagnir að yfirtaka sé fyrirhuguð í félaginu. Sjónvarps- risinn, sem hefur verið einn stærsti hluthafi í United, seldi í gær 25 milljón hluta í félaginu á genginu 2.39. Sögusagnir um fyrirhugaða yf- irtöku í United hafa verið í gangi frá því að rússneski milljarða- mæringurinn Roman Abramovic keypti Chelsea í júlí á þessu ári. Fyrir vikið hefur gengi bréfa í fé- laginu hækkað um tvo þriðju síð- ustu þrjá mánuði og um 20% tvær síðustu vikur. Að sögn sérfræðinga er United betri kostur en mörg önnur úr- valsdeildarlið. Það er ekki skuld- sett eins og önnur félög og þar að auki eitt stærsta og ríkasta félags- lið heims. ■ MANCHESTER UNITED Hugsanleg yfirtaka er sögð yfirvofandi hjá Manchester United. BSkyB selur 10% hlut í United: Yfirtaka yfirvofandi? Rúnar líklega með gegn Þjóðverjum Rúnar Kristinsson er að jafna sig af meiðslum sem hann hlaut um síðustu helgi. Reiknar með því að vera með. Landsliðsþjálfararnir völdu tuttugu manna hóp í stað átján vegna meiðsla. RÚNAR KRISTINSSON Er leikjahæsti maður íslenska landsliðsins. Verður vonandi klár í slaginn þegar Ísland mætir Þjóðverjum í Hamborg á laugardag. RÍKHARÐUR DAÐASON Hann er aftur kominn í íslenska landsliðs- hópinn. BJARNI GUÐJÓNSSON Er einnig kominn aftur í landsliðið. LANDSLIÐSHÓPURINN Markmenn Birkir Kristinsson ÍBV Árni Gautur Arason Rosenborg Aðrir leikmenn Rúnar Kristinsson Lokeren Arnar Grétarsson Lokeren Hermann Hreiðarsson Charlton Helgi Sigurðsson Lyn Þórður Guðjónsson Bochum Ríkharður Daðason Fredrikstad Brynjar B. Gunnarsson Nottingham F. Arnar Þór Viðarsson Lokeren Pétur H. Marteinsson Hammarby Eiður Smári Guðjohnsen Chelsea Ólafur Örn Bjarnason Grindavík Indriði Sigurðsson Genk Bjarni Guðjónsson Bochum Marel Baldvinsson Lokeren Ívar Ingimarsson Wolves Hjálmar Jónsson IFK Gautaborg Veigar Páll Gunnarsson KR Kristján Örn Sigurðsson KR RIO FERDINAND Gæti verið dæmdur í keppnisbann fyrir að mæta ekki í lyfjapróf hjá Enska knatt- spyrnusambandinu. Englendingar þurfa að ná jafntefli gegn Tyrkjum til að tryggja sér sæti á Evrópumeistaramótinu í Portúgal. Enska landsliðið: Ferdinand ekki með gegn Tyrkjum Markverðir Paul Robinson Leeds David James West Ham Ian Walker Leicester Aðrir leikmenn Sol Campbell Arsenal Ashley Cole Arsenal Matthew Upson Birmingham Owen Hargreaves Bayern München Wayne Bridge Chelsea Joe Cole Chelsea Frank Lampard Chelsea John Terry Chelsea Wayne Rooney Everton Michael Owen Liverpool Steven Gerrard Liverpool Emile Heskey Liverpool Nicky Butt Manchester United Phil Neville Manchester United Gary Neville Manchester United Paul Scholes Manchester United Danny Mills Leeds Kieron Dyer Newcastle David Beckham Real Madrid James Beattie Southampton FJÖLHÆF Norður-Kóresk stúlka sýnir fimi sýna í hálf- leik vináttuleikjar Norður- og Suður-Kóreu sem fram fór í gær. Um 800 manns frá Suður-Kóreu lögðu leið sína yfir landa- mærin til að fygljast með leiknum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.